15.05.1975
Neðri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4335 í B-deild Alþingistíðinda. (3579)
109. mál, sjóður til aðstoðar við drykkjusjúka
Pétur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég vil eindregið taka undir það sem hæstv. fjmrh. sagði nú í sínum lokaorðum. Auðvitað er það Alþ. sem á að taka ákvarðanir um hvernig tekjustofnum ríkisins verði varið. Það eru ekki ráðh. einir eða, ríkisstj., heldur er það Alþ. Því er meirihluta till. og álit n. komið fram, og þess vegna hef ég m. a. tekið undir þá till., vegna þess að ég álít að þarna sé verið að fara rétta leið til þess að ákveða hvernig fara eigi með ákveðnar tekjur ríkissjóðs sem þó, að mér skilst, eigi að vera tekjur sem lagðar eru til viðbótar á sölu áfengis í landinu. Það er ekki verið að taka neitt frá ríkissjóði. Vera má að ríkissjóður hafi ætlað sér að hækka um þessa upphæð til þess að ná á móti einhverjum öðrum útgjöldum, en okkur alþm. hefur ekkert verið tilkynnt um það, ef svo er. Reyndar hefur það ekki verið gert áður af þeim hæstv. ráðh. sem hafa farið með þessi mál á undanförnum árum og missirum og þar á meðal ekki af núv. hæstv. fjmrh., hann hefur ekkert verið að tilkynna Alþ. um það hvort hann hafi þurft að fá í eyðslu ríkissjóðs þó að hann hafi þurft að hækka áfengi.
Nú ætlum við að fyrirbyggja að næsta hækkun fari öll inn í ríkissjóð, heldur verði tekinn ákveðinn markaður hluti þeirrar hækkunar, sem næst kemur, til þess að mæta þessum mikla vanda sem allir eru sammála um, bæði við, sem höfum drukkið brennivín, og bindindismennirnir úr Hafnarfirði og aðrir sem aldrei hafa smakkað það. Ég vil hreinlega leyfa mér að segja að ef þeir eru sammála hæstv. ráðh. um að vandamálið sé svona, mikið, þá skulu þeir líka vera þeir menn að viðurkenna það og koma á móti vandamálinu með því að taka undir þessa till. meiri hl. Við skulum ekki vera þau börn að ætla það að þótt við búum við efnahagskreppu, efnahagsólán, ég veit ekki hvernig ætti að orða alla þá óáran sem sækir að núv. hæstv. ríkisstj., þá skulum við ekki vera þau börn að ætla að á móti þessu vandamáli verði komið um leið og við erum að ræða um að selja saltfisk, skötu, saltufsa eða eitthvað annað, ef við eigum að vera að koma á móti mönnum sem eru að hugsa um einkahag í sambandi við loðnumjöl eða annað þess háttar til þess að ná upp tekjum sínum eða sinnar fjölskyldu. Ég álít að það sé miklu nær að snúa sér að þessu máli heldur en mörgum öðrum.