16.05.1975
Efri deild: 95. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4360 í B-deild Alþingistíðinda. (3630)
15. mál, happdrættislán ríkissjóðs vegna Norðurvegar og Austurvegar
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ég talaði hér í gærkvöld og örugglega aðeins einu sinni og gæti þess vegna örugglega talað hér langt mál. En ég ætla aðeins að taka það fram, að ég held, að það sé mikill misskilningur hjá hv. 4. þm. Sunnl. sem hann sagði hér um skoðanir annars hv. þm. sem nú getur örugglega ekki svarað fyrir sig lengur að dómi hæstv. forseta, hv. 5. þm. Norðurl. v. Ég held að ég hafi skilið hans mál fullkomlega rétt þegar hann var að ræða þessi mál og hann hafi einmitt lagt áherslu á að það þyrfti að vinna þau verkefni þar sem brýnust væri þörfin, og ég kannast ekki við þau gróðasjónarmið sem hv. 4. þm. Sunnl. var að leggja þessum hv. þm. í munn. Ég held að hann hafi aldrei á þau minnst á þann hátt, aðeins minnt á það að við ættum að vinna að þessum málefnum sem allra víðast og gera sem sagt vegina sem víðast akfæra, vel akfæra.
Ég tek það fram að ég skil mætavel afstöðu ýmissa þeirra sem hér hafa talað og flutt brtt. við þetta frv. Ég ítreka aðeins það, sem ég sagði í gær, að ég stóð ásamt öðrum Austf.- þm. að ákveðnu samkomulagi um samþykki við frv. í því formi, sem það er nú, og mun því greiða atkv. gegn þeim brtt. sem hér liggja fyrir. Ég tek hins vegar undir það að málsmeðferðin núna rétt í þinglokin er vitaverð eftir að frv. hefur legið hér í d. frá því fyrir áramót. Ég held að menn hafi almennt verið hættir að reikna með því að það kæmi nokkurn tíma hér til 2. umr. a. m. k. taldi ég það. Ég hefði talið æskilegra, úr því að málið var svo geysilega lengi í n. og n. skoðaði það eins gífurlega vandlega og raun ber vitni, að n. hefði borið skylda til þess að reyna að ná allsherjarsamkomulagi fyrr um þetta mál. Að því hefði átt að vinna. En eins og mál standa nú, þegar málið er í raun og veru komið hér í hnút, þá hlýt ég að styðja frv. í núverandi formi.