27.11.1974
Neðri deild: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (331)
63. mál, landshöfn í Rifi á Snæfellsnesi
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Ég skal ekki vera að ergja hv. 2. landsk. þm., Benedikt Gröndal, enda sýnist mér hann ekki vera í þeim búningi að ástæða sé til að vera að gera það. Ég hef enga löngun til þess að gera að gamni mínu við menn nema hæfilega mikið og þá eiga þeir líka að taka því. Hitt verð ég að segja, að þetta frv. markar enga stefnu. Það er jafnmikið ósamræmi í þessu eftir sem áður. Þorlákshöfn er með allt aðra skipan á málum. Ef á að gera hér breytingu á, þá á hún að vera ein og hin sama.
Það, að flokksmenn hans vestra hafi beðið hann um að sjá um að það sætu engir flokksmenn þeirra í Rifshafnarnefnd, er þeirra mál, en ekki mitt, og ég ætla ekkert að fara að eiga við að saka þá um þá hluti. Hitt verð ég að endurtaka, að ég hef enga löngun til þess að koma Pétri Péturssyni út úr stjórn þessarar hafnar, vegna þess að hann hefur unnið þar gott verk. Og ég er ekki búinn að sjá að þeir alþfl.-menn mundu skipa þar annan betri. Það getur alveg eins verið eðlilegur háttur að Alþ. kjósi alla stjórnina, ef hún er 7 manna, eins og það sem er í frv., vegna þess að ríkið leggur fram alla þá fjármuni sem til hafnargerðarinnar fara, sem er öfugt við það sem er um aðrar hafnir. Þess vegna er ekkert óeðlilegt þó að Alþ. kysi þá, enda hefur reyndin orðið sú að Alþ. hefur kosið í þetta heimamenn þótt kosningin hafi farið fram hér.
Ég skal svo ekki vera að ergja hv. þm. út af þessu.. En að það sé einhver myndarskapur yfir þessu frv., — ja, drottinn minn dýri, hvernig verða þá þau ómyndarlegu?