15.05.1975
Neðri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4341 í B-deild Alþingistíðinda. (3588)
286. mál, iðnaðarmálagjald
Sverrir Hermannsson:
Herra forseti. Ég vil minna hæstv. iðnrh. á að ég sagði að ég minntist þess ekki að þetta hafi komið þar til umr. eins og venja væri um stjfrv., kynni það þó að hafa farið fram hjá mér. Ég vænti þess að þeir, sem hlustuðu á orð mín hér áðan, muni eftir þessu. Ég var ekki að fullyrða neitt um þetta. En ég hef setið flesta fundi þarna og minnist þess ekki að þetta hafi komið fyrir, en sagði: Það kynni þó að hafa farið fram hjá mér.
Hv. frsm., 1. þm. Sunnl., hvatti mig til að hafa sem fæst orð um þetta af því að mig mundi skorta kunnugleika á málinu. Þetta er mergurinn málsins. Ég er að biðja um frestun og athugun á málinu af því að mig skortir kunnugleika á því. Af hverju skyldi ég vera að því ef mér væri fullljóst hvað hér væri um að tefla? Það er nákvæmlega þetta sem veldur afstöðu minni. Ég var ekki að dæma málið af, þótt mér sýndist ýmislegt í því vera með þeim hætti að mér væri ekki skapfellt og gæti skapað fordæmi sem ég sæi enga ástæðu til þess nú að taka upp. Það getur vel verið eftir að ég fæ tækifæri, ef ég fæ það sem ég er að biðja um, til að kynna mér þetta, þá verði ég hjartanlega sammála þessari aðferð. Öll mín orð byggðust einmitt á þessu, að biðja um að fá tækifæri til þess arna.
Þetta mál er afgreitt frá n. í hv. Ed. 13. maí. Hvenær var það lagt fram í Alþ.? Var það kannske 13. maí líka? Hv. frsm. sagði að n. hefðu athugað málið, þær hefðu lesið frv. Það var naumast að það þurfti að taka það fram að þær hefðu lesið frv. En ekki þýðir það nú það sama og þær hafi kynnt sér málið nægjanlega vel. Þann 13. maí er það afgreitt frá n. í Ed. og 15. maí í Nd. Um það þýðir ekkert að deila að það er á þessu harkaleg fljótaskrift og það er auðskilið mál að ýmis mjög mikilvæg efni þurfa hér að ná fram.á lokadögum þings og ævinlega skilst mál svo að á þessu verður óþarfa fljótaskrift í afgreiðslunni. En mikilvægum málefnum, sent ráðh. og rn. þurfa að ná fram, verður að koma fram, þrátt fyrir það að menn kysu miklu heldur að fá skaplegri tíma til afgreiðslunnar. En þetta mál, sem hefur legið á annað ár hjá iðnrn. í bréfi, er það svo brýnt að það þurfi að húrra því hér í gegn með þessum hætti? Það fæ ég ekki skilið. Það er ekki ýkjalangt í næsta þing, ekki helmingur þess tíma sem liðinn er frá því að þeir skrifuðu þetta bréf, þessir aðilar svo að ég fæ ekki skilið að það sé hundrað í hættunni þó að hinkrað sé við.
En annað í þessu sambandi. Er það misskilningur minn að þessi hæstv. ríkisstj. stefni að því frekar að draga úr sjóðakerfi og fjölda skatta og gjalda? Er þetta misminni mitt og ókunnugleiki sem veldur því, að ég stend í þessari meiningu? En ég held því fram að þetta sé stefnan. En svo er stöðugt verið að hnýta nýjar og nýjar slaufur, ný og ný gjöld lögð á atvinnureksturinn í landinu: viðlagatrygging, 0.1% hér og 0.2% þar. Þessu rignir niður, og ekki nóg með það að svona sé haldið fram stefnunni, heldur fær maður þess engan kost á að kynna sér málin þótt þau sýnist alls ekki brýn.
Ég tók það einmitt fram að ég felldi mig ekki við að þurfa að leggjast gegn frv. og gera tilraun til þess að fella það af því að ég er ókunnugur því, af því að undirstaða þess að ég geti tekið þátt í afgreiðslunni er auðvitað sú að ég fái að kynna mér það. En ef á að banna mér allar bjargir í því, þá verð ég til vonar og vara, ef þetta skyldi vera mál sem á ekki að ná fram að ganga að sanngirni til, þá verð ég auðvitað að snúast gegn því, því að alltaf má þó taka það upp aftur. En ég hefði fremur kosið annað og þess vegna fer ég eindregið fram á það að málið verði athugað betur. Það hefur engin tilraun verið gerð til þess að sýna mér fram á að það bæri brýna nauðsyn til þess að afgreiða þetta nú. Það verða þeir að gera sem á knýja um afgreiðslu þessa máls, færa mér a. m. k. heim sanninn um það. Það þarf ekki að taka langan tíma ef málið er sanngjarnt og eðlilegt. Ekkert kemur fram um það. Nál., eins og ég sagði, frá hv. meiri hl. iðnn. er einvörðungu um að þeir, sem um þetta biðja, hafi komið á fund n. og gefið greinargóð svör, ekkert orð um það, engin rök frá n: sjálfri um það hvers vegna eigi að samþykkja þetta frv. Hv. frsm. sagði bara að það væri svo áliðið að það væri ekki hægt að reifa það, menn gæfu sér ekki tíma til þess, það væri komið fram á nótt. Og við mig sagði hann að ég skyldi hafa fá orð af því að ég þekkti málið ekki neitt. Ég var einmitt að biðja hann um að fá tíma til að kynna mér það. Þetta er nú afgreiðslumáti í lagi.
Það er nú nóg á mann lagt með þeim ósköpum sem á ganga hér um framgang nauðsynjamálanna, þó að það sé ekki verið að hnýta þessar slaufur stanslaust á kattarskottin.