15.05.1975
Efri deild: 93. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4218 í B-deild Alþingistíðinda. (3478)
126. mál, kvikmyndasjóður
Frsm. (Axel Jónsson):
Herra forseti. Kvikmyndagerðarlist er tiltölulega ný listgrein hér á landi og hefur til þessa ekki notið fjárhagslegs stuðnings hins opinbera, og er ég ekki með þessu að gera neinn samanburð í hlutföllum á við aðrar listgreinar. Kvikmyndagerðarlist er hins vegar mjög kostnaðarsöm og læt ég í því sambandi nægja að vísa til þess sem segir í grg. með frv. Í nágrenni okkar hafa þessi mál verið tekin fastari tökum. Hérlendis er hins vegar vaxandi áhugi á þessari listgrein og ég legg áherslu á að ég tel þetta listgrein. Þetta er ein sú listgrein sem nútímaframfarir og tækni hafa gert hvað áhrifamestra allra listgreina í því að ná til fjöldans og á ég þar ekki aðeins við kvikmyndahús, heldur miklu fremur sjónvarpið. Árið 1972 safnaði menntmrn. upplýsingum fyrir milligöngu sendiráða Íslands í Vestur-Evrópu um opinbera fyrirgreiðslu við innlenda kvikmyndagerð í Evrópulöndum og vísa ég einnig til þess sem um það er að finna í grg. með frv.
Má vera að einhvers staðar heyrist raddir um að við þurfum ekki að apa allt eftir öðrum og það þó að um nágranna okkar sé að ræða. Ég tek fram að þessar raddir hef ég ekki heyrt innan veggja hv. Alþ. Þessum röddum, ef einhverjar eru, vil ég svara fyrir fram á þessa leið: 1) Kvikmyndun er vinsælasta og áhrifamesta tjáningarform, skýringar- og upplýsingamiðill sem nútímaþjóðfélög hafa yfir að ráða. Þetta eru ómótmælanlegar staðreyndir. 2) Íslensk náttúra er svo stórbrotin að vissu marki að hún á sér fáar ef nokkrar hliðstæður. 3) Og það er kannske kjarni málsins: íslendingum eru í blóð bornir frábærir tjáningarhæfileikar, það sannar öll okkar saga gegnum aldirnar. Ég er sannfærður um það að þeir, sem leggja fyrir sig kvikmyndagerðarlist, eru þar engir eftirbátar og gætu gegnum þessa listgrein vakið enn frekari athygli á bókmenntum okkar, málaralist, tónlist og fleiri listgreinum auk sérkenna Íslands, íslensku þjóðarinnar í lifi og starfi. Þetta verður aldrei til fjármagns metið.
Málið var lagt fyrir hv. Alþ. á s.l. vetri, náði þá ekki fram að ganga. Það var endurflutt á yfirstandandi þingi og nál. er að finna á þskj. 754 og er svo hljóðandi, með leyfi forseta:
„Nefndin hefur rætt frv. og kynnt sér þær umsagnir sem borist hafa. Nefndin telur tilgang frv. þess verðan að Alþ. setji um þetta lög. Nefndin er hins vegar ekki sammála um fjáröflunarleið til að standa undir þeim kostnaði, sem þessu er samfara, og leggur því til að málinu verði vísað til ríkisstj. í trausti þess að hún semji löggjöf um aðstoð við kvikmyndagerð og leggi fram í upphafi næsta reglulegs Alþingis.“
Undir þetta skrifa allir 7 nm. og 4 af þessum 7 eru flm. umgetins frv.
Ég persónulega vildi fremur ná samstöðu um þessa afgreiðslu málsins en að þurfa að kljúfa nefndina. Menntmn. hv. Ed. hefur ekki klofnað hvað nál. snertir í vetur. Ég vil reyna á það að hæstv. ríkisstj. taki þessar ábendingar hv. menntmn. þessarar hv. d. til greina, en ef ekki, þá skal ekki standa á mér að fylgja því eftir sem hér er um getið, sér í lagi niðurlag nál., meðan ég er formaður þessarar nefndar. Á næsta reglulega Alþ. verður nefndin máske að kjósa annan athafnasamari og duglegri formann til að koma málum nefndarinnar áleiðis.
Herra forseti. Ég vil láta það vera mín síðustu orð að ég treysti því að samþykkt þessarar till., sem í nál. er, verði til þess að á þessum málum verði tekið af festu. Þessi listgrein er þess virði að við íslendingar viðurkennum hana sem einhverja sterkustu nútímalistgrein og styrkjum hana. Hún er dýr í framkvæmd eins og allir vita og á ekki siður en aðrar listgreinar rétt á því að þjóð, sem metur listir jafnmikið og íslendingar, sinni þessum málum.