16.05.1975
Efri deild: 95. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4375 í B-deild Alþingistíðinda. (3647)

220. mál, atvinnuleysistryggingar

Steingrímur Hermannsson:

Herra forseti. Ég hafði reyndar beðið um orðið til þess að skora á flm. að draga till., sína til baka til 3. umr., þannig að fengi að reyna á þetta ákvæði til bráðabirgða. Það hefur verið gert svo að ég þakka þeim fyrir það.

Ég vil aðeins leiðrétta einn misskilning sem kom fram hjá hv. síðasta ræðumanni. Ég geri að sjálfsögðu ekki ráð fyrir því að í einu stökki nái slíkt fæðingarorlof til allra kvenna í landinu. Þvert á móti tók ég greinilega fram í minni ræðu að ég teldi að það yrði að gerast í áföngum.