27.11.1974
Neðri deild: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 440 í B-deild Alþingistíðinda. (328)

63. mál, landshöfn í Rifi á Snæfellsnesi

Flm. (Benedikt Gröndal):

Virðulegi forseti. Hér á landi eru þrjár landshafnir og gilda sérstök lög um hverja þeirra. Þegar þessi lög eru borin saman kemur m.a. í ljós að ekkert samræmi er í því hvernig höfnum þessum er stjórnað. Í gildandi l. um landshöfnina í Rifi segir í 4. gr. að í stjórn hafnarinnar eigi sæti 5 menn sem ráðh. skipar til fjögurra ára í senn. Í l. um landshöfnina í Keflavíkurkaupstað og Njarðvíkurhreppi segir hins vegar að stjórn hennar skuli skipa 5 menn og eru 3 kjörnir af Alþ., einn af bæjarstjórn Keflavíkur og einn af hreppsnefnd Njarðvíkurhrepps, en ráðh. skipar formann úr hópi hafnarstjórnarmanna. Loks segir í l. um landshöfnina í Þorlákshöfn að þar skuli vera 7 menn í stjórn og jafnmargir varamenn, allir kosnir af Sþ. til fjögurra ára í senn. Ráðh. skipar formann úr hópi þeirra.

Frv. það, sem ég hef leyft mér að flytja á þskj. 66, er þess efnis að breytt er um stjórnartilhögun hafnarinnar í Rifi, í stað þess að ráðh. tilnefni alla 5 menn í hafnarstjórnina skuli Alþ. kjósa 3, en viðkomandi hreppur, þ.e. Neshreppur utan Ennis, skuli kjósa tvo og ráðh. síðan skipa formann. M.ö.o.: Þetta er fært til samræmis við þá reglu sem gildir um landshöfnina í Keflavík og Njarðvík.

Það er augljóst að mjög náið og gott samstarf verður að takast milli landshafnanna og þeirra sveitarfélaga sem þær eru í. Því miður hefur þetta ekki tekist nógu vel milli hafnarinnar í Rifi og hreppsins, Neshrepps utan Ennis, eða Hellissands. Það er tilgangurinn með þessu frv. að gera tilraun til þess að bæta úr þessu.

Landshöfnin í Rifi er að því leyti til sérstæð að hún ræður yfir mjög miklu landi, mun meira en þörf er á til hafnargerðarinnar og nauðsynlegustu aðstöðu við höfnina. T.d. hefur risið í þessari landareign íbúðahverfi, og má segja að húsin þar séu bæði á vegum hafnaryfirvaldanna og hreppsins og virðist þó eðlilegra að hrein íbúðahverfi ættu að vera eingöngu á vegum hreppsins.

Þá hefur það gerst að hafnaryfirvöld hafa látið flugfélagi í té land til að gera nýjan flugvöll án þess að hafa nokkurt samband um það mál við hreppsnefndina. Ég vil taka það fram, að ég tel framtak flugfélagsins í sjálfu sér vera lofsvert. Þessi flugvöllur liggur á góðum stað milli tveggja byggðakjarna. Að vísu er annar flugvöllur til sem er rétt hinum megin við Hellissand. En það er ekki gerð flugvallarins út af fyrir sig sem ég gagnrýni, heldur sú meðferð málsins að ekki hafi verið við hreppsnefndina rætt um þetta mál. Er það harla skrýtið ef hægt er að byggja heila flugvelli án þess að tala við næstu hreppsyfirvöld.

Ég get ekki komið auga á aðra greiðari leið til að bæta sambúð landshafnarinnar og hreppsfélags en að gefa hreppsnefndinni kost á að kjósa tvo menn í hafnarstjórn. Fordæmi fyrir slíkri skipan er þegar varðandi landshöfnina í Keflavík og Njarðvík og ég tel eðlilegt að hafa þá sama hátt á og láta Alþ. kjósa þrjá.

Herra forseti. Ég legg til að frv. verði vísað til 2. umr. og samgn.