15.05.1975
Efri deild: 94. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4356 í B-deild Alþingistíðinda. (3622)

11. mál, launajöfnunarbætur

Forsrh. (Geir Hallgrímsson) :

Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. um 1. gr. þessa frv., en tek þó fram að þessi gr. hefur þýðinga eftir sem áður, þótt heildarsamtök aðila vinnumarkaðarins komi sér saman um ákveðnar launajöfnunarbætur til viðbótar þeim sem ákveðnar eru í þessum lögum. Hefur raunar frsm. fjh.- og viðskn. gert grein fyrir því og ég sömuleiðis í Nd. fyrr í dag og tel ég því ekki ástæðu til að fjölyrða nánar um það efni.

Varðandi ákvörðun barnalífeyris eða meðlaga, þá fylgir hann hinni almennu hækkun lífeyrisgreiðslna, þ. e. a. s. hækkar um 9%, en heilbr.- og trmrh. hefur vald til þess með reglugerð að breyta þessu og ákveða barnalífeyri eða meðlag með öðrum hætti. Það hefur hann haft til athugunar og ríkisstj. mun taka það til meðferðar að athugun lokinni. Ég get ekki lofað neinni ákveðinni hækkun, það fer eftir þeirri athugun, sem fram fer, hver úrslit málsins verða. En mál þetta er til meðferðar í rn. og ríkisstj. mun taka afstöðu til þess að lokinni þeirri athugun.