13.05.1975
Sameinað þing: 77. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3981 í B-deild Alþingistíðinda. (3234)
182. mál, breytingar á íslenskum rithætti
Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Þessi fsp. er ekki frá mér komin, en varamaður minn, sem hér sat um tíma á þingi, bar fram þessa fsp. sem er þannig, með leyfi forseta:
„Vill menntmrh. taka til endurskoðunar þær breytingar á íslenskum rithætti er menntmrn. hefur nýlega sett reglugerð um?“
Heimir Hannesson lét fylgja eftirfarandi um þessa spurningu:
Á þskj. 354 hef ég beint þessari fsp. til hæstv. menntmrh. Við fyrstu sýn virðist e.t.v. að hér sé ekki um stórmál að ræða í samanburði við fjölmörg þau mál sem hið háa Alþ. fjallar um þessar vikurnar og mun fjalla um. En þegar betur er að gáð er hér vissulega um mjög mikilvægt mál að ræða þar sem um er að ræða opinbera ákvörðun um hvernig haga skuli íslensku ritmáli, sem skiljanlega snertir alla þegna þessa lands þó að það sé mismunandi mikið, ekki síst námsfólk og svo alla þá sem tengdir eru bókum og öðru rituðu máli á einn eða annan hátt.
Formlegt upphaf þessa máls kom fram með birtingu auglýsingar menntmrh. í Stjórnartíðindum B, nr. 132/1974, og var fyrirsögn þess boðskapar: Auglýsing um íslenska stafsetningu. Umtalsverðustu breytingarnar á íslensku ritmáli voru einkum þrenns konar: um z og afnám hennar; nýjar reglur um stóran staf og lítinn, valfrelsi um ritun margra orða o.s.frv.
Aðdraganda 1. kaflans um umrædda z þekkja margir hv. alþm. Þrátt fyrir skýlausan vilja Alþ. með samþykkt þáltill. ákvað fyrrv. hæstv. menntmrh. að hann skyldi eftir sem áður halda þessu til streitu. Mér er ekki grunlaust um að hæstv. fyrrv. menntmrh. hefði komist upp með þetta a.m.k. um sinn ef hann og rn. hans hefði ekki í leiðinni boðað enn nýjar breyt., e.t.v. sýnu róttækari, en um leið fyrirvaralausari og sýnilega enn fljótfærnislegar undirbúnar. Verður ekki séð að rn. hafi leitað umsagnar nokkurs aðila utan þeirrar fámennu nefndar sem till. gerði til rn., t.d. ekki Landsbókasafns, Örnefnastofnunar, bókasafnanna, útgefenda né nokkurra þeirra aðila annarra sem vissulega er málið mjög skylt, svo sem skólastjóra, samtaka blaðamanna, ritstjóra og annarra sambærilegra aðila, enda kom að því að mælirinn varð loks fullur eins og flestir hv. alþm. vita.
Það á ekki að nota íslenskt ritmál í einhverja tilraunastarfsemi fámenns hóps manna sem hefur þau varanlegu áhrif að allt málskyn manna slævist og hvorki nemendur né fullorðnir viti í raun og veru lengur hvað er rétt og hvað er rangt í þessu efni. Þegar mistök á borð við þessi eru gerð, er afar mikilvægt að dregið sé í land hið fyrsta. Því lengri tími sem líður áður en það er gert, þeim mun meiri verður ruglingurinn og enn meiri fjármunir fara í súginn. Þetta er vissulega mikið fjárhagslegt atriði, eða hvað skyldi hann nema mörgum milljónum eða milljónatugum, kostnaðurinn við að endurprenta bækur, stór ritverk o.s.frv. Og þannig mætti lengi telja. Þó að Ríkisútgáfan hafi e.t.v. látið prenta tvær, þrjár bækur er það smáræði miðað við það sem eftir ætti að koma ef ekki verður snúið við. Treystir núv. hæstv. menntmrh. sér til að bregða skjótt við og nema úr gildi þá breytingu á íslenskri stafsetningu sem hér hefur verið gerð að umtalsefni?
Þetta var sú grg, sem Heimir Hannesson lét fylgja þessari fsp.