14.05.1975
Efri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4117 í B-deild Alþingistíðinda. (3376)
15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Ég skal reyna að hafa þetta stutt, enda orðið áliðið og eflaust margir sem vilja ræða þetta mál enn þá. Ég verð þó að harma það að þetta mál skuli fyrst núna á allra síðustu dögum alþingis vera að koma hér til 2. umr. Það er orðið æðilangt síðan það var hér til 1. umr. og ég hlýt að harma það að nú skuli það vera komið á dagskrá, sérstaklega vegna þess að það var vitað að þetta var ekki samkomulagsmál eins og það reyndist vera að mestu leyti í Nd., heldur kom það í ljós hér í Ed. strax við 1. umr. að hér voru um þetta frv. mjög skiptar skoðanir. Hefði þurft annaðhvort að reyna að samræma þær sem allra best og jafnvel breyta þá þessu frv. eitthvað eða þá hreinlega að láta það ekki koma meira fram á þessu þingi eins og ég var reyndar farinn að halda og var nærri orðinn viss um.
En í sambandi við þetta mál er rétt að ég taki hér örfá atriði til umr. og geri um leið grein fyrir því hvers vegna ég stend þannig að málinu sem raun ber vitni. Þar hefur ekkert breyst frá því að ég talaði hér við 1. umr. um almennan stuðning minn við þetta mál, enda um samkomulagsatriði að ræða sem ég hélt reyndar að ætti að vera almennt samkomulagsatriði allra þm. eða sem allra flestra, en annað hefur því miður komið í ljós.
Ég sagði við 1. umr. þessa máls, að ég legði mest upp úr því, eins og ég geri reyndar enn, að við allar okkar vegaframkvæmdir miðuðum við fyrst og fremst við það brýnasta verkefni okkar að gera sem víðast góða og akfæra vegi áður en við huguðum að svokölluðum hraðbrautum með varanlegu slitlagi. Ekki það að ég vilji ekki láta vinna að því einnig, en ég hélt einmitt að sú breyting, sem varð á þessu frv. í Nd., hefði átt að fara í þá átt, að a.m.k. hluti af þessu fé rynni ekki beint í hraðbrautir, heldur í aðra vegagerð hraðbrautaframkvæmdunum nauðsynlegri.
Vegáætlunin, sem við höfum nú fyrir framan okkur, lofar ekki góðu í þessum efnum, vægast sagt, eins og hv. þm. Steingrímur Hermannsson rakti í skýrum dæmum áðan, þegar hraðbrautarframkvæmdirnar eru komnar upp í 890 millj. á þessu ári í vegáætlun á móti 440 millj. í þjóðbrautir og landsbrautir eða tæpum þriðjungi allrar upphæðarinnar. Mér sýnist, miðað við það sem við vorum áður búnir að sjá í sambandi við vegáætlunina, að mestur hluti þeirrar upphæðar, sem þar stóð í Norður- og Austurvegur, hafi hreinlega farið í þessar hraðbrautir, ég sé ekki annað, kannske nær allt því að þarna komu viðbótarupphæðir aðrar til sem m.a. við austfirðingar nutum góðs af, enda ekki vanþörf á þar sem fyrri áætlun, Austurlandsáætlun, var svo gjörsamlega óraunhæf og svo fjarri öllu raungildi sem upphaflega till. um vegáætlun bar vitni um. Þó að Austurlandsáætlunin standi nú í dag í 145 millj., þá er það engu að síður staðreynd að ef hún hefði átt að halda framkvæmdagildi miðað við s.l. ár og taka mið af þeim verkefnum sem þar voru, þá hefði hún þurft að vera enn þá hærri, og ef hún hefði átt að standast samanburð við þá till. sem kom fram hér s.l. vor og lögð var fram af þáv. samgrh., þá hygg ég að þessi upphæð hefði ekki átt að vera í dag 145 millj., heldur milli 210 og 215 millj. Það er því ekki verið með þessari hækkun á Austurlandsáætluninni og þeirri kolvitlausu tölu, sem stóð í upphaflegu till., að gera neitt góðverk á okkur þó að þessi tala sé færð til örlítið meiri raunveruleika en hún var í upphaflegu till. þar sem stóðu 75 millj. einar.
Reynslan af hraðbrautunum í þessari nýju vegáætlun lofar sem sagt ekki góðu um það til hvers þessir peningar, sem verða fengnir með þessari sérstöku fjáröflun, fara. Og þó að ég standi vitanlega við áður gert samkomulag um þetta mál sem gert var á milli þm., og ekkert leyndarmál á að vera þm. þeirra kjördæma sem þarna áttu mestra hagsmuna að gæta, þá verð ég einnig að taka undir það að ég hefði talið eðlilegast og réttast, úr því að það kom fram mikil gagnrýni á þessa leið, að reynt hefði verið að sætta þau sjónarmið. Ég viðurkenni fúslega að það er hæpið, svo að ekki sé meira sagt, að skilja eftir viss landssvæði eins útundan og gert er hér og harma að það skyldi ekki geta tekist samkomulag um það. Ég hefði verið reiðubúinn að standa að því þó að það þýddi það að við austfirðingar hefðum fengið eitthvað minna úr þessum 500 millj. sem hér er verið að ræða um.
Ég hef efast æ meira um það hversu rétt þessi fjáröflun er. Ég hef efast æ meira um það hversu rétt væri hér að farið þó að hið stóra verkefni Skeiðarársandurinn væri tekinn á þann hátt. Hann var vitanlega gerður til þess að opna öllum veg um landið, en ekki aðeins fyrir einn einstakan landshluta eins og reyndar heyrðist þó ærið oft. Þetta var sérstakt verkefni og ekki sambærilegt við það sem hér er á ferðinni.
Sem sagt, ég verð að harma það að svona skuli hafa verið unnið að málinu nú eftir að þessi mikli ágreiningur kom í ljós, eftir að það var ljóst að þm. Norðurl. e. og þm. Vestf. voru sáróánægðir yfir þessu og töldu sig réttilega afskipta og þegar það kemur svo í ljós að það, sem við héldum að færi að verulegum hluta í að gera slæma vegi, t.d. í okkar kjördæmi, að góðum eða vel akfærum vegum, það stenst ekki heldur, heldur er hraðbrautastefnan eins ákveðin og mér virðist hún vera þarna í þessari áætlun nú. Mér sýnist fljótt á lítið, ég hef ekki reiknað það nákvæmlega, að 47% af framlögum til nýrra þjóðvega samkv. till., sem við vorum að fá áðan, renni beint til hraðbrauta og þá eflaust með varanlegu slitlagi. Þarna blandast vitanlega hin fræga Borgarfjarðarbrú inn í og sjálfsagt allhressilega, það er sjálfsagt enginn í efa um það.
En sem sagt, ég tel mig hundinn af því samkomulagi, sem ég hef áður gert, og mun þess vegna styðja þetta frv. Ég sný ekki til baka með það þó að ég harmi að það skuli ekki hafa tekist betri og meiri samstaða um þetta mál en raun ber vitni og þessi fjáröflun kunni að vera meira og minna röng.