13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4051 í B-deild Alþingistíðinda. (3272)

215. mál, hafnaáætlun 1975-1978

Albert Guðmundsson:

Herra forseti. Ég leyfði mér að benda á það við fyrri umr. um þetta mál, till. til þál. um hafnaáætlun fyrir árið 1975–1978, að ekki væri tekið tillit til þarfa Reykjavíkurhafnar. Um þetta spunnust nokkrar umr. og ég hafði nú ætlað mér að láta það nægja hér úr ræðustól að lýsa furðu minni á málflutningi ... (Gripið fram í.) Nei, ekki var það nú 9. landsk. í þetta sinn, en það er best ég geri það í leiðinni vegna þess að hún er fyrrv. borgarfulltrúi í Reykjavík og á að vita betur þarfir Reykjavíkur og Reykjavíkurhafnar heldur en flestir aðrir hér inni. En ég held að ég megi segja að það sé 5. þm Vestf., og það út af fyrir sig er furðulegt. Það kom fram í hans málflutningi þegar hann beinlínis öskraði hér í míkrafóninn að Reykjavík ætti hvorki skilið að fá nokkurt framlag á fjárl. og kannske því síður og síst af öllu Reykjavíkurhöfn. Ég skil ekki þennan málflutning. Ég held að Reykjavík og reykvíkingar séu reiðubúnir til þess að hlaupa undir bagga með hverjum þeim stað á landinu sem á þarf að halda, en að sjálfsögðu ætlast Reykjavík ekki til þess að það sé svo hart að henni gengið að hún standi einungis eftir með fyrirtæki, sem einu sinni voru fjárhagslega sterk, gátu áður fyrr staðið undir sér bæði rekstrarlega og svo líka undir nýbyggingu, en séu nú allt að því gjaldþrota. En þannig hafa málin þróast á undanförnum árum. Og ég leyfi mér, herra forseti, að endurtaka það sem ég sagði hér úr ræðustól síðast, að það er ekki bara að Reykjavíkurhöfn eða Rafmagnsveita Reykjavíkur, svo að við förum svolítið út fyrir hafnamál, hafi étið upp sína fyrri sjóði, hafi notað að fullu sitt lánstraust og fengið fyrirmæli frá ríkisstj., að vísu fyrrv. ríkisstj., ég skal ekki segja um það hvort Reykjavíkurhöfn hefur fengið neitun fyrir erlendri lántöku að þessu sinni, eins og kom fram hjá hv. 9. dandsk., heldur beinlínis verið neydd til að taka erlend rekstrarlán í staðinn fyrir að fá gjaldskrárhækkun á réttum tíma og þar með gert þörfina í dag meiri fyrir hærri gjaldskrárhækkanir en eðlilegt er, vegna þess að í dag þurfa gjaldskrárhækkanir að standa undir gengismun á þessum erlendu lánum, sem við vildum ekki taka, en urðum að taka að viðbættum vöxtum að sjálfsögðu. Það er þetta sem ég er að benda á. Rekstur Reykjavíkurhafnar í dag leyfir ekki að taka erlend lán þó að við fengjum þau, vegna þess að rekstur á þeim mannvirkjum, sem Reykjavíkurhöfn er talin eiga og eru metin á 4–5 milljarða í dag, skilaði arði um 18 millj. kr., eins og ég upplýsti fyrir nokkrum dögum héðan úr þessum ræðustól, og á þá eftir að taka með í reikninginn launahækkanir núna síðast. Hvað verður eftir 1. júní veit enginn. Á sama tíma eru hafnarmannvirki í mjög slæmu ásigkomulagi — allt þetta upplýsti ég hér fyrir nokkrum dögum — og má segja í sumum tilfellum hættulegu. Ég verð að harma það sjónarmið, sem hefur komið hér fram hjá hv. 5. þm. Vestf., að Reykjavík eigi hreint ekkert skilið. Ég trúi því ekki að hann hafi meint það, heldur frekar að hann hafi sagt meira en hann ætlaði sér að segja. Ég vil fullyrða að hugur reykvíkinga til annarra landsbyggða er allt annar og þveröfugur við það sem virðist koma fram hjá þeim hv. þm. í garð reykvíkinga.

Að sjálfsögðu sæmir það kannske ekki Reykjavík að kvarta. Reykjavík er ekki að kvarta. Ég er að benda á að reykvíkingar eru hluti af þjóðinni og Reykjavík er hluti af landinu og við erum að deila á fjárl. út fé ríkisins sem að mestu leyti er frá innheimtu í Reykjavík og hér á Suðurlandinu, við skulum vera alveg sammála um það. Það hljóta allir að vita. En við erum ekki að fara fram á eðlilegan prósentuhlut, miðað við það sem hér er innheimt, langt frá því. Við erum bara að benda á að við þurfum líka einhvern skerf af fjárl. Og nú er verið að gera áætlanir sem ná fram til 1978. En við vitum að mannvirki hér liggja undir skemmdum og tekjurýrnun er þetta mikil vegna þess að við höfum ekki fengið heimild ríkisstj. til eðlilegra gjaldskrárhækkana á eðlilegum tíma, þegar sótt hefur verið um. Þá erum við að benda á að fyrirtæki standa ekki lengur undir nauðsynlegasta viðhaldi, hvað þá nýbyggingum. Og á meðan reksturinn er öfugur, þá þýðir ekkert að bæta erlendum lánum á hann, jafnvel þótt þau fengjust. Það hlýtur hver og einn að sjá. En hitt er svo annað mál, ég er ekkert viss um að allir staðir eða jafnvel þó að við hugsuðum okkur bara einn stað í hverjum landshluta vildu hafa innflutningshöfn. Ég efast stórlega um að þau vildu það, Það hefur mikinn aukakostnað í för með sér. Það er ekki sama hvort varan er flutt í stórum stíl á einn stað eða hvort hún er flutt í smáskömmtum út í önnur byggðarlög. Verðið fer eftir magninu sem flutt er á hvern stað, svo að ég giska á að það væri hagkvæmara þjóðhagslega að flytja miklar vörubirgðir á sama stað og dreifa þeim svo innanlands. Ég held að það hljóti að vera.

En ég vil sem sagt ítreka það að ég harma ef það er almennur þankagangur til Reykjavíkur sem kom hér fram hjá hv. 5. þm. Vestf. Ég vona að svo sé ekki. Ef svo er, þá held ég að þm. Reykv. verði að taka upp baráttu á Alþ. fyrir Reykjavík.