16.05.1975
Sameinað þing: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4379 í B-deild Alþingistíðinda. (3678)
13. mál, rafvæðing dreifbýlisins
Steingrímur Hermannsson:
Forseti. Ég skal vera stuttorður, en ég ber fram á sérstöku þskj. till. til rökstuddrar dagakrár og vil gera grein fyrir henni í örfáum orðum.
Þessi þáltill. um rafvæðingu dreifbýlisins er lögð fram í annað sinn mikið til óbreytt. Á síðasta þingi var hún lögð fram og aftur í upphafi þessa þings, eins og fram kemur á númeri þskj. Varð ég nokkuð undrandi að hún skyldi ekki afgreidd fyrr. Þegar ég ræddi þetta við nm. í fjvn. skildist mér á þeim, að hún yrði afgreidd þannig að gert yrði ráð fyrir því að slík áætlun yrði gerð á árinu 1975, en hins vegar teldu menn að endurskoða þyrfti ýmis atriði í tillgr. og á það féllst ég. Ég varð því mjög undrandi þegar ég sá nál., að þar var þess ekkert getið að slík áætlun skyldi liggja fyrir á þessu ári og flutti því rökstudda dagskrá þar sem gert er ráð fyrir að umrædd áætlun verði gerð á þessu ári. Það er eina leiðin til þess að fá atkvgr. um það atriði.
Nú er hins vegar upplýst að orðið hefur ritvilla í þessu nál. Þar átti að vera að slík rafvæðingaráætlun yrði gerð á þessu ári. Á það get ég fallist og mun því draga til baka mína rökstuddu dagskrá.
Ég get getið þess að samkv. upplýsingum, sem ég fékk í gærmorgun hjá Orkustofnun, er mjög lítið verk að gera slíka áætlun. Þeir segjast hafa nauðsynlegar upplýsingar við höndina. Upplýst var að með hækkun, sem orðið hefur, yrði kostnaður við rafvæðingu þessa 131 býlis, sem gert er ráð fyrir í minni till., nú um 343 millj. kr. í staðinn fyrir 189 sem áætlað var af mér í þáltill. og er það í samræmi við eðlilega hækkun á þessu tímabili. Þeir segja mér að þeir geti auðveldlega haft slíka áætlun tilbúna í haust. Hvort hún verði til tveggja ára eða þriggja ára, hvort verði 5 km eða 6 km milli bæja skiptir ekki öllu máli. En með tilvísun til þess, sent komið er fram hjá hæstv. iðnrh., að ljúka á þriggja ára áætluninni nú á þessu ári, er nauðsynlegt að ný áætlun liggi fyrir í haust, þannig að taka megi tillit til hennar við gerð fjárlaga næsta árs.