16.05.1975
Neðri deild: 93. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 4423 í B-deild Alþingistíðinda. (3763)

Starfslok neðri deildar

Forseti (Ragnhildur Helgadóttir) :

Þar sem þetta er síðasti fundur Nd. á þessu þingi, vil ég leyfa mér að þakka hv. þdm. gott og drengilegt samstarf við mig sem forseta þessarar d. Sérstakar þakkir færi ég varaforsetum d. fyrir ágæta aðstoð þeirra, svo og skrifurum d. Og ég vil þakka skrifstofuliði Alþ. og starfsfólki þess öllu vel unnin störf þess og ánægjulegt samstarf. Þingfréttariturum vil ég einnig þakka þeirra störf.