15.05.1975
Neðri deild: 90. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4256 í B-deild Alþingistíðinda. (3496)
95. mál, vegalög
Landbrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Ég vil að gefnu tilefni frá hv. frsm. n., hv. 4. þm. Vesturl., taka það fram að ég hef þegar ákveðið að vegalögin verði endurskoðuð á þessu ári. Það eru í þeim ýmsar veilur sem hafa gert það að verkum að nauðsyn ber til að gera þetta. Þessar veilur eru m. a. fram komnar vegna breytinga sem gerast sjálfkrafa þegar þjóðbrautum er breytt í hraðbrautir og annað því um líkt sem gerir erfitt að framkvæma lögin. Þau verða því til endurskoðunar á milli þinga. Ég hef hugsað mér að leita eftir því að fá í þetta alþm. ásamt embættismönnum og leita þá eftir því að gefa öllum flokkum kost á að vera með í þeirri endurskoðun.