13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4055 í B-deild Alþingistíðinda. (3275)
215. mál, hafnaáætlun 1975-1978
Gunnlaugur Finnsson:
Herra forseti. Ég skal nú ekki tefja þessar umr. mikið og ekki gera Reykjavíkurhöfn að verulegu umtalsefni. Það gera sér allir grein fyrir því að Reykjavikurhöfn er ein af tveimur höfnum í landinu, sem hefur hingað til staðið undir sér, vegna þess að þar hefur aðalinnflutningurinn farið fram og rekstur þeirrar hafnar er ekkert sambærilegur við aðrar hafnir í landinu.
En það var annað sem olli því, að ég bað hér um orðið. Það voru orð hv. ræðumanns varðandi hlut Reykjavíkurborgar í fjárveitingum og hversu mjög hallaðist á um fjárveitingar til Reykjavíkurborgar annars vegar og þau skattgjöld sem Reykjavík og Suðurland og ef við teljum Reykjanes með greiddu til ríkisins. Það gera sér allir ljóst að ef við ætlum að líta á þessa þætti eina, þá er hlutur Reykjavíkurborgar slakur. En ef það hefur alltaf verið níðst svo á höfuðborginni um fjárveitingar af hálfu ríkisvaldsins áratug eftir áratug, hvernig getur þá staðið á því að í dag horfum við á það, að hlutur Reykjavíkur og þessa svæðis hér hefur orðið slíkur varðandi þá verðmætasköpun sem hefur átt sér stað í landinu á undanförnum áratugum? Ég vil endilega mælast til þess að þeir, sem vekja nú upp andstöðu við eðlilegar skiptingar, þeir hugleiddu að það er önnur skipting en eingöngu sú sem fer eftir fjárlögum. Ég vildi mjög eindregið óska eftir því, að það væri reynt að lita á þessa mynd í heild.
Sannleikurinn er sá að á undanförnum árum, í þessu verðbólgunnar landi, hefur þetta svæði hér verið einn höfuðverðbólguvaldur í landinu, og þar sem þenslan hefur verið mest. Þangað hefur auðvitað straumurinn leitað. Þess vegna hefur fjármagnið leitað hingað eftir öðrum leiðum en eingöngu í gegnum fjárveitingar ríkisins, og það er verulegt atriði líka. Þess vegna er það að ef við lítum á þessa mynd í heild, allan þann straum einkafjármagns sem hefur runnið eftir ótal farvegum, þá hefur fjármagnið hnappast saman hér. Og það er ekki fyrr en á síðustu árum, að þegar tekst að skapa eftirspurn úti um landið, að þjóðfélagið virðist ætla að riða til falls að mati sumra manna.
Ég vil eindregið óska eftir því þegar menn vekja upp harðnandi andstöðu gegn því sem hefur verið talin byggðastefna, að þeir séu þá jafnframt fúsir til þess að meta þessa hluti eftir þessum sjónarmiðum í heild, en ekki eingöngu eftir skatttekjum ríkisins af þegnunum á viðkomandi stað. Þetta var það eina sem ég vildi bæta við hér.