28.11.1974
Sameinað þing: 14. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (374)
37. mál, atvinnumál aldraðra
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Í fjarveru 1. flm., hv. þm. Svövu Jakobsdóttur, vil ég leyfa mér að fara nokkrum orðum um þessa þáltill. okkar þremenninga, en hún er nú endurflutt frá síðasta þingi, þar eð hún varð þá ekki útrædd.
Till. er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta: „Alþ. ályktar að fela ríkisstj. að undirbúa í samráði við launþegasamtök landsins frv. til l. um atvinnumál aldraðra, og verði að því stefnt að allir, 67 ára og eldri, sem til þess hafa þrek og vilja, geti átt kost á atvinnu við sítt hæfi.“
Velferðarmál hlýtur það að teljast í fremstu röð þegar hlynnt er að öldruðum þegnum þjóðfélagsins á einn og annan veg. Þó að mörg ágæt spor hafi verið stigin til þess að létta þeim lífsbaráttu sína og gera ævikvöldið í mörgu bærilegra er enn margt óleyst í því efni og þá kannske helst í ýmsu því er snertir samskipti þessa fólks við þjóðfélagið, hina lifandi hringiðu mannlegs lífs, sem allir þurfa og eiga að vera í snertingu við sem lengst og best.
Efnaleg kjör og öryggi aldraðs fólks hafa tekið miklum og margvíslegum breytingum til batnaðar nú síðustu ár og má þó betur gera, því að enn er um lífeyri þessa fólks úr hinum ýmsu lífeyrissjóðum það að segja, að hann er ærið misjafn og sumir hafa þaðan ekkert til framfæris. Úr því var og er hinni svokallaðri tekjutryggingu ætlað að bæta, þó að seint verði metin þar jöfnuð að fullu. Við hljótum þó að álíta að þar hafi svo þokast fram að viðunandi megi teljast. En þá koma upp ýmis önnur vandamál hinna öldruðu, aðallega félagslegs eðlis, en undir þann þátt flokkast hiklaust sú spurning um atvinnuaðstöðu, sem hér er fyrst og fremst til umr.
Ég er í þeirra hópi, sem telja það lífsnauðsyn hverjum og einum meðan þrek og lífsorka leyfir að fá að sinna hugðarefnum sínum sem best og einnig að hafa starf við hæfi sem allra lengst.
1. flm. benti á það í framsöguræðu í fyrra að sú röskun, sem yrði á lífi fólks þegar það næði hámarksaldri í starfi, hefði svo mikil vandkvæði í för með sér fyrir svo marga að við lægi að skilgreina mætti ellina sem vandamál í þjóðfélagi okkar í stað þess að vera eðlilegt tímabil á æviskeiði mannsins.
Þetta þekkjum við öll frá umhverfi okkar. Vandamál margs þessa fólks verða oft og tíðum yfirþyrmandi, einkum þegar sú tilfinning sækir á að viðkomandi sé ekki lengur gildur þjóðfélagsþegn, annaðhvort í eigin augum eða annarra.
1. flm. benti einnig á það í sinni framsögu að í Noregi hefði farið fram ítarleg félagsleg rannsókn um afleiðingar þess að fólk verður að hætta í starfi sakir aldurs. Vissulega væri hér verðugt verkefni einnig fyrir það unga fólk, sem nú sinnir þessum margháttuðu félagsfræðum í námi sínu við Háskólann, að taka þetta einnig hér til rækilegrar athugunar, þó að enginn efi sé á því að vandamálið er til staðar og úrræða þarf að leita til lausnar því.
Nú um sinn hefur verið vinnuaflsskortur hér á landi og aldrað fólk hefur sannarlega getað fengið nóg af erfiðisvinnu viðast hvar. Hvort tveggja er hins vegar staðreynd, að ekki hentar erfiðisvinna öllum þeim, sem vegna aldurstakmarks hætta fyrra starfi, og þó hitt mikilvægara, að erfiðisvinna yfirleitt, fullur vinnudagur og oftast vel það, á ekki að vera eina hlutskipti þessa fólks, í hvaða starfi sem það áður hefur verið.
Víðast hvar úti um land er þó ekki um neitt annað að ræða og reyndar er vist svipaða sögu að segja hér úr þéttbýlinu einnig. Á þennan hátt, á hinum almenna vinnumarkaði erfiðisstarfa, er ekki hægt að leysa vandamál aldraðra þjóðfélagsþegna nema þá að mjög takmörkuðu leyti og á margan hátt með öðru og betra skipulagi. Einmitt að því verkefni beinist tillaga okkar. Starfsþrek og starfslöngun þessa fólks á ekki og má ekki kæfa, heldur veita sem heppilegastan farveg, þar sem hvort tveggja vinnst, aukin lífsfylling fólksins sjálfs og þjóðfélagslegur ávinningur í skynsamlegri og réttri starfsnýtingu.
Við leggjum ekki til neinar breyt. á hámarksaldri í starfi, þó að raunar megi segja að æviráðning sem slík í starf sé ærið umhugsunarefni og raunar vandamál sem þarf að sinna og fá fram vissa breytingu á. Það er fullkomlega eðlilegt og sjálfsagt að sjötugur þjóðfélagsþegn leggi niður sitt fasta, fulla starf, en jafnóeðlilegt að sá hinn sami þegn eigi þá fárra eða engra kosta völ í störfum. Sumir finna sjálfum sér það hugðarefni sem orka og oft ærið lífsþrek beinist að. Aðrir eiga þess ekki kost. Enn aðrir standa ráðalausir og ráðvilltir. Og erfiðismennirnir halda gjarnan áfram sínu 10–12 tíma striti á dag, oft með tilheyrandi vinnu um helgar, enda einskis annars völ.
Í till. okkar er vikið að þeirri skyldu þjóðfélagsins að finna ráð til úrbóta. Bent er á sérstaka vinnustaði sem eina leið, en á hitt leggjum við öll áherslu, að slík einangruð fyrirbæri, slitin úr tengslum við annað mannlegt umhverfi, eru því aðeins nauðsyn að annarra kosta sé ekki völ. Flest annað er heppilegra sé það kleift í framkvæmd. Lengd vinnudagsins skiptir mjög miklu og því er bent á það, að sú skylda verði t.d. lögð á atvinnufyrirtæki að sjá öldruðu starfsfólki sínu fyrir vinnu við sérstök léttari störf og styttri vinnutíma en almennt gerist. Það er mikilvægt að unnt sé að gera fólki kleift að starfa áfram í sama eða svipuðu umhverfi og það hefur unnið í, og þar þarf að finna einhverja færa leið. Það er rétt, vandamálið er viðamikið og torvelt úrlausnar. En það þarf að takast á við þennan félagslega vanda og leysa hann sem best og farsælast. Öll viljum við í einlægni að aðstaða aldraðs fólks verði sem best í hvívetna, og atvinnuaðstaða þess er framarlega, ef ekki hvað fremst í óleystum vanda margs þessa fólks, sem við svo sannarlega unnum þess að eigi ekki siður góða ævidaga í ellinni en á öðrum æviskeiðum. Því flytjum við þessa till.
Ég vil svo, herra forseti, leyfa mér að leggja til, að þessari till. verði vísað til nefndar, ég er ekki viss um hvort það er atvmn. eða allshn. sem ætti að fá þessa till.