15.05.1975
Sameinað þing: 80. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4281 í B-deild Alþingistíðinda. (3518)
347. mál, skýrsla um Framkvæmdastofnun ríkisins
Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :
Herra forseti. Í 10. gr. l. um Framkvæmdastofnun ríkisins segir, að ríkisstj. skuli gefa Alþ. árlega skýrslu um starfsemi Framkvæmdastofnunar ríkisins. Hér hefur verið útbýtt á þingi skýrslu um starfsemi Framkvæmdastofnunar ríkisins árið 1974. Þessi skýrsla er útdráttur eða meginefni skýrslu stofnunarinnar sjálfrar, en hún mun koma út fyllri með ýmsum töflum og tölulegum upplýsingum og verða send hv. þm.
Ég mun að þessu sinni aðeins láta þessari skýrslu fylgja nokkur orð, og ástæðan til þess, að þau verða ekki fleiri en raun ber vitni, er sú að samkv. stefnuskrá ríkisstj. er ætlunin að endurskoða lög um Framkvæmdastofnun ríkisins og eins og þar er komist að orði: „og í því sambandi mörkuð stefna um það, hvernig haga skuli áætlanagerð og framkvæmdum, m. a. í eftirtöldum greinum: endurnýjun fiskiskipaflotans, endurbætur hraðfrystihúsanna, uppbygging vinnslustöðva landbúnaðarins, þróun iðnaðar, skipan ferðamála, opinberar framkvæmdir, byggðaþróun í samráði við sveitarfélög og samtök þeirra.“
Ríkisstj. hefur þetta mál til meðferðar og ég vonast til þess að í byrjun næsta þings verði lagt fram frv. af hálfu ríkisstj. til efnda á þessu loforði. En með því að. svo er, þá læt ég hér nægja aðeins örfá orð um þetta efni.
Eins og ég gat um er skýrsla sú, sem hv. alþm. hafa í höndum, að meginefni shlj. þeim þætti ársskýrslu stofnunarinnar sem mun fjalla um starfsemi hennar, en ársskýrslunni munu fylgja ýmsar töflur varðandi þjóðarframleiðslu, fjármunamyndun, tekjur, mannfjöldaþróun og mannafla atvinnuvega, fjáröflunar- og útlánaáætlun Framkvæmdasjóðs Íslands og ársreikningar Framkvæmdasjóðs Íslands og Byggðasjóðs, ársreikningar Framkvæmdastofnunarinnar og skrá um lánveitingar og styrki úr Framkvæmdasjóði og Byggðasjóði.
Það er rétt að geta þess sérstaklega að á árinu 1974 voru gerðar veigamiklar breytingar á löggjöfinni um Framkvæmdastofnun ríkisins með setningu l. nr. 54 frá 1974, um Þjóðhagsstofnun og breyting á l. nr. 93 frá 1971, um Framkvæmdastofnun ríkisins. Hagrannsóknadeild var lögð niður og felld úr gildi önnur ákvæði sem snertu starfsemi þeirrar deildar, en Þjóðhagsstofnun sett á stofn.
Frá 1. ágúst 1974 hefur Framkvæmdastofnunin starfað í tveim deildum, áætlanadeild og lánadeild, og mun stjórn Framkvæmdastofnunarinnar hafa haldið 16 stjórnarfundi á árinu 1974. Samþykkt var 441 lánsumsókn úr Byggðasjóði, að upphæð samtals 661.7 millj. kr., og enn fremur lánveitingar úr Framkvæmdasjóði Íslands að upphæð 2 milljarðar 160 millj. kr. Þá var samþykkt fjáröflunar- og útlánaáætlun Framkvæmdasjóðs og afgreidd mörg önnur mál. Þá voru samþykktar rekstraráætlanir og starfsáætlanir fyrir stofnunina. Framkvæmdaráðið hélt nær daglega fundi og vikulega fundi með forstöðumönnum deilda. Við áætlanagerð Framkvæmdasjóðs átti framkvæmdaráð ítarlegar viðræður við bankastjóra Seðlabankans, stjórnarformenn og framkvæmdastjóra helstu fjárfestingarlánasjóða. Framkvæmdaráðsmenn, forstöðumenn deildanna og fleiri starfsmenn sóttu marga fundi og ráðstefnur víðs vegar um landið, efndu til sérstakra funda um áætlanagerð og höfðu náið samband við landshlutasamtök sveitarfélaga. Sú breyting varð á skipan framkvæmdaráðs á árinu, að þeir Bergur Sigurbjörnsson og Guðmundur Vigfússon létu af störfum, en Tómas Árnason var settur áfram til að gegna störfum sem framkvæmdaráðsmaður. Þessi breyting varð 1. des. 1974.
Framkvæmdastofnunin hefur átt gott samstarf, að því er mér er tjáð, við ýmsar ríkisstofnanir, sérstaklega náið samstarf við stofnlánasjóði atvinnuveganna og viðskiptabanka í því skyni að samræma sjónarmið þessara aðila, svo og við Iðnþróunarsjóð, Atvinnuleysistryggingasjóð og ýmsa lífeyrissjóði.
Í skýrslunni kemur fram að í des. 1974 voru samtals 26 starfsmenn starfandi í stofnuninni eða 12 manns í hvorri deild að viðbættum einum framkvæmdaráðsmanni og ritara.
Samkv. sérstöku samkomulagi var sameiginlegur rekstrarreikningur fyrir Framkvæmdastofnun ríkisins og Þjóðhagsstofnun fyrir allt árið 1974. Rekstrarkostnaður beggja stofnananna var 83 133 108 kr. Rekstrarkostnaður Framkvæmdastofnunar ríkisins, eins og hún var eftir að hagrannsóknadeildin var skilin frá, hefði orðið nálægt 54 millj. á ársgrundvelli.
Ég vil svo aðeins, herra forseti, vekja athygli á inngangi þeirrar skýrslu sem hér liggur fyrir, þar sem í honum felst grg. um það vandamál sem leysa verður við lagasetningu og endurskipulagningu varðandi Framkvæmdastofnun ríkisins. Þar er komist svo að orði í inngangskafla:
„Þessi staðreynd, þ. e. skipulag og starfstilhögun áætlanagerðar, er í deiglunni um þessar mundir og gerir það á ýmsan hátt örðugra að ræða hlutverk og framtíð áætlanagerðar nánar en gert hefur verið í fyrri ársskýrslum. Áætlunargerðinni hefur helst staðið fyrir þrifum vöntun á heildstæðum ramma um samanburð og mat á gildi framkvæmda og atvinnurekstrar og ekki hefur síður skort á beint og lifandi samband við töku ákvarðana í þessum efnum. Á þetta ekki síður við um opinberar framkvæmdir og starfsgreinar þær sem eru á vegum einkaaðila. Er mjög tilviljunum háð hvaða framkvæmdir komi til skipulags mats eftir árangri eða arðsemi. Það takmarkaða mat, sem lagt er á framkvæmdir, skortir alla samræmingu og samanburð, ekki aðeins milli framkvæmdagreina, heldur einnig innan sömu greina sem þó lúta sameiginlegri yfirstjórn ráðuneytis eða annarrar hliðstæðrar stofnunar. Við þessi skilyrði stefnumótunar og ákvörðunartöku er í reynd mjög treyst á atfylgi og þrýsting atvinnugreina, landshluta og annarra hagsmunaaðila til að fá málum sínum framgengt, einkum fyrir atbeina þm. og annarra áhrifaaðila. Með því móti er að sjálfsögðu engin trygging fyrir að hagstæðustu framkvæmdirnar gangi fyrir. Kraftar stjórnkerfisins fara í langdregin fundahöld til að vega og meta styrk þess atfylgis sem hvert mál nýtur og vandséð hvenær og hvernig niðurstaða er fengin. Margt í þessum starfsaðferðum er beinlínis andstæða allrar áætlunargerðar, svo sem þegar fleiri framkvæmdir til sömu nota eru í undirbúningi til framkvæmda samtímis eða þegar stórfelldar framkvæmdir eða tækjakaup einkaaðila koma til afgreiðslu pólitískra yfirvalda án skipulegs mats á væntanlegum árangri fjárfestingarinnar af hálfu stofnlánasjóða eða annarra faglegra aðila.“
Ég vildi gjarnan vitna til lengri kafla í þessum inngangi, en með því að hv. þm. hafa þessa skýrslu í höndum, sé ég ekki ástæðu til þess að gera það. Ég tel eðlilegt að slík skýrsla sem þessi sé flutt Alþ. og biðst velvirðingar á því að það er ekki gert fyrr eða ítarlegar, en vil mjög gjarnan leggja því lið að svo verði gert í framtíðinni.