13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 3985 í B-deild Alþingistíðinda. (3243)

37. mál, atvinnumál aldraðra

Frsm. (Guðmundur H. Garðarsson):

Herra forseti. Atvmn. hefur haft til athugunar till. til þál. um atvinnumál aldraðra. Nefndin mælir með samþykkt till. með þeirri breytingu, að í stað orðanna „launþegasamtök landsins“ komi „aðila vinnumarkaðarins“.

Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru Jón G. Sólnes og Steingrímur Hermannsson.