14.05.1975
Neðri deild: 87. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4168 í B-deild Alþingistíðinda. (3420)

30. mál, Fiskveiðasjóður Íslands

Frsm. (Jón Skaftason):

Herra forseti. Sjútvn. þessarar hv. d, hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á l. nr. 75 13. maí 1966, um Fiskveiðasjóð Íslands. N. varð sammála um að leggja til að frv. yrði vísað til ríkisstj. þar sem hún fékk upplýsingar um að n., sem nú er að endurskoða lög um Fiskveiðasjóð, muni taka upp brtt. við lögin sem er efnislega shlj. því frv. sem þetta nál, er gefið út vegna.