16.05.1975
Neðri deild: 92. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4408 í B-deild Alþingistíðinda. (3747)
286. mál, iðnaðarmálagjald
Eðvarð Sigurðsson:
Hæstv. forseti. Það er vegna þeirra orða sem féllu hér hjá hæstv. iðnrh. Ég vil taka það fram að ég þekki ósköp vel hvað snertir Búnaðarmálasjóðinn og tel að það gegni öðru máli um bændastéttina í þessu efni. Ég ætla ekki að fara sérstaklega að rekja það mál, En hins vegar varðandi útflutningssjóð atvinnuveganna og þann sérstaka hluta, sem þar af er látinn ganga til samtaka útvegsmanna, er allt öðru máli að gegna. En ég verð nú að segja það að ég hef aldrei verið sérstaklega hrifinn af því, hreinlega ekki, og ekki heldur þeim hluta sem hefur verið látinn renna til samtaka sjómanna eða verkalýðssamtakanna. Það er hreint ekkert skemmtilegt og hef ég sannarlega ekki verið neinn sérstakur talsmaður þess.
En það, sem mér finnst hér skipta máli, er að menn geri sér ljóst inn á hvaða braut er nú verið að fara. Ég er ekkert endilega að andmæla því að þessar aðferðir séu notaðar þegar mál hafa verið vel skoðuð. Ég verð t. d. að játa það og dreg ekkert úr með því að ég greiddi strax atkv. með því að búnaðarmálasjóðsgjaldið væri hækkað sérstaklega vegna tilkomu Bændahallarinnar. Mér fannst það eðlilegt. Bændur voru að vísu ekki allir sammála um það, en engu að síður fannst mér það eðlilegt því að það var mikill meiri hluti þeirra sem var tvímælalaust á því. Nokkurt pólitískt átakamál var það þó. En ég greiddi þessu alltaf atkv. þegar ég hafði aðstöðu til þess þannig að ég er í grundvallaratriðum ekki andvígur því að einhverjar slíkar aðferðir geti verið notaðar. En það, sem ég var að reyna að segja hér áðan, var að þegar búið er að stíga það skref sem ætlað er að gera með þessu frv., þá verður eftirleikurinn ekkert sérstaklega auðveldur, ef menn ætla þá að fara að vinsa úr þeim sem kynnu að hafa áhuga á að fara í sama farið.
Hæstv. ráðh. sagði að þetta gjald væri ákaflega auðvelt í álagningu og innheimtu vegna þess að það væri alveg hliðstætt iðnlánasjóðsgjaldinu. Það, sem ég var að nefna áðan um innheimtu eða álagningu gjaldanna til styrktarsjóðanna, er nákvæmlega á sama hátt og þetta er hliðstæða iðnlánasjóðsgjaldanna eða lagt á sama stofn, þá eru þau gjöld lögð á sama stofn og atvinnuleysistryggingarnar og nákvæmlega á sömu aðila. En eins og ég sagði, við borgum árlega tugi þúsunda fyrir þessa þjónustu og er það þó bara álagningin, alls ekkert varðandi innheimtu gjaldanna, hana annast félögin sjálf. En sem sagt, ef aðrir eiga að fá þetta ókeypis og miklu meira en það, þá er sjálfsagt að athuga þau mál nánar.
Ég vil sérstaklega undirstrika það sem hv. 3. þm. Reykv. sagði hér áðan varðandi þau samtök sem hér er um að ræða og einkanlega Landssamband iðnaðarmanna. Það er ekkert sérstaklega fjölmennt, en það er ekki nokkur efi á því að ef þetta frv. verður að lögum óbreytt, þá verða mjög margir aðilar skyldaðir til þess að greiða til Landssambandsins, sem þeir fram að þessu hafa ekki viljað nein viðskipti eiga við.
Ég enda þetta enn með því að vara við því fordæmi sem þetta er, ef menn þá eru ekki reiðubúnir til þess að koma til móts við hvaða aðila sem væri sem líkt væri ástatt um.