15.05.1975
Neðri deild: 91. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4345 í B-deild Alþingistíðinda. (3593)

286. mál, iðnaðarmálagjald

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Það liggur við að við stjórnarandstæðingar hér í kvöld förum hjá okkur þegar við leggjum út í að biðja um orðið undir þeim umr. sem hér hafa átt sér stað hjá hv. stjórnarþm. Það er ekki aðeins í þessu máli, heldur og mörgum öðrum, sem þeir hafa haldið hér uppi umr. á þessum kvöldfundi. Það gengur svo langt að þeir sjálfir — og hygg ég þá að langt sé gengið — þeir sjálfir fara að mótmæla þeim vinnubrögðum sem við eru höfð að því er varðar afgreiðslu og meðferð mála. En ég er í raun og veru ekkert hissa á því, því að það mun ábyggilega vera svo, þó að ég þekki til langt aftur í tímann um starfsháttu Alþingis, að vart munu finnast þess dæmi að málatilbúnaður hafi verið með höndum hafður eins og verið hefur hér á hv. Alþ. nú hina síðustu daga. Og það gengur svo langt að hv. þm. stjórnarflokkanna finnst þeir til þess knúnir að standa upp og mótmæla þessum vinnubrögðum.

Að því er varðar það mál sem hér er til umr., þá sýnist mér eftir þeim lýsingum, sem komið hafa hér fram á því hvernig mál þetta kom til með að verða í framkvæmd, að hér sé nú um hálfgerðan skrípaleik að ræða. Ég sé ekki betur, ef á að fara að nota ríkið til þess að innheimta gjöld af einhverjum ákveðnum aðila bara svo til þess að skila þessum viðkomandi aðila þessum gjöldum nákvæmlega eins aftur. Ég hygg að ef svona fyrirkomulag verði tekið upp, þá muni ekki langir tímar líða þangað til t. d. verkalýðshreyfingin fer að óska eftir því að Alþ. sjái um innheimtu félagsgjalda af stéttarfélögum. Og ég sé ekki að það verði auðvelt fyrir hverja þá ríkisstj. sem kemur til með að sitja í landinu að neita slíku eftir að hafa, ef það verður, gengið frá lagafrv. og samþ. sem lög frv. eins og það sem hér er nú til umr. Ég vil a. m, k. vænta þess að það sé ekki meiningin að það séu einhver sérstök félög í landinu sem komi til með að njóta þeirrar fyrirgreiðslu að nota ríkið sem innheimtuaðila í þessum tilvikum.

Það má vel vera að það sé ókunnugleiki, en ég sé ekki að það sé neitt sem rekur á eftir því að þetta mál verði rekið hér í gegn með þeim hraða og þeim óeðlilegu vinnubrögðum eftir lýsingu nm. sjálfra sem viðhöfð hafa verið í hv. n. Ég tek því alveg eindregið undir þær óskir, sem fram hafa komið, að þessu máli verði frestað. Það er ekkert sem rekur á eftir því að það þurfi að lögfesta það nú á þessu þingi. Það er tiltölulega stuttur tími þar til þing kemur saman aftur og væntanlega geta þá a. m. k. nm. og væntanlega þm. allir fengið tækifæri til þess að kynna sér málið betur ef þess er þörf á annað borð. En ef málið er eins og hv. 2. landsk. lýsti því hér áðan, þá sé ég ekki hvaða tilgangi það þjónar að vera að lögfesta slíkt.

Ég tek því eindregið undir það að þessu máli verði frestað og sennilega best þá að taka undir ósk hv. 3. þm. Austf. um að málinu verði vísað aftur til iðnn.