27.11.1974
Neðri deild: 12. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 445 í B-deild Alþingistíðinda. (332)
63. mál, landshöfn í Rifi á Snæfellsnesi
Flm. (Benedikt Gröndal):
Ég þakka hæstv. forseta, en ég vil aðeins benda á að þetta frv. er aðeins um eina af þremur landshöfnum og það er í fullu samræmi við aðra höfn, þannig að það væri þá komið samræmi á milli þeirra tveggja.
Ég hef aldrei haldið því fram að þetta sé stórt mál, en ég er fullkomlega reiðubúinn til þess að ræða við ráðh. um það ef hann vill framkvæma hugsjón sína um að setja ein lög um landshafnir. Það þarf ekki að blanda mannanöfnum inn í það. Ég hef ekkert út á þá einstaklinga að setja sem hafa verið í Rifshafnarstjórn. En það er athyglisvert að ráðh., sem fer með þessi mál. hefur ekki sagt eitt einasta orð um þau ágreiningsefni sem ég nefndi, t.d. að landshafnarstjórn skuli úthluta jörðum undir flugvelli.