28.11.1974
Sameinað þing: 14. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 468 í B-deild Alþingistíðinda. (367)
29. mál, bætt skilyrði til viðtöku hljóðvarps- og sjónvarpssendinga
Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Þáltill. sú, sem ég og meðflm. mínir flytja og hér er til umr., fjallar um það að ríkisstj. sé falið að vinna að því í samráði við Ríkisútvarpið að gerð verði á árinu 1975 sérstök kostnaðar- og framkvæmdaáætlun um bætt skilyrði til viðtöku innlendra hljóðvarps- og sjónvarpssendinga, þannig að sendingar geti náð sem greiðast til landsmanna, hvort sem er í byggðum landsins eða á fiskimiðunum umhverfis landið. Í þessu sambandi skal athuga hvort ekki sé rétt að ákveða afnotagjöld með tilliti til þess að föstum hundraðshluta þeirra sé jafnan varið til dreifikerfis hljóðvarps og sjónvarps. Þetta er tekið fram í 1. mgr. þessarar þáltill. 2. mgr. fjallar um sératriði sem ég vík að síðar.
Ég geri ráð fyrir að það þurfi enginn innan þessara veggja að undrast að það skuli vera talin ástæða af okkur flm. til þess að gerðar verði gagngerðar ráðstafanir til þess að bæta viðtöku innlendra hljóðvarps- og sjónvarpssendinga. Við alþm., a.m.k. þeir sem eru alþm. fyrir hinar strjálu byggðir landsins, verðum stöðugt varir við að fólkið í strjálbýlinu viða umhverfis landið er mjög óánægt með þá þjónustu, sem Ríkisútvarpið veitir þeim, og viða eru dæmi þess, að hlustunarskilyrði og sjónvarpsskilyrði eru allsendis ófullnægjandi. Ég ætla ekki að fara að lýsa nákvæmlega hvernig þessu er varið eða hvaða byggðir eða sveitir eða kauptún fara verst út úr þessu máli, en hér er greinilega um viðfangsefni að ræða sem nauðsynlegt er að sé tekið föstum tökum og unnið markvisst að því að bæta úr.
Dreifikerfi hljóðvarpsins var upphaflega og er enn í grundvallaratriðum byggt upp með langbylgju- og miðbylgjusendistöðvum. Auðvitað þarf að halda við og endurnýja þessi mannvirki á hverjum tíma. En það er staðreynd að s.l. 8 ár hefur ekkert verið gert til þess að endurbæta og halda við þessu dreifingarkerfi. Þó er það svo að þetta dreifingarkerfi er nú miklu ófullkomnara í sjálfu sér, sú tækni, sem það byggist á, heldur en var í upphafi. Kemur þar ýmislegt til, m.a. að við höfum orðið að hlíta því að breytt hefur verið um bylgjulengdir, sem Ríkisútvarpið getur notað, t.d. með tíðnisúthlutun árið 1948, sem hefur skapað mikla erfiðleika. Erlendar stöðvar stækka og verða kraftmeiri og viðtökutæki útvarpshlustenda eru á vissan hátt öðruvísi byggð nú en áður fyrr, þannig að vel er hægt að verjast truflunum frá öðrum útvapsstöðvum. Stór viðfangsefni blasa við í þessu efni, t.d. þarf að byggja upp Vatnsendastöðina, þegar af þeirri ástæðu að komið hefur í ljós að slíkar ryðskemmdir eru í möstrum hennar að skipta þarf um. Auk þess er þessi staður nú kominn inn í byggð þéttbýlisins, þannig að eðlilegt þykir og rétt, ef ekki nauðsynlegt, að byggja stöðina á öðrum stað. Það þarf að gera stórátök í þessu efni úti á landi ekki síst á Austurlandi. Þetta er það sem varðar langbylgju- og miðbylgjukerfið.
En það er einnig staðreynd að þetta kerfi fullnægir okkur ekki, getur það ekki í dag þó að því sé haldið í eðlilegu horfi. Það er þörf fyrir okkur hér í þessu landi eins og annars staðar að koma upp svokölluðu FM-kerfi. Það er mikið átak að gera slíkt, en nokkrar slíkar stöðvar eru þegar til. Þetta kerfi þarf að ná til landsins í heild og er gert ráð fyrir að það væri eðlilegast að byggja það upp þannig að FM-kerfið kæmi bæði til nota hljóðvarpi og sjónvarpi.
Ég ætla ekki að fara að gera ítarlega grein fyrir þeim viðfangsefnum sem við blasa í þessum efnum. Hæstv. menntmrh. skýrði frá því fyrr í þessari viku að Landsíminn hefði gert ítarlega áætlun um þessi efni og henni mundi verða útbýtt hér á Alþ. fljótlega. Hann vitnaði í þessa skýrslu um tiltekinn kostnað, og ég get sagt um þann kostnað, sem áætlað er að verði við nauðsynlegar og aðkallandi framkvæmdir varðandi dreifikerfi hljóðvarpsins, að gert er ráð fyrir að sá kostnaður einn nemi um 650 millj. kr. En þetta var aðeins hljóðvarpið. Ég segi: aðeins hljóðvarpið, af því að hvað varðar sjónvarpið er kostnaðurinn enn meiri. En maður skyldi ekki í raun og veru segja: aðeins hljóðvarpið, vegna þess að ef þörf er á framkvæmdum varðandi dreifingu sjónvarpsins, þá er þörf á því að koma dreifimálum hljóðvarpsins í viðunandi horf, því að það hefur þó starfað í hálfan fimmta áratug án þess að málum þess að þessu leyti hafi verið komið í lag.
Ég vil þá víkja að sjónvarpinu. Sjónvarpsdreifikerfið er byggt upp af aðalstöðvum og endurvarpsstöðvum. Aðalstöðvarnar eru nú um 10 og endurvarpsstöðvarnar um 70. Var gert ráð fyrir því í sjónvarpsáætluninni á sínum tíma, þegar skipulögð var uppbygging sjónvarpsins, að fyrst í stað skyldi byggt upp kerfi sem var ódýrara að byggja upp en önnur kerfi sem jafnframt eru fullkomnari. Ég ætla ekki að fara að skýra hér tæknimál, enda kannske ekki vel að mér sjálfur í þeim efnum, en ófullkomleiki endurvarpsstöðvanna, sem nú eru, er fólginn í því að það þarf ein stöð að varpa myndinni til annarrar og koll af kolli og á þessu ferðalagi óskýrist myndin, fram kemur snjór svokallaður á mynd inni og þess vegna er í mörgu tilfelli strjálbýlið verr sett í þessum efnum en þéttbýlið; þar sem aðalstöðvar eru. Nú telja mena og hafa raunar alltaf talið að það þyrfti að bæta úr þessu. Leiðin til þess er að koma upp svokölluðu örbylgjukerfi, og það er brýnt viðfangsefni að gera það einmitt nú. Í raun og veru er það svo að það er ekki viðunandi að framkvæmdir í þessum efnum bíði.
Auk grundvallardreifikerfisins eru ýmis brýn viðfangsefni varðandi dreifingu sjónvarpsins. T.d. er brýnt viðfangsefni að byggja varanlegar sendistöðvar í staðinn fyrir bráðabirgðasendistöðvar, sem komið var upp víðs vegar í strjálbýlinu fyrir framtak, áhuga og dugnað heimamanna, vegna þess að þeir vildu ekki bíða eftir að að þeim kæmi í framkvæmdaáætlun sjónvarpsins. Þessar stöðvar eru í sjálfu sér ófullkomnar og var aldrei ætlað að vera varanlegar. Þær eru að ganga úr sér og verða allsendis ófullnægjandi. Það verður að gera sérstakar ráðstafanir, sem kosta verulegt fjármagn, til að bæta úr þessu. Það þarf að afla í stórum stíl varasenda og varatækja, og svo mætti nefna margt fleira. En í þessu efni eru og mjög stórir liðir, eins og t.d. að koma dreifingu sjónvarpsins í horf að það sjáist á fiskimiðunum umhverfis landið. Það var sérstaklega rætt í sambandi við fsp. hér í Sþ. s.l. þriðjudag, og ætla ég því ekki að fjölyrða um það. En hæstv. menntmrh. upplýsti, að sú framkvæmd ein mundi kosta um 650 millj. kr. Auk þess kemur svo það, sem ég og ýmsir fleiri alþm. hafa talið allsendis óviðunandi, að það er viss hluti þjóðarinnar, að vísu lítill, en sem síst skyldi, sem nær ekki til sjónvarpsins enn í dag, og það er vegna þess að sjónvarpsskilyrði eru ekki á sveitabæjum víðs vegar um landið. Kostar verulegt fjármagn að gera átak í þeim efnum, þó ekkert að mínu viti til þess að skelfast yfir, og það á að mínu viti að ganga fyrir. Ég kem nánar að því í máli mínu á eftir. Það er einmitt um þetta atriði sem 2. mgr. þáltill. þeirrar, sem hér er til umr., fjallar um.
Þessi viðfangsefni, sem blasa við hjá Sjónvarpinu vegna dreifingarkerfis sjónvarpsins, eru talin kosta miðað við núv. verðlag, þau nauðsynlegustu, um 1300 millj. kr. Er augljóst að það eru engar smáupphæðir sem hér er um að ræða. Ef við leggjum saman kostnaðinn, sem áætlaður er vegna hljóðvarps og sjónvarps, er um tæpa 2 milljarða að ræða. Hér er um mjög brýn viðfangsefni að ræða. Það er því ekki að furða þótt við flm. þessarar þáltill. teljum nú rétt að ríkisstj. beiti sér sérstaklega í þessu máli. Þess vegna er gert ráð fyrir því að ríkisstj. vinni að því í samráði við Ríkisútvarpið að gerð verði sérstök kostnaðar- og framkvæmdaáætlun. Ég geri ráð fyrir að við starf fyrirhugaðrar n. eða þeirra manna, sem yrði falið að vinna þetta starf, kæmi í góðar þarfir það verk, sem Landssíminn hefur unnið í þessu efni, og auðvitað hlýtur að verða byggt á þeim upplýsingum og rannsóknum, enda hygg ég að þær séu óyggjandi. Auðvitað þarf að raða niður framkvæmdum, og kann að vera nokkur vandi á höndum í því efni. Ekki geri ég ráð fyrir að þetta verði framkvæmt allt á augabragði.
Auk þess tel ég að það sé mjög þýðingarmikið hlutverk þeirra aðila, sem vinna það verk, sem till, gerir ráð fyrir, að taka fyrir hvernig á að fjármagna þessar framkvæmdir, því að lítið verður gert í þessum efnum ef ekki verður gert myndarlegt átak í því efni. Ég geri ráð fyrir að það sé nauðsynlegt og ég sé ekki annað en það sé fullkomlega eðlilegt að það verði tekin veruleg lán til að flýta þessum framkvæmdum. En ég tel að það sé þó ekki einhlítt að taka lán og auðvitað þarf að greiða lán að lokum. Þess vegna þarf jafnhliða að leggja áherslu á að efla tekjustofna Ríkisútvarpsins. E.t.v. telja menn að það sé hægara sagt en gert, og auðvitað má það til sanns vegar færa. En ég bendi á að þeir tekjustofnar, sem hér er aðallega byggt á, afnotagjöld af hljóðvarpi og sjónvarpi og auglýsingatekjur, þessir tekjustofnar, og á ég þá sérstaklega við afnotagjöldin, hafa ekki verið hagnýttir eðlilega, langt frá því.
Af hálfu Alþ. og ríkisstj. hefur verið búið skammarlega að Ríkisútvarpinu og fullkomið ábyrgðarleysi hefur í seinni tíð ríkt í þessum efnum. Það hlýtur að vera skylda þessara aðila að sjá svo um að Ríkisútvarpið hafi eðlilegan fjárhagsgrundvöll til að standa undir eðlilegum rekstri sínum og þeirri þjónustu sem þessi stofnun veitir fólkinu í landinu og almenningur vill fá. Þeim mun frekar ætti þetta að vera þar sem vart er hægt að hugsa sér, þó að afnotagjöld útvarps væru stórlega hækkuð, að nokkur þjónusta, sem veitt er af opinberri hálfu, geti verið ódýrari en sú, sem Ríkisútvarpið veitir, miðað við þetta framlag og það sem það veitir þeim sem greiða afnotagjöldin.
Á fyrstu árum Ríkisútvarpsins og ég hygg lengi fram eftir var það svo, að talið var að það væri nokkurt samband og ákveðið hlutfall á milli afnotagjalda af útvarpi og áskriftagjalda af dagblöðunum. Það var talið rétt og stóð ekki á því, ég held að mér sé óhætt að fullyrða það, — á þeirri tíð, að þegar dagblöðin hækkuðu, þá var Ríkisútvarpinu veitt heimild til að hækka sín afnotagjöld. En í þessu efni hefur orðið breyting og hennar fer að gæta, að ég ætla, um 1960. Frá 1960 hafa afnotagjöldin hækkað mikið, en þau hafa ekki hækkað til jafns við áskriftagjöld dagblaðs. Ég hef fyrir framan mig útreikning á þessu og samanburð frá 1960 til ársins 1974. Ég skal ekki fara að rekja það hvert ár, en strax upp úr 1960 fer að síga á ógæfuhliðina og heldur svo áfram með auknum þunga fram á þennan dag. Ef afnotagjald útvarps, sem var 300 kr. 1960, er látið hafa þá vísitöluna 100, þá er vísitala afnotagjaldsins nú 800 í staðinn fyrir 100. Afnotagjaldið er 2400 í staðinn fyrir 300. Ef áskriftargjald dagblaðs er með vísitöluna 100 1960, þá er áskriftargjaldið 480 kr., reiknað með því er vísitalan í ár 1300 og áskriftargjald dagblaðsins 6240. Hér er mikill munur á, og auðvitað hefur þetta haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir Ríkisútvarpið. Eðlilegar tekjur þess hafa verið skertar verulega. Það hefur komið fram í ýmsu og hlýtur að gera. E.t.v. hefur það að einhverju leyti komið fram í því, að það hefur verið hægt að verja minna til dagskrárgerðar.
En ég held mig í máli mínu núna við dreifikerfið, og það er augljóst að það hefði verið hægt að gera miklu meira fyrir dreifikerfið ef ekki hefði verið horfið að því óheillaráði að lækka afnotagjöld útvarps í hlutfalli við áskriftargjald dagblaðs. Hafa verið gerðir útreikningar af framkvæmdastjóra fjármáladeildar Ríkisútvarpsins, hvað þessi þróun hafi kostað Ríkisútvarpið — hljóðvarpið — tölulega á þessum tíma. Hann kemst að þeirri niðurstöðu, að lauslega áætlað hefði Ríkisútvarpið haft 600 millj. kr. a.m.k. meira ráðstöfunarfé miðað við núgildandi verðgildi peninga, ef afnotagjaldið hefði frá árinu 1960 fylgt verði dagblaðs.
Ég sagði áðan að samkv. upplýsingum Landssímans væru þau miklu verkefni, sem biðu úrlausnar varðandi dreifikerfi hljóðvarpsins, það umfangsmikil að þau mundu kosta 650 millj. kr. Það er ekki meira en nokkurn veginn það sama sem talið er öruggt að Ríkisútvarpið hafi misst af hreinlega vegna þess að Alþ. og ríkisstj. á hverjum tíma hafa ekki haft víðsýni og ábyrgðartilfinningu til að sjá um að Ríkisútvarpið hefði þann rekstrargrundvöll sem því var ætlað á fyrstu árum þess. Við vitum kannske allir að einhver hluti af ástæðunni fyrir þessu er sú að afnotagjaldið kemur inn í vísitölu framfærslukostnaðar á hverjum tíma.
Ég skal ekki fjölyrða frekar um að lýsa því ástandi, sem nú er, né víkja að því sem liðið er. Aðalatriðið er að bæta úr þessu. Það verður ekki gert nema m.a. verði efldir tekjustofnarnir og hækkað afnotagjaldið. Við flm. þessarar till. teljum að það sé svo mikið vangert í sambandi við dreifikerfi hljóðvarps og sjónvarps að nauðsynlegt sé að taka til athugunar hvort ekki sé hægt að setja reglur um það, að ákveðinn hluti afnotagjaldanna gangi til dreifikerfisins. Við sláum ekki neinu föstu í þessu efni, en bendum á að rétt sé að athuga þetta. Það kann að vera að þetta sé ekkert sáluhjálparatriði í sjálfu sér, því að aðalatriðið er að fá fjármunina, en þetta er hugmynd samt, sem okkur þykir þess verð að sé athuguð.
Það má aðeins minna á það að tekjustofnar hljóðvarps og sjónvarps eru eins byggðir nema að því leyti er varðar sjónvarpið, þá er ákveðið að tollur af innfluttum sjónvarpstækjum skuli ganga til dreifikerfis sjónvarps. Þarna er farið inn á þá braut að ákveða að ákveðnar tekjur skuli ganga til ákveðinna þarfa, nokkuð í líkingu við það sem við tölum um í till. að verði tekið til athugunar almennt. En þess má geta að þessi tekjustofn, tollur af innfluttum sjónvarpstækjum, hafði þýðingu meðan innflutningurinn var mestur og verið var að byggja upp sjónvarpskerfið. En hann hefur minni þýðingu eftir því sem uppbygging sjónvarpsins nær lengra, en gæti fengið nýtt lífsmark í sig undir þeim kringumstæðum að skipt væri frá því, sem nú er, í litasjónvarp. En nú hefur þessi tekjustofn ekki meiri þýðingu en svo að fyrir árið 1973 voru þessar tolltekjur áætlaðar um 20 millj. kr. En á því ári þurfti 35–40 millj. í afborganir og vexti af skuldum, sem stofnað hafði verið til vegna dreifikerfis sjónvarpsins, þannig að af þessu má marka, að þó að þetta hafi haft sitt gagn, þá leysir þessi tekjustofn ekki þau viðfangsefni sem nú er við að glíma.
Þetta er um 1. mgr. till., og varðar þessi mál almennt. En í 2. mgr. er talað um að fela ríkisstj. að hlutast til um, að Ríkisútvarpið komi upp endurvarpsstöðvum fyrir þá sveitabæi sem nú njóta ónothæfra eða engra sjónvarpsskilyrða, ríkisstj. afli sérstaks fjármagns í þessu skyni og stefnt verði að því að ljúka framkvæmd þessari innan tveggja ára. Hér er þetta viðfangsefni sett í algeran sérflokk, og það er vegna þess, eins og ég kom lítillega inn á áður, að þetta varðar eina fólkið sem á heimilum sínum hefur ekki aðstöðu til að njóta sjónvarpssendinga vegna þess að þar eru ekki sjónvarpsskilyrði. Nú þarf ekki að ræða það hér né raunar á öðrum vettvangi hve þýðingarmikið menningartæki sjónvarpið er. Öllum ber saman um það. En svo þýðingarmikið sem það er í þéttbýlinu, þá er það enn þá þýðingarmeira í strjálbýlinu, einangruninni. Þess vegna er það, að það er verulegt framlag til að jafna aðstöðumuninn milli þéttbýlis og strjálbýlis að koma á sjónvarpi í strjálbýlinu. En ef svo vill til að sumir staðir njóti ekki sjónvarpsins og það séu einmitt þeir staðir sem helst þurfa stuðnings við til jafnvægis við þægindi fólksins í þéttbýlinu, þá verður sjónvarpið beinlínis til þess að breikka bilið á milli þessa fólks og þjóðarinnar almennt. Þess vegna er það, að þetta er óviðunandi ástand.
Hins vegar þurfa menn ekki að undrast það þó að Ríkisútvarpið sé ekki búið að leysa þessi mál. Ef menn hafa undrast það, þá vona ég að menn geri það ekki eftir þær upplýsingar sem ég hef gefið hér um fjárhag og viðfangsefni Ríkisútvarpsins. Auðvitað er það svo að vissu marki, að Ríkisútvarpið hefur orðið í uppbyggingu sinni að láta viss arðsemissjónarmið ráða nokkru, og við það er ekkert að athuga, þ.e.a.s. að fyrst sé lögð áhersla á að gera það sem gefur á móti mestar tekjur, í þeirri von að geta á þann hátt getur leyst önnur aðkallandi viðfangsefni. En þetta viðfangsefni varðandi þá sveitabæi, sem nú njóta ekki sjónvarpsskilyrða, er þess eðlis að þar er ekki hægt að koma að neinum arðsemissjónarmiðum. Það mundi aldrei borga sig fyrir sjónvarpið, a.m.k. ekki í næstu framtíð, peningalega að leggja í þann kostnað sem þarf til þess að koma sjónvarpsskilyrðum á þessa sveitabæi. En það eiga ekki að koma hér að nein arðsemissjónarmið. Hér er um að ræða jafnvægismál. mál sem varðar jafnvægi í byggð landsins, og hér er réttlætismál sem er svo aðkallandi að það á að leysa hvað sem líður öðrum þörfum sjónvarpsins og Ríkisútvarpsins í heild. Með tilliti til þessa höfum við flm. þessarar till. flutt þessa till. um sjónvarp á sveitabæi, sem nú er í 2. mgr. þessarar till., á tveimur undanförnum aðalþingum, á þinginu 1972–1973 og þinginu 1973–1974. En við höfum ekki fengið þá áheyrn sem hafi a.m.k. nægt til að málið fengi afgreiðslu. Því er það flutt hér á nýjan leik.
En hvers vegna er þá þessi þáltill. svo aukin og endurbætt og að vissu leyti önnur en áður? Það er vegna þess að við höfum alltaf verið áminntir um það, þegar mál varðandi sjónvarp á sveitabæi hafa komið hér á dagskrá, að það þyrfti að gera ýmislegt annað. Um það erum við alveg sammála. Það þarf að gera ýmislegt annað. Og þau viðfangsefni eru orðin svo knýjandi að það er líka nauðsynlegt að hefjast þar handa með öðrum hætti en hefur verið unnið að undanförnu að þeim málum. Þess vegna teljum við að ekki fari illa á því að hafa þessar tvær hliðar að vissu leyti á sama máli í sömu þáltill. Ég vil líka upplýsa það, að á síðasta aðalþingi flutti hv. 2. þm. Vestf. og fleiri till. varðandi sjónvarp á sveitabæi, sem var efnislega nákvæmlega eins og sú till. sem ég og mínir meðflm. flytjum. Þessar till. komu báðar til athugunar í fjvn., það var seint á þinginu, en þar virtist málið horfa þannig við, að víðtæk samstaða um afgreiðslu næðist, ef væri jafnframt tekið upp í till. það sem varðar dreifikerfi hljóðvarps og sjónvarps almennt. Við flm. þessarar till. töldum því rétt að halda áfram þar sem frá var horfið á síðasta aðalþingi og freista þess að málið nái nú fram að ganga. Ég vona að málið nái fram að ganga þannig, að það verði ekki einungis samþ. fyrri mgr. þáltill., að vinna að áætlanargerð að þessu vandamáli almennt. Ég hygg að það geti naumast nokkur maður verið á móti því í sjálfu sér og það er ekki hægt að segja að það kosti mikla fjármuni að gera áætlanirnar. Fyrst þarf að gera áætlun. En ég vona líka, að það hræðist enginn hv. þm. að greiða atkv. með 2. mgr. till., að það sé mætt þessu sérstaka verkefni, að koma sjónvarpinu á sveitabæi sem ekki njóta sjónvarpsskilyrða, það kostar peninga, og það sé gert strax, eins og við viljum hafa það. Við viljum, að þetta sé framkvæmt undandráttarlaust á tveim næstu árum.
Fyrir 2–3 árum gerði Landssíminn ítarlega áætlun um hvað þetta mundi kosta. Þá var reiknað með að hér væri um 472 sveitabæi að ræða og það þyrfti 150 endurvarpsstöðvar fyrir þessa bæi. Það hrökkva margir við þegar verið er að tala um í þessu sambandi endurvarpsstöðvar. Menn sjá kannske fyrir sér mikinn vélakost, stórar byggingar í sambandi við hverja endurvarpsstöð. En þetta er misskilningur. Þetta er ekki stórt í sniðunum, það er ekki byggt einu sinni hús yfir þessar stöðvar. Þessar stöðvar eru í smámálmkössum og tækin eru þannig að það kemur að fullum notum. Fyrir 2–3 árum var reiknað með að þessi kostnaður yrði um 150 millj. kr. Ég tók eftir því að sumir hrukku við og töldu að það væri hæpið, kannske óhæfa, að verja 150 millj. kr. til þessara hluta. Ég hef aldrei getað skilið það sjónarmið. Ég sagði þá við ýmsa menn: Þetta er ekki meira en einn skuttogari kostar, og það er varla svo rislág vík eða fjörður umhverfis þetta land, að menn fái sér ekki skuttogara ef þeir ætla sér að fá skuttogara. Auðvitað hefur þetta hækkað. Samkv. útreikningum Landssímans hygg ég, að það, sem reiknað var með að mundi kosta 150 millj. kr. fyrir 2–3 árum, sé nú talið kosta a.m.k. 220 millj. En ég held að þessi hækkun haldi ekki í við hækkun skuttogaraverðsins.
Hér er ekki um slíkt fjárhagsmál að ræða að menn þurfi að vera að velta því fyrir sér ár eftir ár, hvort þeir eigi að vinna þetta nauðsynjaverk og þetta réttlætisverk. Hér þarf ekki annað en það komi skýrt fram vilji hv. alþm., þá er hægt að framkvæma þetta og það hlýtur að verða framkvæmt. Ég treysti því, að hv. þm. samþ. þetta, hvar í flokki sem þeir eru. Ég hef ekki orðið var við neinn ágreining í þessu máli eftir flokkum. Menn geta fylgt góðu máli og réttlætismáli í hvaða flokki sem þeir ern, ef þeir vilja það við hafa. Hér er tækifærið.
Herra forseti. Ég legg til að þessu máli verði vísað til fjvn.