04.12.1974
Neðri deild: 15. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 545 í B-deild Alþingistíðinda. (413)

76. mál, nýting innlendra orkugjafa

Flm. (Magnús Kjartansson):

Herra forseti. Ég kemst ekki hjá því að leiðrétta nokkrar mjög furðulegar missagnir sem fram komu í ræðu hæstv. fjmrh. Hann hélt því fram að byggðirnar hér í nágrenni Reykjavíkur, þ.e.a.s. Kópavogur, Hafnarfjörður og Garðahreppur, hefðu átt í miklum erfiðleikum vegna þess að ég hefði staðið gegn því að þar yrði ráðist í hitaveituframkvæmdir með því að neita Hitaveitu Reykjavíkur um nauðsynlega hækkun á verði á heitu vatni. Þetta er tilhæfulaust með öllu. Hitaveita Reykjavíkur sótti ár eftir ár um hækkanir á heitu vatni og hún sendi til mín aftur og aftur fulltrúa bæði frá Kópavogi og frá Hafnarfirði til þess að mæla eindregið með því að Hitaveitan fengi þessa hækkun, svo að hægt væri að ráðast í framkvæmdir þar sem allra fyrst. En þegar Hitaveita Reykjavíkur var búin að fá þá úrlausn sem hún bað um, þá varð hins vegar minna úr efndunum gagnvart Hafnarfirði. Ég minnist ákaflega vel fundar, sem ég mætti á í Hafnarfirði ásamt bæjarstjórn Hafnarf jarðar og með mér var borgarstjórinn í Reykjavík. Þá var bæjarstjórn Hafnarfjarðar orðið það algjörlega ljóst að það stóð ekki á ríkisstj. í þessu sambandi. Það skorti vilja hjá borgarstjórn Reykjavíkur eins og þá stóðu sakir, og það er ekki hægt að færa nein rök að því að ég hafi á einn eða annan hátt bremsað þessar framkvæmdir. Öllu heldur gerðist það þegar þetta lá fyrir, að ég afgreiddi eina hækkunarbeiðni frá Hitaveitu Reykjavíkur með því skilyrði að staðið yrði við gefin fyrirheit gagnvart hafnfirðingum og ef það yrði ekki gert, þá mundi ég afturkalla þessa hækkun. Þetta þurfti til, til þess að knýja það fram að staðið yrði við þessi fyrirheit.

Hæstv. ráðh. minntist í þessu sambandi á það að Hitaveita Reykjavíkur hefði farið fram á að fá verð í samræmi við arðgjafarskilyrði frá erlendum lánveitendum. Þegar farið var að kanna það mál kom í raun og veru í ljós að einnig þetta var uppspuni með öllu. Það var ekki orð um það í samningi Hitaveitu Reykjavíkur við Alþjóðabankann að sett væru skilyrði um neina tiltekna arðgjöf. Það, sem staðhæft hafði verið um það efni, var tilbúningur frá rótum og það eru vægast sagt undarleg vinnubrögð,

Hins vegar var gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur afgreidd á ákaflega þægilegan hátt fyrir það mikilvæga fyrirtæki. Það var afgreitt á þann hátt að Hitaveitan getur lagt fé í þessar viðbótarframkvæmdir í Kópavogi og í Hafnarfirði og tekið meiri hlutann af því fjármagni, sem til þess þarf, af gjaldi fyrir heitt vatn og þarf því aðeins að taka minni hl. að láni erlendis. Þetta eru betri kostir en ég hygg að nokkur aðili á Íslandi, sem ræðst í meiri háttar framkvæmdir, geti haft. Flestir aðilar, sem ráðast í meiri háttar framkvæmdir, verða að sætta sig við það að taka lán fyrir miklum meiri hluta af þeirri upphæð sem varið er til framkvæmdarinnar. En Hitaveita Reykjavíkur fékk þessa ágætu fyrirgreiðslu, að geta sparað fyrir meira en helmingi af framkvæmdunum, að geta tekið það sem sparnað af sínum árlegu tekjum. Það er mikil fjarstæða að halda því fram að fyrirgreiðsla af þessu tagi beri ekki vott um áhuga á því að þessum málum yrði flýtt og auðveldaði ekki stórlega Hitaveitu Reykjavíkur að geta gert það, enda tel ég það vera hina brýnustu nauðsyn að þeim málum sé flýtt eins og mögulegt er. Þegar ég átti sem iðnrh. umr. um þetta við borgarstjórann í Reykjavík þá kom okkur saman um það að hafa um það fyllstu samvinnu, ef hægt væri, að flýta málum, þá skyldi ég gera mitt til þess að því leyti sem það kynni að koma til kasta ríkisins.

Enn fremur fullyrti hæstv. ráðh. að stofnun hitaveitu á Suðurnesjum hefði strandað hjá mér sem iðnrh. Þetta er algerlega út í hött. Mér finnst að þessi hæstv. ráðh, ætti að kynna sér málefni síns eigin rn. svolítið betur en hann virðist hafa gert, því að umr. um stofnun hitaveitu á Suðurnesjum fóru fram við fjmrn., við það rn. sem þessi hæstv. ráðh. veitir forstöðu. Það var þar sem unnið var að undirbúningi málsins. Það var aðeins fylgst með af hálfu iðnrn., en allur undirbúningur, allt sem snerti fjármál, var í höndum fjmrn. og hafi eitthvað strandað, þá hefur það strandað þar. Ekki strandaði það á neinn hjá iðnrn.

Hæstv, ráðh. sagði að ég hefði allt í einu vaknað þegar orkukreppan skall á s.l. haust og gert mér ljóst þá allt í einu að hagkvæmt væri að nýta innlenda orkugjafa í stað innfluttrar olíu. Þetta hefðu aðrir menn vitað áður, ég hefði ekki vaknað fyrr en þetta gerðist. Þetta er ákaflega mikið fjarstæða eins og annað sem hæstv. ráðh. sagði. Þegar fyrrv. ríkisstj. ákvað að ráðast í Sigölduvirkjun var um leið ákveðið að tengja saman Norðurland og Suðurland til þess að sem stærstur markaður yrði fyrir þessa virkjun, og þá var fyrst og fremst verið að hugsa um hinn stóra húshitunarmarkað sem þar kynni að vera hægt að opna. Landsvirkjun var falið að setja inn í áætlanir sínar um framkvæmdirnar húshitunarmarkaðinn, eftir því sem menn teldu að hann kynni að mettast. Og þetta var gert. Áætlanir Landsvirkjunar voru allar við það miðaðar að tryggja næga orku til húshitunar á öllu þessu svæði. Þetta var ákvörðun fyrrv. ríkisstj. að þannig skyldi haldið á Sigölduvirkjun að orka frá henni færi til húshitunar á svæði, sem mikill meiri hl. þjóðarinnar býr á. Hins vegar var það mat sérfræðinga að þessi húshitunarmarkaður mundi ekki opnast nema á tiltölulega löngum tíma. Þeir einir mundu hafa áhuga á því að taka upp húshitun sem væru að byggja sér ný hús eða nýjar íbúðir og gætu hagað íbúðarbyggingum sínum í samræmi við það. Það var talið að kostnaður við að breyta frá olíukyndingu yfir í rafhitun yrði það mikill að menn mundu ekki telja fjárhagslega hagkvæmt að gera það. Þetta olli því að áætlanir manna um þróun á þessu sviði voru þær að þetta mundi taka alllangan tíma. Það var þetta sem breyttist um leið og orkukreppan skall á. Þá var munurinn svo mikill á því að nýta annars vegar innlenda orkugjafa og hins vegar erlenda, að það var augljóst að það gat svarað kostnaði að nýta raforku einnig í gömlum húsum og íbúðum, enda þótt þar yrði að koma upp nýju hitunarkerfi. Það var þetta sem breyttist með olíukreppunni. Og ég er satt að segja dálítið undrandi á því að hæstv. ráðh. skuli ekki gera sér grein fyrir þessari einföldu staðreynd.

Hæstv. ráðh. hafði uppi almennar staðhæfingar um frammistöðu mína á sviði orkumála þau þrjú ár sem ég gegndi ráðherrastörfum, og ég held að ég fari nú ekki að fara út í neitt almennt pex um þau atriði. Ég hygg, að hæstv. ráðh. þurfi ekki annað að gera en fletta fjárl. í nokkur ár til þess að átta sig á því að í tíð fyrrv. ríkisstj. voru framkvæmdir í orkumálum og framlög til orkumála margfölduð í raunverulegu verðmæti frá því sem var í tíð viðreisnarstjórnarinnar. Það var unnið samtímis að meiri háttar virkjunum í öllum landshlutum. Það lenti á fyrrv. ríkisstj. að ráðast í Lagarfossvirkjun, þó að lagaheimild væri þar fyrir. Það lenti á fyrrv. ríkisstj. að leysa þann hrikalega vanda sem upp hafði komið á Norðurlandi vegna stefnu viðreisnarstjórnarinnar á því sviði, hinu fræga Laxármáli, sem, ef ekki hefði tekist að leysa það, hefði getað þýtt það að Laxárvirkjun væri ekki enn farin að framleiða orku. Það lenti á fyrrv. ríkisstj. að ákveða með brbl. virkjun á Vestfjörðum vegna þess að viðreisnarstjórnin hafði ekki haft fyrirhyggju til þess.

Það hefur aldrei fyrr í sögu íslendinga verið unnið eins mikið að virkjunarframkvæmdum og framkvæmdum á sviði orkumála eins og í tíð fyrrv. ríkisstj. Þar með er ég ekki að segja að nóg hafi verið gert. Því fer fjarri. Orkuskorturinn um allt land sýnir það. En sá orkuskortur er einnig afleiðing af því að eftirspurn eftir raforku varð á þessum þremur árum miklu meiri en áður var. Menn reiknuðu áður með því að eftirspurn eftir orku mundi aukast um svo sem 7% á ári. Það var sá staðall sem stuðst var við í tíð viðreisnarstjórnarinnar. En sú mikla framsókn, sem hófst á öllum sviðum atvinnumála á Íslandi, bætti kjör almennings. Stóraukin notkun heimilistækja m.a. gerði það að verkum að í sumum landshlutum jókst raforkunotkun á einu ári um hvorki meira né minna en 27%, t.d. á Austfjörðum. Og að sjálfsögðu leiddi þetta til þess að allar áætlanir, allar orkuspár, sem miðaðar voru við lægri töluna, reyndust algerlega rangar.

En það sem máli skiptir í þessum efnum er ekki að karpa um liðna hluti, heldur að vinna að því að tryggja að þær orkulindir, sem þjóðin á og eru einhver dýrmætasta eign hennar, nýtist landsmönnum sem best, að þær nýtist fólki um allt land, að menn hafi jafnrétti á þessu sviði. Að því tel ég, að við verðum að vinna skipulega á næstunni og sú till., sem ég flyt ásamt hv. þm. Lúðvík Jósepssyni, stuðlar að þessu og er áminning um þá till. sem flutt var af fyrrv. ríkisstj. á síðasta þingi.

Hæstv. ráðh. sagði að mér færist ekki að tala um byggðalínuna milli Norðurlands og Suðurlands, ég hefði ekki tryggt nægilegt fjármagn til þeirra framkvæmda. Ég hélt að hæstv. fjmrh. ætti a.m.k.að hafa gert sér grein fyrir því að lágmarksverkefni eins fjmrh. er að útvega þá fjármuni sem Alþ. felur honum að útvega. Síðasta þing heimilaði þáv. fjmrh. að afla fjár til byggingar byggðalínu, 200 millj. kr. Ég undirbjó svo gerð þessarar byggðalínu í samræmi við þetta. Það var ekki mitt að útvega fjármunina, það var hæstv. fjmrh. Og það kom aldrei upp á ríkisstjórnarfundi í tíð fyrrv. ríkisstj. nein till. um að hætta við þessa framkvæmd eða fresta henni. Það var engin ákvörðun hjá fyrrv. ríkisstj. önnur en sú að halda það strik sem tekið var með þessari tillögugerð og þess vegna beitti ég mér að sjálfsögðu fyrir því, að sú n., sem að þessu verki vann, yrði sér úti um efni eftir því sem hún gæti og gerði pantanir sem nema um 70 millj. kr., eins og hæstv. ráðh. minntist á, og nægði til þess að hægt hefði verið að hefja þetta verk 15. sept. í haust. Hafi eitthvað staðið hér á fjármunum þá getur hæstv. fjmrh. deilt um það við félaga sinn, hæstv. samgrh., en a.m.k.eftir 16. sept. hefði það átt að vera verkefni þessa hæstv. ráðh. að útvega fjármuni til þess að hægt væri þó að vinna úr þeim efnivið sem hér lá tilbúinn á hafnarbökkum og hægt var að hefja framkvæmdir við strax 15. sept. Þetta var ákaflega aðkallandi og brýnt mál, eins og ég hygg að norðlendingar geri sér nú ljóst öðrum mönnum fremur. Mér er fullkunnugt um það að ein sendinefnd af annarri hefur komið frá Norðurlandi og átt viðræður við hæstv. iðnrh. og spurst fyrir um það hvers vegna þessar framkvæmdir séu ekki hafnar, en fengið ákaflega óskýr svör. Og ég veit ekki til þess að fyrir liggi nein yfirlýsing frá hæstv. iðnrh. um að þessi lina verði lögð, þó að ég geri mér sannarlega vonir um það að hin neikvæða afstaða hans komi ekki til með að ráða stefnunni. Ég vænti þess að hæstv. fjmrh. fyrir sitt leyti tryggi það fjármagn, sem ég er viss um að Alþ. ákveður að verja til þessa verkefnis, og hann láti það ekki stranda á einhverju framtaksleysi af sinni hálfu.

En eins og ég sagði áðan, held ég að deilur um fortíðina séu heldur gagnslitlar. Þau verkefni, sem fram undan eru á þessum sviðum, eru óhemjulega stór. Þau eru að mínu mati það brýnasta verkefni sem þjóðin sem heild þarf að einbeita sér að á næstu árum. Ég held að þarna sé um að ræða hreint undirstöðuatriði í efnahagskerfi okkar og orkukerfi og þess vegna þurfum við, eins og við erum menn til, að taka höndum saman, því að ég er sannfærður um að á þessu sviði er um að ræða ákaflega viðtæka þjóðareiningu, samstöðu landsmanna um að við verðum að vera menn til þess að nýta orkugjafa okkar til hlítar til þess að við verðum sem óháðastir innfluttri orku til þess að landsmenn allir geti búið við sem mest jafnrétti.