16.05.1975
Efri deild: 95. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4361 í B-deild Alþingistíðinda. (3633)

281. mál, aðsetursskipti

Frsm. (Ingi Tryggvason) :

Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir til umr., er um breyt. á l. nr. 73 frá 25. nóv. 1952, um tilkynningar aðsetursskipta. Sú breyting, sem hér er farið fram á að gerð sé á l., er á þá lund að þeir sem hyggjast skipta um aðsetur á tímabilinu frá 16. nóv. til 1. des, ár hvert, tilkynni það eigi síðar en 15. nóv. það sama ár. Tilgangurinn með þessari breytingu er sá að fyrr en áður verði hægt að hefja vinnu við gerð íbúaskrár og loka þannig fyrir breytingar á íbúaskrá hálfum mánuði fyrr en ella. Þetta er gert til vinnuhagræðingar fyrir Hagstofuna og til þess að tryggja það að íbúaskrár verði fyrr tilbúnar til nota en annars er.

Allshn. hefur athugað þetta frv. og allir nm. orðið sammála um að mæla með að frv. verði samþykkt án breytinga. En frv. er upphaflega flutt af allshn. Nd. samkv. ósk Hagstofu Íslands.