16.05.1975
Efri deild: 95. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4377 í B-deild Alþingistíðinda. (3653)

104. mál, almannatryggingar

Frsm. (Oddur Ólafsson) :

Herra forseti. Heilbr.- og trn. Ed. hefur fengið til meðferðar frv. til l. um breyt. á l. um almannatryggingar. Það varðar íþróttafólk og er meginefni frv. að veita íþróttafólki, sem tekur þátt í íþróttaiðkunum, hvort heldur æfingum, sýningum eða keppni, aðild að slysatryggingadeild almannatrygginga. N. leggur til að frv. verði samþ. óbreytt.