15.05.1975
Neðri deild: 90. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4279 í B-deild Alþingistíðinda. (3512)

225. mál, Hússtjórnarkennaraskóli Íslands

Frsm. (Sigurlaug Bjarnadóttir) :

Hæstv. forseti. Menntmn. hefur haft þetta frv. til athugunar. Það er búið að ganga í gegnum langa og ítarlega athugun, fyrst við samningu og síðan við framlagningu tvívegis hér á Alþ. áður, nú síðast í Ed., og varð samstaða um í menntmn. að mæla með frv. eins og það liggur fyrir.