13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4048 í B-deild Alþingistíðinda. (3267)

50. mál, virkjun Suður-Fossár á Rauðasandi í Vestur-Barðastrandasýslu

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Herra forseti. Ég kem hér í ræðustólinn til þess að þakka hv. síðasta ræðumanni, form. fjvn., og fjvn. í heild fyrir jákvæða afgreiðslu á þessu máli. Hér er um þýðingarmikið mál að ræða fyrir Vestfirði. Ég hef hér oftar en einu sinni í þessu sambandi rætt raforkumál Vestfjarða, framtíðarþörf og möguleika á virkjunum til að mæta þeirri þörf, sem Vestfirðir munu hafa fyrir raforku í framtíðinni.

Till. sú, sem hér um ræðir, gerir ekki ráð fyrir stórri virkjun, það er talað um 2 mw. virkjun, og þessi virkjun svarar ekki miklu af framtíðarþörf Vestfjarða fyrir raforku. En samt sem áður er þessi virkjun þýðingarmikil í raforkumálum Vestfjarða. Henni er ætlað að framleiða orku sem er meiri en orkunotkun sú sem nú á sér stað á rafveitusvæði Vestfjarða sunnan Arnarfjarðar, og hún á að framleiða orku sem nemur af þeirri raforkuframleiðslu sem í dag á sér stað á orkusvæði Vestfjarða. Af þessu má nokkuð marka hversu þýðingarmikið mál þetta er þó að hér sé aðeins um lítið mál að ræða þegar við höfum í huga framtíðarþörf Vestfjarða í þessum efnum.