15.05.1975
Sameinað þing: 80. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4304 í B-deild Alþingistíðinda. (3530)

216. mál, vegáætlun 1974-1977

Helgi F. Seljan:

Herra forseti. Það er lítt fýsilegt að ræða þetta plagg sem nú liggur fyrir, þó að út yfir tæki ef farið væri út í að rekja vinnubrögðin og þann hraðbrautarhraða sem einkennt hefur þetta mál nú síðustu daga eftir væran svefn og langan vetrardúr, sem er orðinn slíkur að menn efuðu mjög hvort nokkur vegáætlun kæmi yfirleitt fram sem ályktun Alþingis. Aðrir kunna betur að lýsa vinnubrögðum almennt hér á Alþ., en um þau er ég að tala, en ekki vinnubrögð þeirrar stofnunar sem ævinlega hefur staðið vel að þessum málum, Vegagerðar ríkisins.

En mig langar að rekja eitt táknrænt dæmi frá umdæmisverkfræðingnum að austan, sem er hinn ágætasti maður og starfshæfur vel. Það kom sér enda mætavel, því að nú þurfti svo sannarlega að hafa snör handtök. Fyrir síðustu helgi var honum greint frá að nú hefði hann aðeins viku til stefnu til sinnar endanlegu tillögugerðar til okkar þm. Þegar suður kom var honum greint frá því að öllu skyldi lokið á einum degi. Og síðast fékk hann svo tilskipan um afgreiðslu á einum formiðdegi, sem þó varð ekki svo snarlega þar sem þm. vildu þó fá að berja þessar tölur augum rétt augnablik áður en allt væri fullkomnað og innsiglað. Það er sem sagt munur að hafa styrka og sterka stjórn á hlutunum og vita upp á hár um stefnu og störf, eins og núv. hæstv. ríkisstj. er lýsandi dæmi um. Þar bregst hvergi hin vísa föðurforsjón og ávöxt hennar hafa menn nú fyrir augum í þessu plaggi og tjáir lítt að orðlengja um það eða tölur þess.

Sú varð einnig raunin um okkur Austurlandsþm., ég held alla undantekningarlaust. Við lítum á tölurnar, hvor á annan og síðan var uppgjöfin ein ráðandi og öllu kyngt, með þó mismunandi góðri lyst að vonum, því að viðbrögðin réðust nokkuð af tilfinningunum í garð föðurforsjónarinnar, þar sem sumir óku í anda hugsjónanna nýju Borgarfjarðarbrúna með viðkomu í málmblendiverksmiðju byggðastefnunnar í Hvalfirði, en við hinir andlausari hristumst áfram holótta vegi kjördæmisins eða vegleysur og gerðumst meira að segja svo djarfir að heimta örlítið meiri hlut til annars okkar brýnasta verkefnis. Það er hætt við að fleirum fari svo í sumar að þeir verði að halda sig við hugsjónabrautir flísalagðar með karbíti og kvarsi, en hlífi sér við vegleysum raunveruleikans. En því kemur mér karbítur í hug nú, sem margir hafa tekið hálfguðatölu, að ein aðalástæðan fyrir þröngri braut dyggðarinnar í lántökum til vegagerðarinnar í landinu er allglæfralegur akstur á breiðstrætum milljarða í karbítslántökum sem kváðu vera hættulausar, auðfáanlegar og umfram allt varla lántökur í þess orðs leiðu merkingu, það gerir arðsemin. Þessi breiðstrætisakstur erlendra lántökumöguleika er allt annar akstur en sá torfæruakstur sem erlendar lántökur til vegagerðar eru, enda eru þar íslenskir vegir og íslendingar sjálfir sem njóta eiga fyrst og fremst, meira að segja sveitamenn sem ætti að lögbjóða að yrðu karbítsætur í stað þeirrar sérvisku að vera tvist og bast út um landsbyggð alla og það á óheppilegustu stöðum út frá arðsemissjónarmiði föðurforsjónarinnar.

En hér hæfir raunar ekki háð né spé, og þó veit ég að mörgum landsbyggðarþm. verður þessi karbítsakstur enginn Suðurlandasólarferð. Ég gæti ímyndað mér að áður en lyki yrði hugarangur þeirra og líðan á svipaðan máta og hjá Pétri í Allra meina bót sem Andrés oftskorni greindi svo eftir sjúkdómslýsingu: „Ég hygg að þú þjáist af því sem á læknamáli nefnist: Samlede værker.“

Og í framhaldi af þessu er rétt að minna á önnur verk í fullri alvöru, þau verk sem nú eru hér til umfjöllunar á lokastigi. Ég skal ekki lengja umr. óþarflega, en aðeins drepa á fáein atriði. Vinnubrögðin hef ég áður rætt, óafsakanleg með öllu, en þó hæfa þau sennilega allvel því plaggi sem nú liggur hér á borðum.

Ég hef bent á það oftlega áður í sambandi við vegalög, að þótt sjálfsagt sé að huga að varanlegri uppbyggingu vega með góðu slitlagi, þá væri þó brýnasta verkefni okkar í vegamálum að gera sem flesta vegi sæmilega akfæra. Ég hef þá einnig sagt að til þess að svo mætti verða væri ég fús til að leggja töluvert að mér og þar veit ég að ég mæli fyrir munn þess landsbyggðarfólks sem yfirleitt býr við vonda vegi, oft ófæra af völdum snjóa eða þá aurbleytu. Frægt er það eystra hjá okkur, tímabilið á vorin sem getur varað býsna lengi og fengið hefur það hugljúfa heiti „drullutímabilið“. Ég dreg því enga dul á það að mér þykir hraðbrautaþátturinn, yfir 47% þegar allt er komið á sinn stað, of stór í okkar vegáætlun ef litið er til hinna ótöldu, óleystu verkefna í hinum ýmsu landshlutum sem m. a. af þessum ástæðum verða að þoka til hliðar. Verkefni vegleysanna eru nefnilega ærin á undan hraðbrautunum. Því var það að ég áleit sérstakt veggjald af þessum brautum sjálfsagt og í ljósi þeirrar innheimtu hefði þessi þáttur verið réttlætanlegri. Ég er enn sömu skoðunar og hika ekki við að telja slíkt gjald réttlætismál meðan svo illa er að öðrum búið í þessum efnum. Ég tel þá, sem veggjaldið greiða, aðeins hafa verið að hluta að greiða þann margvíslega sparnað sem þeir fengu í aðra hönd vegna þessara góðu vega. Með því fjármagni til viðbótar var þó hægt að réttlæta hraðbrautarframkvæmdir betur. Það er því að vonum, að ég er meðflm. ásamt þm. úr öllum öðrum flokkum að því að gjald þetta skuli á ný tekið upp og ég hlýt að vona að það verði samþykkt.

Ég skal svo reyna að halda mig við mitt kjördæmi sérstaklega, ekki síst af því að ég hef heyrt að við austfirðingar þyrftum ekki að kvarta með okkar séráætlun. Satt er það, Austurlandsáætlun er í gangi og þótt henni ætti að ljúka nú á þessu ári, þá eru þó svo stórkostleg verkefni enn eftir sem á þeirri áætlun voru að lausleg upphæð sýnist mér vera, ekki eftir þetta ár, heldur eftir næsta ár, 1976, einu ári eftir að áætlun átti að ljúka, upp á um 450 millj. kr. Hér kemur fyrst og fremst til verðbólgan í öllu sínu veldi, breyttar verkforsendur, einkum í Oddskarði, segja einnig til sín, en mestu veldur þó að bæði í fyrra og þó einkum nú í ár þarf að fresta framkvæmdum vegna fjármagnsskorts. Samkv. áætluninni í fyrra, 141.5 millj. á till. þáv. ríkisstj., hefði á þessu ári sambærileg upphæð nú þurft að nema yfir 210 millj. svo að framkvæmdagildi hefði staðist. Upphaflega áætlunin var hins vegar 75 millj. En þá bar hins að gæta að á liðnum Norðurvegur-Austurvegur gátum við austfirðingar vænst dágóðrar upphæðar samkv. samkomulagi fyrr í vetur og get ég í ljósi 500 millj. til Norður- og Austurvegar ekki látið í ljós neina aðdáun hér á þeirri breytingu sem á hefur orðið. Sú hefur sem sagt orðið raunin á að þessari upphæð er nær allri dembt yfir á þann þátt vegamála sem síst skyldi, hraðbrautirnar, en þess í stað erum við látnir hafa nokkra uppbót, sem ég skal ekki vanmeta, á hina hraklegu tölu 75 og það úr einhverri óskilgreindri upphæð sem góðu heilli fannst til þessara nota. Auðvitað ber að víta það harðlega að hraðbrautir skuli gleypa þetta fjármagn svo gersamlega sem raun ber vitni og þrátt fyrir það að áður höfðu, að ég hélt, skýr fyrirheit verið uppi um annað, þ. e. til þess að gera illfæra vegi sæmilega akfæra, meira að segja m. a. austur á landi.

Nú er þessi áætlun komin í 145 millj., þ. e. Austurlandsáætlunin, og vantar þá enn um 70 millj. til þess að framkvæmdagildi verði náð miðað við síðustu áætlun vinstri stjórnarinnar, sem þó var af vanefndum, vegna þess að ekki náðist fram sú hækkun vegasjóðstekna sem ráðgerð hafði verið. Réð þar hin alkunna göfugmennska stjórnarandstöðunnar þáv. sem kvaðst drepa allt frá stjórninni, ekki síður hið góða en hið slæma. Meginverkefni Austurlandsáætlunarinnar nú eru tvö, Fjarðarheiði og Oddsskarð. Á þau höfum við kosið að leggja nú megináherslu. Það veldur því aftur að lítið er eftir til skipta að loknum sæmilegum fjárveitingum til þessara verkefna og er þó aðeins um aðra upphæðina að ræða sem ég tel viðunandi. Ekki síst með tilliti til hinna hörmulegu atburða í Neskaupsstað í vetur hafði ég vonað að hægt yrði að standa af sérstökum myndarskap að verki þar í sumar svo að norðfirðingar gætu eygt einhvers staðar í sjónmáli lok þeirrar einangrunar sem þeir búa við. Með tilliti til þessa og raunar málsins alls er upphæðin í ár, rúmar 40 millj. þegar frá er dregin skuld á s. l. ári, hörmulega lág, ef miðað er við núgildandi verðlag sennilega tæpur 1/3 af því sem fór í gamanbrautina til Þingvalla í fyrra og rann í gegn utan við allt, af því að það þurfti að vera með puntsamkomu á 1100 ára afmæli Íslandsbyggðar svo að landslýður gæti a. m. k. séð hve hann ætti fallega og prúða þm. sem kynnu að rétta upp hendurnar í takt og þá um leið hvernig þeir féllu ásamt öðru stórmenni vel inn í umhverfið þar austur frá. En það er ekki sama hvert tilefnið er og það er sem sagt mat manna eftir þessu plaggi að þessi samkoma á Þingvöllum hafi átt skilið þrefalt meira framlag í vegamálum á einu ári en Oddsskarðið með 1900 manna byggð að baki í einangrun eftir hörmulega vá þeirra athurða sem þar gerðust. Ég hef því ásamt hv. þm. Þorsteini Þorsteinssyni leyft mér að flytja brtt. til hækkunar á þessum eina lið um 25 millj., enda þá fyrst hægt að segja að norðfirðingar geti eygt þá langþráðu lausn sem þeir hafa beðið svo eftir og þeir telja sig annars illa svikna. Um það hvaðan taka eigi fé til þessa vísa ég beint í risatöluna 890 millj. til hraðbrauta. Án alls efa er þar auðvelt að kippa burt 25 millj. án þess að nokkur bíði tjón á sálu sinni, og svo kemur nú góð uppbót ef brtt. um tekjur af veggjaldinu, sem ég er meðflm. að, yrði samþykkt og það bættist við, t. d. til þessa verkefnis eða þá í staðinn til margrómaðra framkvæmda við hraðbrautir. Þar til viðbótar kemur auðvitað það veigamesta atriði að með svo takmarkaðri fjárveitingu nú efa ég stórlega að hægt sé að ljúka verkinu í Oddsskarði á næsta ári, 1976, þó að þá sé upphæðin riflegri og vel viðunandi miðað við það ár.

Á Fjarðarheiði lá við stórslysi í vetur og því er það ekki síst að við leggjum áherslu á myndarlegt átak þar, því er ég fullkomlega sammála. En hætt er við að mörgum bregði í brún annars staðar á Austurlandi sem samkv. Austurlandsáætlun áttu að fá leiðréttingu í ár, en sjá nú ekki einu sinni fram á hana á næsta ári. Það er þó rétt að ítreka sérstaklega þá skyldu sem í raun ætti að hvíla á Alþ. gagnvart Austurlandsáætlun. Hér var um bindandi samkomulag að ræða um að ljúka tilteknum verkefnum á ákveðnu árabili. Eins til tveggja ára seinkun var fullkomlega afsakanleg, m. a. vegna breytinga forsendna, en önnur 5 ár til þessara verkefna einna, þó að mörg önnur verkefni bíði óleyst á meðan, er allt of mikið og von að menn þykist illa sviknir í þessum málum, á sama tíma og í eina tiltekna framkvæmd, að vísu vafalaust réttlætanlega á sinn hátt, er hægt að verja jafnhárri upphæð á tveim árum og færi langt með að ljúka Austurlandsáætlun og þegar á það er einnig litið að hraðbrautaáætlunin 1975 er a. m. k. nær þreföld miðað við bæði árin 1975 og 1976 í Austurlandsáætlun, því að vitanlega skulu austfirðingar ekki fá eina krónu hvorugt árið út úr þeirri upphæð sem varið er til hraðbrauta. Í ljósi þess ættu menn að fara varlega í að öfunda austfirðinga af þessari margumtöluðu áætlun sem hefur ekki betur tekist til með og nú er alveg sérstaklega illa með farið þrátt fyrir þá leiðréttingu sem á henni hefur fengist og vissulega ber að meta. Ég segi þetta í ljósi þess að upphaflega talan var svo hlálega lág, réttur helmingur þeirra tölu, sem þó var inni í till. s. l. vor, og meira en 30 millj. kr. lægri en framkvæmt var fyrir á s. l. ári sem þó var skorið niður.

En þegar kemur að þjóðbrautum og landsbrautum okkar kemur í ljós að eftir að 20 millj. hafa komið í Breiðamerkursand, sem ég met einnig mikils og ætti þá sjálfsagt að vera sem eðlileg hlutdeild og raunar þá auðvitað allt of lág út úr liðnum Norðurvegur-Austurvegur, þá eru til ráðstöfunar á árinu tæpar 40 millj. til almennra vegaframkvæmda á öllu Austurlandi fyrir utan hina sérstöku Austurlandsáætlun. Sjá allir, hver sú tala er að framkvæmdagildi nú miðað við þó þær 54 millj. sem á s. l. ári var framkvæmt fyrir. En um þetta tjáir víst ekki að tala, erfiðir tímar valda þessu, sömu erfiðu tímarnir og gera okkur kleift að ráðast í tugmilljarða framkvæmd uppi í Hvalfirði og fá til þeirra lán eins og um fjörusand væri að ræða. Er nema von þótt menn eins og ég, hagfræðiþekkingarlaus og án alls háþróaðs fjármálavits, botni ekki hér í ég finni ekki samræmið í hlutunum. Ég hugga mig þó við það að ég er ekki einn á báti, m. a. í minn kjördæmi, þar sem fáir séu komnir á astralplan karbítsins, guði sé lof.

Nú koma spekingarnir vitanlega og segja: Hvar á að taka peningana? Það er hægt að hafa hátt og gera kröfur en láta svo hjá liða að gera grein fyrir fjáröfluninni. — Ég skal þó gera það í örstuttu máli. Í fyrsta lagi með lántökum erlendis, t. d. í stað þeirra sem á að taka fyrir málmblendiverksmiðjuna í Hvalfirði. Ekki hægt, segja spekingarnir, þeir sömu sem bættu vænni upphæð ofan á erlendar lántökur í meðferð efnahagsmálafrv. eftir að sömu spekingar höfðu sagt það áður að nú væri búið að ganga of langt. En ef svo hefði verið og hæstv. ríkisstj. Legði hér niður skottið eins og í fleiru og dýfði því í járnsíliglóðina í þess stað, þá hefði ég talið réttlætanlegt að auka tekjur Vegasjóðs með hækkun bensíngjalds, þótt ég viti að þar er teflt á tæpasta vað og sú ráðstöfun yrði ekki vinsæl. Ég veit hins vegar að hér skortir meiri hl. ríkisstj. kjark því að hér mundu þeir hæst æpa sem þó búa við besta vegi og besta aðstöðu, þ. e. bifreiðaþrælar Stór-Reykjavíkursvæðisins. Öllu þessu hefði a. m. k. ég sem landsbyggðarþm., horfandi upp á það sem við nú fáum sem veganesti, verið tilbúinn að leggja lið og athuga í fullri gaumgæfni. En nú eru niðurstöður sem sagt fengnar og fátt annað eftir en að óska hæstv. ráðh. til hamingju með brúna sína og svo allt hitt sem kynni þó að slá nokkrum fölskva á áður en lyki og víðar og hressilegar en þá karbítssinna órar fyrir nú í dag. En þá má líka óska öðrum til hamingju sem mér er ljúfara.