28.11.1974
Sameinað þing: 14. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 479 í B-deild Alþingistíðinda. (371)
29. mál, bætt skilyrði til viðtöku hljóðvarps- og sjónvarpssendinga
Flm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sighvati Björgvinssyni og Oddi Ólafssyni fyrir málefnalegt framlag í þessar umr.
Mér varð á að segja áðan að ég teldi að það hlyti að verða algjör samstaða og eindrægni um framkvæmd þeirrar þáltill., sem hér er til umr., og menn mundu ekki skiptast eftir flokkum í þeim efnum. Mér varð þetta á að því leyti, að komið hefur fram að það er ein undantekning í þessu efni, þar sem er hv. þm. Stefán Jónsson. Hann kaus að standa hér upp, ræða ekki efnislega um þetta mál, heldur vera með óskiljanlegan skæting og þvætting og reyna að hefja einhverjar flokkspólitískar þrætur um þetta mál. Mér þykir miður, að hv. þm. skuli gera þetta, og þeim mun miður er það þar sem þetta er maður, eins og hann sagði sjálfur, sem um langt skeið starfaði hjá þeirri stofnun sem við ræðum hér um, Ríkisútvarpinu.
Hann var með nokkrar vafasama: fullyrðingar sem ég ætla ekki að fara að elta ólar við. Hann sagði að afnotagjöld Ríkisútvarpsins hafi ekki verið tekin inn í vísitölu fyrr en í tíð viðreisnarstjórnarinnar. Ég leyfi mér að efast um að þetta sé rétt. Þá er hv. þm. að fara með það sem hann veit ekki, og þó liggur mér við að segja að ég gæti trúað, miðað við málflutning hans áðan, að hann vissi að þetta væri ekki rétt. Ég segi: miðað við málflutning. Hann minntist á setu mína í útvarpsráði. Ég get best sagt um það sjálfur og auk þess eru margir til frásagnar um að það, sem hann sagði um afstöðu mína til hækkunar afnotagjalda, var algjörlega rangt, gripið úr lausu lofti. Það vill svo til, að í hvert sinn sem hækkun afnotagjalda hefur verið til umr. í útvarpsráði hef ég alltaf verið með hækkuninni. Þó að ég hefði ekkert annað gert öll þau ár sem ég er búinn að vera í útvarpsráði, þá eru allir sammála um að þetta hafi ég gert, og það hef ég gert hvaða ríkisstj. sem í hlut hefur átt. Hann var með dylgjur um að ég hefði aldrei gert neitt til þess að lýsa vilja mínum eða reyna í verki að styðja að því, að Ríkisútvarpið hefði fjárhagslegan grundvöll fyrir starfsemi sinni. Þetta er líka út í loftið. Ekkert, sem þessi hv. þm. sagði, hefur neina stoð í veruleikanum, það sem skiljanlegt var, flest var óskiljanlegt.
Það var á síðasta kjörtímabili, í tíð síðustu vinstri stjórnar, sem keyrði um þverbak meðferðin á Ríkisútvarpinu. Þá kom það fyrir í fyrsta sinn frá stofnun Ríkisútvarpsins að fjárlög voru afgreidd með greiðsluhalla hvað við kemur rekstri Ríkisútvarpsins, — með greiðsluhalla upp á marga tugi millj. kr. Þetta hafði aldrei skeð fyrr. Þetta var vegna þess að ríkisstj. viðurkenndi að ekki var hægt að lækka útgjaldaáætlunina, en hún vildi ekki leyfa hækkun á afnotagjöldunum. Ég hélt ræður hér á Alþ. út af þessu máli. Ég bar fram till. um að þessi munur, greiðsluhallinn, yrði bættur með sérstöku framlagi úr ríkissjóði, brtt. við frv. til fjárlaga. Hún náði ekki fram að ganga, var felld af þáv. stjórnarflokkum. E.t.v. hefur hv. þm. Stefán Jónsson, sem er kunnastur fyrir dygga þjónustu við vinstri stjórnina, rétt upp höndina á móti þessu. A.m.k. ætla ég að hann hafi gert það, ef hann hefur verið þá á þingi.
Hvað á að þýða að vera að koma með svona skæting, rakalausan þvætting og staðlausar ásakanir á menn? Hvers vegna getur þessi hv. þm. ekki rætt málefnalega um þetta mál? Það er ekki mitt að svara, og ég get ekkert við þessu gert. Þetta er hvimleitt. En ég vænti þess að þetta framlag hv. þm. Stefáns Jónssonar verði ekki til þess að minnka stuðning hv. þm. almennt við það mikla hagsmunamál Ríkisútvarpsins og fólksins í landinu sem hér er til umr.