16.05.1975
Sameinað þing: 81. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4395 í B-deild Alþingistíðinda. (3721)
216. mál, vegáætlun 1974-1977
Jón Árm. Héðinsson:
Herra forseti. Þegar við ræddum þetta mál í fjvn. lét ég í ljós það sjónarmið, að auðvitað mundi brúin koma, spurning væri um tíma. Formaður fjvn. upplýsti að það væri samstaða meðal þm. í þessu kjördæmi að flýta verkinu, og þar sem samstaða er fyrir hendi hjá þessum hópi þm. tel ég rétt að liðsinna þeim og segi því nei við till.