16.05.1975
Efri deild: 96. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4378 í B-deild Alþingistíðinda. (3666)
220. mál, atvinnuleysistryggingar
Eggert G. Þorsteinsson:
Herra forseti. Ég hef ekki tafið þessar umr. til þessa, enda lýsti yfir þegar í hv. heilbr.- og félmn. að ég væri fylgjandi frv. og ég hef ekkert farið dult með þá skoðun mína að ég hef verið það frá upphafi vega. En að sjálfsögðu geri ég það í trausti þess, að Atvinnuleysistryggingasjóði verði tryggðar tekjur með einhverjum hætti til að mæta þeim útgjöldum er af frv. leiðir og framkvæmd þess skaði ekki þær skyldur sem á Atvinnuleysistryggingasjóði hvíla í dag.