04.12.1974
Neðri deild: 15. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 554 í B-deild Alþingistíðinda. (417)

76. mál, nýting innlendra orkugjafa

Fjmrh. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því sem hv. 3. þm. Reykv., hæstv. fyrrv. iðnrh., sagði um byggðalínuna og ákvörðun sina um að fela Rafmagnsveitum ríkisins framkvæmd í því máli, hann hefði fyrir löngu verið búinn að fela Rafmagnsveitum ríkisins framkvæmdir. Ég trúi því illa að hæstv. núv. iðnrh. hefði skrifað bréf í síðasta mánuði til Rafmagnsveitna ríkisins til þess að fela þeim þessar framkvæmdir ef í iðnrn. lægi bréf frá fyrrv. ráðh. um að Rafmagnsveitur ríkisins skyldu hafa þessa framkvæmd með höndum. Það má sjá í því fjárlagafrv., sem hér liggur fyrir að til byggðalínunnar eru áætlaðar 250 millj. kr. Þegar fjárlagafrv. verður hér til endanlegrar afgreiðslu kemur að sjálfsögðu til ákvörðunar Alþ. að segja til um, með hvaða hraða skuli fara í áframhaldandi framkvæmdir, og fjármögnun því miðuð við það.