16.05.1975
Sameinað þing: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4382 í B-deild Alþingistíðinda. (3691)
161. mál, skipan gjaldeyris- og innflutningsmála
Jón G. Sólnes:
Herra forseti. Í sambandi við afgreiðslu þessa máls hjá hv. allshn., sem hér liggur fyrir á þskj. 762, vil ég lýsa yfir að ég harma það skilningsleysi sem æðstu stofnanir þjóðarinnar í peninga- og gjaldeyrismálum hafa sýnt þessu máli. Ráðamenn þeirra stofnana, sem fara með þessi mál, virðast gersamlega hafa glatað áttum í þessu máli ef þeir í alvöru telja að allt sé í lagi um meðferð þeirra mála og engra minnstu breytinga sé þörf.
Hér sannast eins og svo oft áður að öll byrjun er erfið. En ég vil lýsa yfir að baráttunni fyrir skynsamlegri leiðréttingu á meðferð innflutnings- og gjaldeyrismála þjóðarinnar verður haldið áfram af fullum krafti og ég vona að um síðir takist að lækna þá blindu sem ráðamenn þjóðarinnar virðast vera slegnir í sambandi við meðferð þessara mála. En á því er hin mesta nauðsyn.