16.05.1975
Efri deild: 95. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4362 í B-deild Alþingistíðinda. (3636)

133. mál, fjarskipti

Frsm. (Helgi F. Seljan) :

Herra forseti. Heilbr.og trn. hefur fjallað um frv. til l. um breyt. á l. nr. 30 frá 1941, um fjarskipti, og leggur til að frv. verði samþ. óbreytt. Það er rétt að drepa aðeins á eðli málsins af því að fyrir því varekki flutt framsaga hér við 1. umr. Þetta frv. var flutt af hv. þm. Magnúsi Kjartanssyni í Nd. og var á þá leið að í reglugerð mætti ákveða að þeir, sem hljóta uppbót á elli- og örorkulífeyri samkv. 19. gr. l. um almannatryggingar frá 1971, verði undanþegnir afnotagjöldum fyrir síma. Í grg. er vikið að því að afnotagjöld fyrir síma hafi hækkað mjög stórlega og hætta sé á því að afleiðingin verði sú að aldrað fólk og öryrkjar með lágar tekjur verði að segja upp símum sínum og bjóða heim vaxandi einmanaleik og öryggisskorti. Til þess að koma í veg fyrir að sú verði raunin er þetta frv. flutt. Frv. gerir ráð fyrir að undanþágan verði í heimildarformi og framkvæmdin ákveðin með reglugerð. Með samþykkt á slíkri heimild væri Alþ. að sjálfsögðu að lýsa vilja sínum, og hver ráðh. mundi telja sér skylt að hlíta honum. Hins vegar þurfa reglugerðarákvæðin að tryggja að undanþágan verði ekki notuð af öðrum en þeim sem henni er ætlað að þjóna.

Allir nm. heilbr.- og trn. eru sammála um að hér sé um veigamikið réttlætismál að ræða sem þeir fylgja.