14.05.1975
Efri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4114 í B-deild Alþingistíðinda. (3374)
15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja meðferð þessa máls hér í þingi með langri ræðu eða fara að tefja störf hæstv. þd. þar sem mér skilst að hér hafi átt að reyna að hraða störfum og ekki afgr. nú á síðustu tímum þingsins nema hið allra nauðsynlegasta.
Eins og kemur fram í nál. var ég fjarverandi afgreiðslu þessa máls sem stafar af því að ég hafði ráðstafað tíma mínum á annan fund og gat því ekki mætt á þeim fundi þar sem þetta mál var tekið til afgreiðslu. Ég get tekið það fram aðeins að þegar þetta mál var hér í hv. d. til 1. umr., þá gerði ég grein fyrir skoðun minni til þessa máls. Ég lýsti áhuga mínum á almennri vegalagningu hjá þjóðinni mikilli nauðsyn slíkra framkvæmda, en lýsti jafnframt áhyggjum mínum og andstöðu við þá stefnu sem felst í því að afla í síauknum mæli fjár til þessara framkvæmda og svo margra annarra með hinum svokölluðu verðsveifluskuldabréfum.
Það kemur fram í nál. virðulegrar fjh.- og viðskn. að n. hefur athugað frv. og rætt það á nokkrum fundum. Umsagnir bárust frá Seðlabanka Íslands, Þjóðhagsstofnun og viðskiptabönkunum. Eftir þeim upplýsingum, sem ég hef reynt að afla mér í sambandi við þessar umsagnir, þá held ég að allar þessar umsagnir hafi verið á einn veg. Þær voru neikvæðar, þær mæltu gegn þessari fjáröflunaraðferð og í þeim fólst, að ég hygg, öllum undantekningarlaust mjög alvarleg aðvörun frá þeim aðilum, sem leitað var til, um að komið væri út á ystu nöf þess sem leyfilegt væri að fara í þessum málum án þess að beinlínis hættuástand skapaðist. Ég verð að segja það, að ég átel að umsagnir eins og þessar og skoðanir sem felast í slíkum umsögnum skuli hvergi koma fram í nál. eins og þessu þar sem jafnveigamikið mál er á ferðinni.
Ég þarf ekki að vera að ítreka það, að mér stendur stuggur af þeirri þróun sem hefur átt sér stað á undanförnum tímum og fer alltaf sífellt vaxandi, þeirri einokun hins opinbera á því að geta fjármagnað framkvæmdir sínar með því að gefa út verðtryggð skuldabréf. Það er eindregin skoðun mín að þessi mál verði að taka til gagngerðrar endurskoðunar ef ekki á að fara illa fyrir efnahagslífi þjóðarinnar almennt. Ég hef oftlega getið þess arna bæði í ræðu og riti og ummælum hér á hinu háa Alþ. En aðvörunarorð í þessa átt virðast ekki fá hljómgrunn meðal meiri hl. hv. þm. og það virðist því vera eins konar rödd hrópandans í eyðimörkinni að vera að tönglast á slíku. Ég mun því ekki bregða fæti fyrir samþykkt þess frv., sem hér liggur fyrir með tilliti til þess að hér er um mjög þarft mál að vissu leyti að ræða, hinar auknu framkvæmdir í vegagerð þjóðarinnar og mun því taka þann kostinn að sitja hjá við afgreiðslu málsins.