13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3985 í B-deild Alþingistíðinda. (3241)

27. mál, kaup ríkissjóðs á húsakosti í Flatey á Skjálfanda

(Lárus Jónsson):

Herra forseti. Fjvn. hefur athugað till. og rætt málið á fundum sínum. Leitað var umsagnar jarðeignadeildar ríkisins og hreppsnefndar Hálshrepps um málið. Nefndin leggur til að till. verði vísað til ríkisstj., en bendir jafnframt á ákvæði í ábúðarlögum varðandi greiðslur til ábúenda lögbýla. Telur nefndin ekki óeðlilegt að kannað sé hverjir af eigendum umræddra húsa hefðu áhuga á að selja húsin og þá með hvaða skilmálum.

Nefndin leggur sem sagt einróma til að málinu verði vísað til ríkisstj.