04.12.1974
Neðri deild: 15. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 536 í B-deild Alþingistíðinda. (407)
75. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Eins og hv. alþm. er kunnugt hefur á undanförnum árum farið fram endurskoðun á l. um tekju- og eignarskatt og sú n., sem vann að þeim málum á vegum fyrrv. ríkisstj., lét í té mjög umfangsmikla og ítarlega skýrslu varðandi skattlagningu og hugmyndir um skattlagningu í framtíðinni. Ég gat um það í fjárlagaræðu minni að sú n. hafi verið leyst frá störfum, en að sjálfsögðu var hugsað að vinna áfram að endurskoðun skattal. og vonandi koma á yfirstandandi þingi fram einhverjar till. í sambandi við skattamálin.
Eins og fram kom í ræðu frsm. hefur Alþ. viðurkennt sérstöðu íslensku sjómannastéttarinnar með því að samþykkja í skattal. sérstakan frádrátt og talið að hér væri ekki um ósanngjarnt mál að ræða. Hversu langt á að ganga í þessum efnum er annað mál, hvort rétt er að ganga jafnlangt og hér er lagt til. Um það skal ég ekki segja á þessu stigi málsins, en get aðeins sagt að þeirri hugmynd, sem hér er hreyft, verður að sjálfsögðu gefinn gaumur í sambandi við þá endurskoðun og þær till. sem koma til með að verða lagðar fram varðandi hreytingu á skattalögunum.