15.05.1975
Neðri deild: 90. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4279 í B-deild Alþingistíðinda. (3514)
226. mál, hússtjórnarskólar
Frsm. (Sigurlaug Bjarnadóttir):
Hæstv. forseti. Þetta frv. hefur verið til athugunar hjá menntmn. og það gegnir nokkuð svipuðu máli og um hitt frv. Bæði þessi frv. eru samin af sömu aðilum.
Mér finnst vert að benda á nokkuð veigamikla breytingu sem varð í meðförum Ed. á þessu máli. Í frv. var kveðið svo á að skólatími skyldi vera 36 vikur, en lagt var til að þetta yrði sveigjanlegra og orðað 28–36 vikur. Einnig féllst menntmn. Nd. á breytingu Ed. í þá átt að inntökuskilayrði skyldu vera skyldunám grunnskóla án lágmarkseinkunnar eins og var í frv.
Það er um veigamikla breytingu að ræða á hússtjórnarnámi í þessu frv., eins og það hefur verið lagt fyrir, og mun valda nokkrum straumhvörfum í þess konar námi. Greinar gagnfræðanáms eru nú felldar inn í húsmæðraskólana eða hússtjórnarskólana sem þeir munu verða kallaðir héðan í frá. Skólarnir verða fyrir bæði kynin. Piltar sem stúlkur geta átt aðgang að þeim og frv. miðast við það að járnið geti orðið sem aðfaranám í aðra framhaldsskóla, sem er mjög mikilvægt. Hingað til hefur hússtjórnarnám ekki veitt ákveðin réttindi til neins skóla nema Húsmæðrakennaraskóla Íslands sem héðan í frá heitir Hússtjórnarkennaraskóli Íslands. Hér er einnig farið út á dálítið sérhæfða braut. Það eru teknar inn vissar og ákveðnar handíðagreinar sem mynda sérstaka handíðadeild. Hins vegar er vefnaður felldur út úr almenna náminu.
Ein breyting, sem mér persónulega finnst orka tvímælis, í meðförum á Alþ. frá upphaflegri gerð frv. er að sérstakur hússtjórnarfulltrúi í menntmrn. er felldur út. Það hefði ekki verið óeðlilegt að á meðan verið er að koma þessu nýja skólaformi á legg hefði verið ákveðinn aðili í rn. sem hefði haft umsjón og eftirlit með framkvæmd laganna.
Ég vil benda á annað nokkuð merkilegt atriði í þessu frv., en það er ákvæði um að húsmæðraskólarnir, eins og þeir eru í dag, megi halda áfram eftir gamla sniðinu ellegar koma undir þessi nýju lög eftir því sem aðstæður eru á hverjum stað. Var nefndin sammála um að það væri eðlilegt og rétt að þarna yrði ekki bein skipun um að taka upp þetta nýja kerfi, en þar sem það þætti henta betur, þá gerir þetta frv. það mögulegt.
Það var samstaða um bæði þessi frv. í menntmn., en einn nm., Svava Jakobsdóttir, var fjarverandi afgreiðslu málsins.