04.12.1974
Neðri deild: 15. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í B-deild Alþingistíðinda. (409)
82. mál, orkulög
Flm. (Magnús Kjartansson):
Hæstv. forseti. Frv. sama efnis og það, sem hér er flutt af 4 þm., hefur legið fyrir undanförnum þingum sem stjfrv. Þ. á m. var það lagt fyrir aukaþingið sem við héldum hér í vor. Hins vegar hefur málið ekki verið afgr. þótt það hafi verið oft lagt hér fram, illu heilli vegna þess að hér er um að ræða stórmál sem mér finnst óhjákvæmilegt og okkur flm. að Alþ. taki afstöðu til.
Ég hef áður gert mjög ítarlega grein fyrir þessu frv. og nauðsyn þess og hef ekki hugsað mér að ítreka það að þessu sinni. Þær ræður mínar og umr. um þetta efni eru prentaðar í Þingtíðindum og þar eiga menn aðgang að þeim. En meginefni frv. er það að jarðhitasvæðum er skipt í tvennt, annars vegar háhitasvæði og hins vegar lághitasvæði. Háhitasvæði er þannig skilgreint að það sé háhitasvæði ef innan þess finnst 200 stiga hiti ofan 1000 m dýpis, og til nánari skilgreiningar eru svo talin upp þau háhitasvæði, sem Orkustofnun eru kunn, en tekið fram síðar að Orkustofnun muni halda áfram að kanna útbreiðslu þeirra.
Um þessi háhitasvæði er svo ákveðið að ríkið eigi allan rétt til umráða og hagnýtingar jarðhita á háhitasvæðum og uppleystra efna og gastegunda, sem háhita, vatni og gufu fylgja, þó með takmörkunum sem í lögum þessum standa. Hins vegar er svo tekið fram að landeiganda sé rétt að hagnýta sér jarðhita á lághitasvæði og hvern annan náttúrulegan jarðhita á yfirborði lands á háhitasvæði eins og honum þykir best henta til heimilisþarfa, framleiðslu og iðnaðar o.s.frv.
Það er sem sé lagt til í frv., að háhitasvæðin séu tekin út úr, og því lýst yfir að ríkið eigi allan rétt til umráða og hagnýtingar á þeim svæðum. Frá þessu eru svo gerðar veigamiklar undantekningar í 2. gr. Þar segir að þau sveitarfélög, sem land eiga á háhítasvæði við gildistöku laga þessara, skuli hafa forgangsrétt um vinnsluleyfi á því landi og vera undanþegin leyfisgjaldi fyrir vinnslu á því landi, enda hafi þau sótt um vinnsluleyfi innan 15 ára frá gildistöku laganna. Og enn segir: „Nú æskir sveitarfélag eða samtök sveitarfélaga eftir vinnsluleyfi vegna hitaveituframkvæmda á háhitasvæði í eigu ríkisins, og skal þá ríkinu heimilt að veita slíkt leyfi án sérstaks leyfisgjalds.“ Þannig hafa sveitarfélögin sama rétt og ríkið í þessu efni að öðru leyti en því að ekki er gert ráð fyrir að sveitarfélag geti komið í veg fyrir hagnýtingu á háhitasvæði ef það hefur ekki sjálft áhuga eða bolmagn á því að nýta það.
Ástæðan til þess, að þetta frv. var upphaflega samið, var sú, að það kom í ljós þegar kannaður var eignarréttur manna á landi þar sem fyrirhugaðar voru meiri háttar framkvæmdir í tengslum við jarðhita, að þessir landeigendur gerðu sér æðiháar hugmyndir um verðmæti þess lands. Þeir reyndust ekki fáanlegir til þess að selja landið á venjulegu gangverði, heldur vildu verðleggja jarðhitann sérstaklega og fá fyrir hann greiðslu sem þessi könnun leiddi í ljós að mundi verða ákaflega há.
Nú er það svo um þennan háhita í iðrum jarðar að það hefur enginn einstaklingur bolmagn til að nýta hann. Hann er hluti af almennum náttúrugæðum Íslands, hann er í eðli sínu eins og sólin, sem skin á okkur og vindarnir, sem leika um okkur, og við höfum ekki aðstöðu til þess að nýta hann nema með ákaflega nákvæmum rannsóknum sem allar hafa verið framkvæmdar af íslenska ríkinu. Og ég hygg að hann verði ekki heldur nýttur, þessi háhiti, nema til komi frumkvæði ríkisins, frumkvæði almannavaldsins. Þarna er um að ræða svo stórfelldar framkvæmdir, svo kostnaðarsamar að slíkt mun ekki gerlegt neinum öðrum aðilum. Ég tel það vera siðferðilega rangt að einstaklingar, sem eiga þetta land, geti skattlagt þjóðarheildina í sambandi við framkvæmdir í þágu þjóðarinnar allrar, hvort sem þar er um að ræða hitaveitur eða hugsanlegan iðnað, en hvort tveggja kemur til greina í sambandi við þessi háhitasvæði. Ég hygg að þótt menn hafi mismunandi skoðanir um eignarrétt almennt, þá séu langflestir íslendingar þeirrar skoðunar að það komi ekki til mála að hægt sé að skattleggja orku af þessu tagi, — orku sem ekki verður könnuð og ekki verður nýtt án þess að fjármunir almannavaldsins komi til, — og þessu þurfi þess vegna að skipa með lögum eins og lagt er til í þessu frv.
Mér hefur virst á undanförnum þingum, þegar um málið hefur verið fjallað, að meiri hluti sé á þingi fyrir samþykkt þessa frv. Iðnn. hv. Nd. hefur, að ég hygg, tvívegis skilað áliti um þetta frv. og meiri hl. n. mælt með samþykkt þess. Hún lagði til minni háttar breytingar sem tekið hefur verið tillit til við flutning þess nú, og ég á von á því að þessi afstaða sé enn óbreytt. Þess vegna geri ég mér vonir um að iðnn. muni geta tekið afstöðu til málsins á tiltölulega skömmum tíma núna, vegna þess að um málíð hefur verið fjallað svo ítarlega áður. Það hefur verið sent til könnunar fjölmörgum aðilum. M.a. liggur fyrir álitsgerð frá lagadeild Háskólans um það að þarna séu í engu skert eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, og það er búið að kanna allar hliðar á þessu máli, þannig að nú er ekki um annað að ræða en menn geri upp hug sinn, taki afstöðu.
Ég legg svo til, hæstv. forseti, að málinu verði að lokinni þessari 1. umr. vísað til 2. umr. og til hv. iðnn.