15.05.1975
Neðri deild: 90. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4258 í B-deild Alþingistíðinda. (3501)
11. mál, launajöfnunarbætur
Frsm. meiri hl. (Ólafur G. Einarsson) :
Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir áliti meiri hl. fjhn.- og viðskn. um frv. til l. um launajöfnunarbætur, bætur almannatrygginga og verðlagsmál. Nál. er á þskj. 702 og standa að því fulltrúar stjórnarflokkanna, en minni hl., hv. þm, Magnús Kjartansson og Gylfi Þ. Gíslason, skila sérstöku áliti, auk þess sem þeir flytja brtt.
Þetta frv. er flutt til staðfestingar á brbl. frá 24. sept. 1974, en verulegar breytingar hafa verið gerðar á frv. í hv. Ed. Fjh.- og viðskn. beggja d. störfuðu saman að því að athuga þetta mál og áttu allmarga fundi með ýmsum aðilum sem veittu nm. upplýsingar. Við 1. umr. hér í hv. d. gerði hæstv. forsrh. grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa á frv. í Ed.) Ég tel ekki þörf á því að fara nánar út í þær breytingar nema sérstakt tilefni gefist til. En ég vil taka það strax fram að niðurfelling 5. gr. brbl. raskar ekki rétti bænda til launajöfnunarbóta. Þetta segi ég vegna þess að um það hefur verið spurt.
Ég get hins vegar ekki annað en bent á þær hækkanir sem frv. gerir ráð fyrir að aldrað fólk og öryrkjar njóti, einkum vegna orða hv. þm. Magnúsar Kjartanssonar við 1. umr. um málið hér í d., en þá sagði hann að níðst væri freklegar á öldruðum og öryrkjum en nokkrum öðrum þegnum. Minna mátti það nú ekki vera. Með ákvæðum 6. og 7. gr. frv. hækkar grunnlífeyrir um 9% hjá þessum hópi manna. Tekjutrygging hækkar um 45.9% hjá einstaklingum og 37% hjá hjónum. Tekjutryggingarmark, eða lágmarkstekjur, verður því samkv. frv. 316600 kr. hjá einstaklingum miðað við 256800 áður, en þetta jafngildir 4900 kr. hækkun á mánuði eða 22.5%. Hjá hjónum verður upphæðin 552700 kr. miðað við 462300 og er hækkunin 7533 kr. á mánuði eða 90400 kr. á ári. Þessi hækkun hefur það í för með sér að kaupmáttur þessara bóta verður mjög svipaður og hann hefur verið á síðustu missirum. Það fer þá nokkuð eftir því, við hvaða ársfjórðung er miðað, t. d. á s. l. ári, en kaupmáttur bótanna hefur verið þessi: 1972 96.4%, 1973 93.5% og 1974 96.7% að meðaltali. Hjá einstaklingum verður hann 95.7% og hjá hjónum 95.1%, en á fyrsta ársfjórðungi 1974 var hann 91.2%. Hér er því ekki verið að níðast á þessum þjóðfélagsþegnum þótt vissulega væri æskilegt að bæturnar væru hærri. Hins vegar bendi ég á að það er nokkuð vafasamt að tala um, hver kaupmáttur þessara bóta er, þegar miðað er við eða borið saman við aðra hópa í þjóðfélaginn vegna þess að neysluvenjur þessa fólks eru áreiðanlega allt aðrar en annarra aldurshópa í þjóðfélaginu.
Hv. þm. Gylfi Þ. Gíslason gagnrýndi við 1. umr. hve lengi hefði dregist að afgreiða þetta mál. Hæstv. forsrh. svaraði þessari gagnrýni þá strax og hef ég þar ekki neinu við að bæta. Ég ítreka aðeins að um mánaðamótin febr.-mars, þegar ætlunin var að afgreiða þetta mál frá þinginu, varð um það samkomulag milli ríkisstj. og aðila vinnumarkaðarins að láta málið bíða vegna þess að samningar voru þá á næsta leiti. Það er því ósanngjarnt að vera að gagnrýna þessa töf.
Þá vil ég leiðrétta það sem fram kom hjá hv. þm. Gylfa Þ. Gíslasyni að sérstök nefnd annist úthlutun launajöfnunarbóta til bænda samkv. 4. gr. Það var svo í drögum að þessari grein, drögum sem rædd voru á nefndarfundum, þá var sérstakri úthlutunarnefnd ætlað þetta hlutverk. En þessari grein var einmitt breytt á grundvelli umræðna sem urðu í n., þannig að verkefnið er samkv. frv. falið Framleiðsluráði landbúnaðarins. Ég skal samt ekki draga úr því að hér er um allflókið kerfi að ræða sem kostar áreiðanlega nokkra vinnu, en ég held þó að það hafi tekist að gera málið eins einfalt og mögulegt var.
Það er nauðsynlegt að gera nokkrar leiðréttingar á frv. frá því sem það er komið frá hv. Ed. Þessar leiðréttingar varða forms- og framkvæmdaatriði. Ég mun nú í sem stystu máli gera grein fyrir þeim. Þessar brtt. eru á þskj. 738 og flm. með mér er hv. þm. Tómas Árnason.
Það er þá fyrst við 1. gr. frv., það er í upphafi 1. tölul., að á eftir orðunum: „Á laun, sem“ komi orðin: hinn 1, október 1974. — Þetta mun hafa fallið niður í vélritun einfaldlega, en það skiptir máli að þessi dagsetning sé í lögunum. Sama gildir um b-lið 1. brtt., að þar hefur þessi sama dagsetning einnig fallið niður og þarf að bætast við.
2. brtt, er einfaldlega leiðrétting, það stendur „helgidagsálags“ í staðinn fyrir: helgidagaálags. 3. brtt. a-liður er aðeins breyting á rithætti sem ég þarf ekki að skýra, b-liðurinn í 3. brtt., þar hefur láðst að fella niður orðið „úthlutunarnefnd“ vegna þeirrar breytingar sem ég greindi frá áðan. „Framleiðsluráð landbúnaðarins“ komi í stað orðsins „úthlutunarnefndar“.
4. brtt. er ekki heldur nein efnisbreyting, það er aðeins breyting á orðalagi þannig að það er fært til íslensks máls, ef svo má segja.
5. brtt. er svo við 7. gr. Þar er um það að ræða að í fyrirsögnum dálka er fellt niður orðið „til“ í þremur fyrstu dálkunum í 7. gr., sem er þar ofaukið, og orðið „frá“ í síðasta dálki. Í e-lið 5. brtt. er aftur um að ræða efnislega breytingu. Það var gert ráð fyrir fjárhæð annarra árstekna lífeyrisþega en lífeyrisalmannatrygginga, þ. e. fyrir einstaklinga eru í dálkinum 1. apríl 45000 kr. og frá 1. júlí 1975 46380 kr., hjá hjónum 81000 kr. og frá 1. júlí 83460 kr. Nefndinni var bent á það að þessum breytingum á þriggja mánaða fresti fylgdi gífurlega mikil vinna hjá Tryggingastofnuninni við að reikna þetta út og talið væri nauðsynlegt að hafa sömu tölu í báðum tilvikum. Þá var um tvennt að velja eða raunar þrennt: að hafa þarna vegið meðaltal af þessum tveimur upphæðum, að hafa lægri upphæðina eða þá hærri. Samkomulag varð um það að hafa hærri upphæðina, þ. e. a. s. 46380 kr. fyrir einstakling frá 1. apríl 1975 og sömu upphæð frá 1. júlí og vegna hjóna 83460 kr. frá 1. apríl eins og frá 1. júlí. Þetta er til nokkurra hagsbóta fyrir þá sem fá þessar bætur, en mun kosta ríkissjóð óverulegar upphæðir, 4 millj. kr. að því er talið er.
6. brtt. er við 11. gr. frv. og er hún eingöngu til einföldunar. Það eru felldir niður nokkrir málsliðir sem mönnum sýnast óþarfir auk þess sem einu orði er breytt. Ég les greinina eins og hún verður þá ef þessi brtt. verður samþykkt: „Fjárfestingarlánasjóðir endurláni það fé, sem þeir fá til ráðstöfunar, með sambærilegum kjörum og þeir sæta sjálfir. Heimilt er að ákveða lánskjör þessara sjóða þannig, að ákvæðið um verðtryggingu eða gengisákvæði nái til ákveðins hluta hvers láns.“
Ég hef þá gert grein fyrir þessum brtt. og áliti meiri hl. fjh.- og viðskn.