14.05.1975
Neðri deild: 88. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4183 í B-deild Alþingistíðinda. (3434)

241. mál, þingfararkaup alþingismanna

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ég verð að játa það eins og það er að ég varð meira en lítið undrandi þegar ég sá að þetta frv. hafði verið lagt fram sem hér er til umr. Á öndverðum vetri varð nokkurt upphlaup blaðamanna og að undanförnu hefur svo sýnst sem margur í þeim hópi vilji vera Washington Post-blaðamaður í Watergate. En ekki tókst það nú að sinni varðandi alþm. og launakjör þeirra. En undir þetta jarðarmen vilja hv. flm. þessa frv. ganga.

Þetta mál kom upp í því brumi þegar hæst stóð í stönginni í áflogum við þessa þokkapilta og því var vísað til þingflokkanna til athugunar. Það var farið fram á það að þfkn. fengi þetta mál til athugunar, og það var veitt. Þfkn. ræddi þessi mál tvívegis á fundum sínum og samþykkti einróma í bæði skiptin að vísa því allsendis frá að fallast á að slík breyting yrði á gerð sem lagt er til með þessu frv. — einróma og alfarið. Og hvers vegna? Í fyrsta lagi vegna þess að þfkn. áleit að með því nú — einmitt nú — meðan blaðamenn reyndu til hins ýtrasta að færa sönnur á eða skjóta fótum undir þann grun að hið háa Alþ. væri að mismuna sjálfu sér til handa, þá væri síst ástæða til þess að hlaupa til þess að axla af sér þeirri ábyrgð að taka um þetta ákvörðun sjálfir, kjörin, því að langt er um liðið síðan kaupið hefur verið ákveðið af öðrum aðila, — allra síst einmitt þá að hlaupa fyrir horn undan þessari ásókn, — og í hinu fallinu, að það má leiða að því sterk rök að það að fá embættismanni þetta í hendur mundi leiða til þess að stórbæta kjörin, enda gat ég ekki betur fundið en það væri tilgangur hæstv. samgrh. með fylgi sínu við þetta frv. Hann hafði ekki einu sinni efni á að éta nema einu sinni á dag og hann taldi það allt of við nögl skorið að þm., sem eitt sinn var embættismaður, hefði auk þess 30%. Fyrir liggur að embættismenn, sem fara inn fyrir Fúlalæk, hafa í húsnæðiskostnað og uppihaldspeninga meira en alþm. úrskurða sér svo að töluverðum fjárhæðum nemur. Fram á þetta var sýnt í þessum sjónvarpsþætti þar sem hæstv. samgrh. líkaði ekki við blaðamanninn Eið Guðnason, líkaði ekki við hann, sennilega vegna þess að Eiður tapaði þeim fundi af því að hann hafði vondan málstað, og það var í fyrsta skipti sem hann hafði verulega vondan málstað. Að vísu hafði hann ekki góða fylgisveina og hann tapaði líka á þeim.

Hér er frv. til l. um að breyta þeirri hefð, sem verið hefur frá endurreisn Alþ.,Alþ. ákveði sjálft kjör sín. Enginn rökstuðningur er með í grg. þessa frv. Það er hér endalaust prentað upp úr þingfararkaupslögunum og endað svo á því að segja að lögin hljóði eins og þar segir.

„Þá telja flm. þessa frv. eðlilegt að kjaradómi verði falið þetta ákvörðunarvald.“

Það eru endurprentuð lögin öll og af því að þau hljóða svona, þá telja flm. frv. eðlilegt að kjaradómi verði þetta falið, ákvörðunarvaldið. Engin rök eru að þessu leidd, en það kemur fram í máli manna, eins og hv. fyrri flm., hvers vegna hann, hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason, taldi að í umr., sem fram hafa farið síðan þetta blaðamannaupphlaup varð hafi sannast að heppilegra hefði verið að aðrir ákvæðu kjör þm. Hvers vegna hefði það verið heppilegra? Sannaðist eitthvað óheiðarlegt á þm. í þessu dæmi? Reyndust þm. ekki menn til þess að svara fyrir síg þegar þeir mættu fyrir opnum tjöldum? Ef þm. eru ekki þess umkomnir að ráða fyrir þessum málum sjálfir, þá eru þeir ekki þess umkomnir að ráða fyrir þjóðinni allri.

Það, sem með þessu frv. er gert, er að hlaupa til og leggjast á fjóra fætur fyrir framan það sem þessir hv. þm. álíta almenningsálit, af hræðslu við almenningsálit sem þeir ímynda sér að sé með þessum hætti, og biðja um það með þessu frv. að embættismenn beri þá um í mjölsekkjum sínum. Það er lagt til, eins og segir hér í 1. gr., með leyfi hæstv. forseta:

„Launakjör alþingismanna að meðtöldum húsnæðiskostnaði, dvalarkostnaði og ferðakostnaði skuli ákveðin af kjaradómi“ — og svo kemur þessi makalausa viðbót: „að fengnum tillögum þingfararkaupsnefndar.“

Hver er sá sem ætlar að taka sæti í þeirri n., setja niður á blað og senda með náðarsamlegri beiðni til embættismanna um það hvort þeir gætu nú hugsað sér að fallast á þetta til handa þm. sjálfum? Og ef það væri nú að áliti blaðamanna of í lagt, hvernig mundu þá embættismennirnir verja sig eftir úrskurð sinn? Jú, að sjálfsögðu með því að þetta hefðu þm. sjálfir lagt til og þess vegna hefðu þeir neyðst til þess að gera þetta. En ef þeir skyldu nú úrskurða hærra til handa lítillátum þm. — því að hinir lítillátustu yrðu í þeirri þm.- nefnd, það er alveg vist, allra lítillátustu — og þeir mundu úrskurða enn og miklu hærra en þeir þá legðu til, þeir sem þá verða í þfkn., hvað mundi þá verða sagt? Mundi verða talað af blaðamönnum um hógværð þm.? Það yrði kannske nefnt fyrst að þeir væru hræddir og þyrðu ekki að leggja til mannsæmandi laun. En ef það þætti of í lagt, þá yrði ugglaust sagt að þarna væru embættismenn að úrskurða til handa Alþ., að við hefðum sérstakra hagsmuna að gæta í þeim hópi manna.

Hvers vegna er þetta frv. flutt nú? Sannleikur er að Alþ. hafði að meginhluta til tekist að hrinda þessari ásókn sem á hendur þess var gerð og það hélt virðingu sinni. Og það er misskilningur hjá hæstv. samgrh. þegar hann talar um að þm. ættu að hætta að streða við að vilja fá að ákveða um þessi laun. Það hefur enginn beðíð um það og streðar enginn eftir því að taka ákvörðun um þetta. En það er eins og í öðru og fleiru að öll verk eru ekki ánægjuleg þótt vinna þurfi, og ef Alþ. ætlar að halda reisn sinni og virðingu, þá á það ekki að hlaupa undan ásókn blaðamanna, víkja sér undan að taka þær ákvarðanir sem það hefur alltaf gert og það á að vera í stakk búið til þess að standa við sínar gerðir.

Þetta mjölsekkjafrv., sem hér er borið fram, er af þeim hvötum fram borið, það er af hræðsluhvötum fram borið, af hræðslugæðum gert. En það fer ekki hjá því að þeim, sem seildust um hurð til lokunnar að sanna á þm. mismunun sér til handa, þyki að þarna fái þeir þó uppbót á erindisleysu sína því að að hálfu sé með þessu sannað eða játað að þarna hafi eitthvað misjafnt verið gert. Ég veit að það fer ekki fram hjá hinu háa Alþ. að þetta hefur komið í ljós. Ég hef orðið þessa var.

Það var næsta furðuleg ræða sem hæstv. samgrh. hélt, þótt ég geti satt að segja ekki að því gert að mér sýnist, þegar heildin væri tekin, að hans fylgi við þetta frv. lægi aðallega í þeirri von sem hann gerði sér um það að embættismennirnir mundu vera ríflegri í þessum sökum heldur en þfkn. Hann upplýsti að hann hefði átt sæti í þfkn., en verið þar atkvæðalítill og þótt það leiðinleg nefnd. Var það furða þar sem hann gat ekki étið nema einu sinni á dag fyrir þær niðurstöður sem þar urðu, maður með hans holdafar, eins og hann sagði? Og þó var það nú svo að hann var 12 ár sveitarstjóri á fullum launum. En hann er þriðji maðurinn, sem vitað er til, af 60 sem ljær fylgi sitt við þetta makalausa frv.

Hann lagði áherslu á að Alþ. héldi virðingu sinni og þm. væru ekki að troða skóinn hver niður af öðrum. Ég tel alveg undir þetta. En það, sem okkur skilur í milli, er þetta, að ég álít það alveg ranga aðferð til þess að hið háa Alþ. haldi virðingu sinni að alþm. víki sér undan og af hræðslusökum biðji embættismenn ásjár um að taka ákvarðanir sem þeim ber sjálfum að taka, þótt það séu jafnvíðkvæm mál og þeirra eigin laun, þeirra eigin kjör. Dettur einhverjum í hug að embættismenn, svo að maður víki að því, mundu ákveða alþm. lægri laun en mjög mörgum starfshópum þeim sem njóta nú hærri launa en alþm.? Af hverju skyldu alþm. ekki vera í hærri launaflokki eða jafnháum og t.d. ráðuneytisstjórar? Hvar eru rökin fyrir þessu? Á sínum tíma tók þfkn. ákvörðun um og Alþ. sjálft, hvar það vildi skipa sér í flokk. Og enginn getur með neinum rökum fært sönnur á það að þar hafi verið of í lagt. Sannfæring mín stendur til þess að embættismenn teldu að skipan alþm. í launaflokk væri ekki hin rétta miðað við aðrar stéttir sem hljóta hærri laun eftir kjaradómi en alþm. Og hvað skyldu þeir gera varðandi ferðapeninga og uppihaldskostnað? Er líklegt að þeir mundu úrskurða okkur lægra en það sem embættismenn njóta þegar þeir leggja land undir fót í embættiserindum? Er það líklegt? En ef svo er ekki að þeir mundu í neinu mismuna í þeim efnum, þá liggur alveg ljóst fyrir að þetta mundi verulega hækka frá því sem nú er ákveðið. Það liggur alveg ljóst fyrir. Nei, hæstv. samgrh. hefði átt að draga miðann upp úr vasanum sem hann kveðst ekki hafa þorað að gera þar sem hann hefði þá orðið sér til minnkunar, þá hefði hann áreiðanlega getað étið tvisvar á dag.

Það er talað um sjálfdæmi um eigin laun. Alþ. hefur sjálfdæmi um ótal, ótal hluti, miklu, miklu mikilsverðari en að ákveða kjör sín. Hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason margmismælti sig í því þegar hann talaði um laun. Ég veit ekki hvort hann hefur gert það viljandi. Hér er um kjör önnur en laun að tefla. Það er langt um liðið síðan alþm. tóku ákvarðanir um launin sjálf. Þau heyra undir kjaradóm. Að vísu höfum við heimild til þess að sjálfsögðu að setja ný lög sem breyta þessu.

Ég þarf ekki að fara fleiri orðum um þetta. Eftir að það lá ljóst fyrir að þfkn. hafði samþykkt einróma að hafna þessari aðferð, sem lögð var til af hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasyni, og þar sem allir þingflokkar utan einn eiga fulltrúa í þessari n. og þeir tóku að sér að gera grein fyrir afstöðu n. alfarið neitandi í þessum efnum, þá átti ég ekki von á því að Alþ. yrði lítillækkað með frv. gerð eins og þessari hér. Ég vænti þess þó að þetta verði klámhögg eitt, að Alþ. hljóti ekki af því lítillækkun. En söm er þeirra gerð og flumbruháttur sem að þessu standa.