14.05.1975
Neðri deild: 87. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4168 í B-deild Alþingistíðinda. (3416)
269. mál, mörk lögsagnarumdæma Reykjavíkur og Kópavogs
Flm. (Gunnlaugur Finnsson):
Herra forseti. Félmn. fjallaði um þetta mál á fundi sínum og fékk til viðræðu við sig bæjarstjórann í Kópavogi til þess að skýra í hverju þessi breyting væri fólgin, enda liggur fyrir á fskj. með frv. samþykki bæði fulltrúa Reykjavíkurborgar og fulltrúa Kópavogskaupstaðar um þessa breytingu. N. leggur til að frv. þetta verði samþ.