13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4035 í B-deild Alþingistíðinda. (3258)

346. mál, utanríkismál 1975

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Það er sjálfsagt að þakka hæstv. utanrrh. fyrir skýrslu þá um utanríkismál er hann flutti þingheimi síðdegis í dag. Jafnframt er skylt að þakka honum gott samstarf við utanrmn. og alla samvinnu. Í þingsköpum segir að til utanrmn. skuli vísað utanríkismálum. Utanrmn. starfar einnig milli þinga og er ríkisstj. til ráðuneytis um meiri háttar utanríkismál, enda skal ríkisstj. ávallt bera undir hana slík mál, jafnt milli þinga sem á þingtíma. — Umr. um utanríkismál eru að sjálfsögðu mjög gagnlegar enda eru þau veigamikill þáttur í lífi og starfi hverrar sjálfstæðrar þjóðar. En það er ekki á hverjum degi sem þm. gefa sér tíma til umr. af þessu tagi Mikill tími fer löngum í efnahagsmálaþras, ekki síst þegar illa árar og á móti blæs. Þetta er eðlilegt þar sem stefna Íslands í alþjóðamálum verður jafnan að vera við það miðuð að tryggja efnahagslegt fullveldi landsins því að efnalegt sjálfstæði tryggir hið stjórnarfarslega fullveldi og er í raun alger forsenda þess. Í þingsköpum segir enn fremur að nm. í utanrmn. séu bundnir þagnarskyldu um þá vitneskju sem þeir fá í n., er formaður eða ráðh. kveður svo á. Þetta ákvæði ætti að geta stuðlað að meiri trúnaði milli utanrrh. og nm. en oft á tíðum hefur viðgengist, svo sem hv. 3. þm. Reykn. gerði nokkuð að umtalsefni í ræðu sinni hér áðan, þegar hann benti á að æskilegt væri að málum yrði þann veg skipað að utanrmn. yrði nokkurs konar tengiliður milli löggjafar- og framkvæmdavalds. Ég tek undir þessi orð, en bendi jafnframt á, að sérhverri fullvalda þjóð er einkar nauðsynlegt að marka meginatriði utanríkisstefnu sinnar þannig að sem flestir landsmenn geti í þeim efnum staðið einhuga saman út á við sem einn maður gagnvart öðrum þjóðlöndum.

Það hefur oft verið á þetta bent, að umr. um utanríkismál þurfi að reyna að lyfta nokkuð upp yfir hið þraskennda þóf dægurmála og návígi efnahags- og innanríkismála. Sannleikurinn er og sá að margar þjóðir, sem búa að langri reynslu í meðferð utanríkismála, fylgja lítt breyttri stefnu, þó að mismunandi stjórnmálaflokkar skiptist á um forustu í ríkisstjórn. Þannig skapaðist ákveðin festa í utanríkisstefnu viðkomandi lands. Þessi stefna getur, þegar best lætur, orðið svo vel mótuð og markviss að sú þjóð, sem henni fylgir, öðlist viðurkenndan rétt til frelsis og fullveldis í augum annarra þjóða. Slík viðurkenning léttir þann róður sem í raun og veru verður að þreyta dag hvern til þess að gæta fengins fjár og þeirra verðmæta sem aflast hafa og varðveita skal Ég held að okkur íslendingum, sem erum að fást við stjórnmál, sé alveg nauðsynlegt að hafa þetta hugfast. Orð hv. 3. þm. Reykn. áðan ættu að geta gefið nokkrar vonir í þessa átt, þegar hann ræddi um að utanrmn. þyrfti að koma oftar saman, hún þyrfti að hafa meira frumkvæði í málum, gefa sér rýmri tíma til að starfa allt árið um kring o. s frv. Allt er þetta góðra gjalda vert ef hugur fylgir máli og athafnir orðum.

Skýrsla hæstv. utanrrh., sem hann las yfir þm. í dag, er allmikið rit, upp á 27 bls., og kemur viða við. Sjálfsagt má eitt og annað að henni finna, ef hún er lesin með gagnrýni og nákvæmni, og enn fleira um hana ræða þar sem hún er fyrst og fremst yfirlit yfir mörg hin stærstu mál sem við er að fást um þessar mundir. Það er því hvorki tími né aðstæður til að ræða hana í einstökum atriðum á þessum kvöldfundi né heldur víkja að ýmsu efni sem komið hefur fram í löngu máli margra ræðumanna sem lagt hafa út af greinargerð ráðh. með ýmsum hætti. Sumir ræðumanna hafa þóst kenna þar ákveðna tóntegund, dúr eða moll, sem lætur þeim miður þægilega í eyrum að því er virðist. Að mínum dómi er skýrslan hófsamleg þótt alltaf megi um það deila hvort eyða hefði átt fleiri eða færri blaðsíðum í skrif um ákveðin efni.

Við íslendingar verðum að hafa vakandi auga á þróun alþjóðamála og öryggi heimsbyggðarinnar. Víða eru viðkvæm vandamál á döfinni sem virðast óleysanleg með öllu. En viðleitni þjóðanna til friðsamlegrar sambúðar heldur áfram. Sameinuðu þjóðirnar hafa nú senn starfað í 30 ár, þær hafa háð sitt 30 ára stríð, ef svo má segja, með misjöfnum árangri og við harða gagnrýni oft á tíðum. Það hefur oft andað kalt og hvasst um háhýsið á bökkum Austurár í New York. Samt heldur viðleitnin áfram og þjóðum undir merki Sameinuðu þjóðanna fjölgar. Aldarfjórðungur er nú liðinn frá stofnun Atlantshafsbandalagsins og hafa aðildarríki þess enn á ný lýst yfir stuðningi sínum við þau markmið og þær hugsjónir sem það samstarf byggist á. Norræn samvinna skipar nú sem áður háan sess í samskiptum okkar við önnur lönd, segir í skýrslu utanrrh., og er það vel. Þátttaka Íslands í Evrópuráði og samstarf Evrópuríkja er með svipuðum hætti og verið hefur.

Um hafréttarmál, fiskveiðilögsögu og viðskiptamál er allmikið rætt í skýrslu ráðherra, svo sem eðlilegt er, svo og um öryggis- og varnarmál að nokkru. Verður ekki nánar út í þessi málefni farið í þessum fáu orðum. Á hitt skal bent að lokum að íslendingar vilja eiga frið við allar þjóðir, frið um alla veröld eins og eitt sinn áður var sagt. Þeir þurfa að eiga góð skipti við margar þjóðir, smáar og stórar, víðs vegar um heim. Þeir verða hvarvetna að koma fram af fullri einurð og festu og miða öll sín störf við að styrkja og varðveita efnalegt og andlegt frelsi og fullveldi þjóðarinnar.