14.05.1975
Efri deild: 92. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4201 í B-deild Alþingistíðinda. (3469)
290. mál, gatnagerðargjald á Akureyri
Flm. (Jón G. Sólnes):
Herra forseti. Frv. þetta er flutt í samráði við þm. Norðurl. e. í Nd. og að beiðni bæjarstjórnar Akureyrar og er í reynd endurskoðun á lögum nr. 66 frá 1917, um gjöld til holræsa og gangstétta á Akureyri, sbr. lög um breyt. á þeim lögum, nr. 45 frá 1970, og lög nr. 87 frá sama ári.
Bundið slitlag var fyrst sett á götur á Akureyri fyrir u.þ.b. 50 árum. Var fyrst í stað einungis lagt bundið slitlag, malbik, á götur í miðbæ Akureyrar og til suðurs frá miðbænum. Við þetta var látið sitja, enda hvergi verulega betra ástand að þessu leyti á þeim árum. Snemma á síðasta áratug urðu algjör þáttaskil í þessum efnum er bifreiðafjöldi landsmanna fór að vaxa margfalt örar en áður. Um það leyti var gerð 10 ára áætlun um varanlega gatnagerð í Reykjavík, 1963. Voru þá gerðar ráðstafanir til að Akureyri gæti fylgt í kjölfar höfuðborgarinnar og keypt tæki til malbiksframleiðslu og malbikunar árin 1964–1966. Framkvæmdir við varanlega gatnagerð fóru nú mjög vaxandi, en þó hvergi nærri í samræmi við möguleg afköst. Hefur skortur á framkvæmdafé valdið þessu, en þó er Akureyri eitt þeirra sveitarfélaga sem hvað best hafa nýtt þá tekjustofna sem lög heimila og gatnagerðargjöld vegna undirbyggingar gatna hafa verið tekin síðan 1967.
Á undanförnum árum hefur Akureyrarbær látið sitja fyrir að ljúka gerð með bundnu slitlagi á götum í miðbæ, á aðalumferðargötum, á götum við meiri háttar atvinnufyrirtæki, skóla og fjölbýlishús. Eftir er að ljúka gerð á meginhluta aðalibúðagatna bæjarins. Ljóst er að útilokað er, ekki síst með tilliti til annarra framkvæmda, að ljúka þessu verkefni á þeim tíma sem almenningur getur sætt sig við, með þeim tekjum sem núgildandi tekjustofnakerfi getur gefið. Þess vegna er það að þetta frv. er borið fram, til þess að hægt verði að afla nauðsynlegs fjármagns til að koma svo miklum framkvæmdahraða á þessi mál að hægt verði að verða við almennum óskum bæjarbúa í sambandi við þessar framkvæmdir.
Lagafrv. þetta fjallar einnig um byggingargjald og holræsagjald þar sem rétt þótti að endurskoða lögin um gjöld til holræsa, gangstétta og varanlegs slitlags á götur á Akureyri, nr. 87 frá 1970, í heild og færa til nútímahorfs.
Herra forseti. Ég legg til að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til afgreiðslu hv. félmn. deildarinnar.