13.05.1975
Sameinað þing: 78. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4057 í B-deild Alþingistíðinda. (3282)

131. mál, rannsóknir á snjóflóðum og skriðuföllum

Frsm. (Ellert B. Schram):

Herra, forseti. Till. til þál. um rannsóknir á snjóflóðum og skriðuföllum er flutt af hv. þm. Tómasi Árnasyni og gerir till. ráð fyrir því, að ríkisstj. láti fara fram athugun og rannsóknir á snjóflóðum og skriðuföllum. Þessari till. var vísað til hv. allshn. og telur n. sjálfsagt að slík athugun fari fram og þarf ekki að orðlengja um það með hliðsjón af þeim náttúruhamförum og slysum sem átt hafa sér stað á s.l. árum. N. leggur því til að þessi till. verði samþ. með þeirri breytingu að niður falli úr 2. málsgr. till. orðin „eðli þeirra og orsökum“ og hljóði þá málsgr. þannig: „Áhersla verði lögð á gagnasöfnun og rannsóknir á þessum náttúrufyrirbærum, enn fremur hvort unnt sé að sjá fyrir og hindra snjóflóð og skriðuföll og hvaða vörnum og viðvörunum verði við komið. Ríkisstj. leggi fyrir Alþ. niðurstöðu þessara athugana ásamt till. til úrbóta:

N. mælir einróma með samþykkt þessarar till. með þessari breytingu.