15.05.1975
Neðri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4342 í B-deild Alþingistíðinda. (3589)

286. mál, iðnaðarmálagjald

Lárus Jónsson:

Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr. að neinu marki. Ég vil aðeins í framhaldi af því, sem hæstv. ráðh. sagði um þetta mál, staðfesta það að ég minnist þess að þetta mál var tekið fyrir á eðlilegan hátt í þingflokki sjálfstæðismanna og hlaut þar afgreiðslu eins og önnur stjfrv. Það er nú alllangt síðan þetta gerðist, þannig að ég hygg að ef þetta hefði ekki farið fram hjá sumum okkar, eins og ég heyri að gerst hefur, þá hefði gefist sæmilegur tími til þess að skoða svo einfalt mál eins og þetta er, a. m. k. í mínum huga.

Málið snýst um það að Landssamband iðnaðarmanna, Félag ísl. iðnrekenda og Samband ísl. samvinnufélaga, þessi samtök óska eftir því að fá löggjöf um að á þau verði lagt ákveðið gjald sem renni til þess að efla samtök þeirra þannig að þau geti betur þjónað sínum atvinnurekstri eftir en áður sjálf og ein. Þetta gjald á að leggjast á þau ein og ekki koma fram í vöruverði. Og skörin er nú farin að færast upp í bekkinn ef menn geta ekki sjálfir óskað eftir því við Alþ. að þá sé lögð einhver ákveðin kvöð til þess að þeir geti betur náð fram sínum málum.(SvH: Er þetta til að einfalda kerfið?) Þetta er ekki til þess að gera kerfið neitt verra en það er núna því að málið er einfaldlega þannig að það á að leggjast 0.1% á iðnlánasjóðsstofn, þann stofn sem rennur til Iðnlánasjóðs, iðnlánasjóðsgjaldið, og þetta þarf ekki að vera erfiðara eða þyngra í vöfum en það að á þetta gjald sé lagt þetta álag og það innheimt nákvæmlega eins og iðnlánasjóðsgjaldið og getur greiðst þaðan. Það þarf ekki að kosta ríkissjóð fimmeyring að gera þetta. Þetta er nú allt og sumt sem mál þetta snýst um. Og ég verð nú að játa það, að ef menn geta ekki sett sig inn í svona einföld mál á tiltölulega stuttum tíma, hvernig fara þá hv. alþm. að því að setja sig inn í þá lagadoðranta sem fyrir okkur eru lagðir, stundum með fárra daga eða klukkustunda fyrirvara áður en á að fara að afgreiða þá.

Ég vil því leggja áherslu á það að þetta mál hefur fengið eðlilega skoðun. Ég lít svo á, að hér sé um það einfalt mál að ræða að það sé á engan hátt óeðlilegt að málið sé afgreitt á þessu þingi, og skoða það svo að við séum þegar búnir að fá hér nál. um þetta mál og að það hljóti að fá eðlilega afgreiðslu á þessu þingi.