05.12.1974
Sameinað þing: 17. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 556 í B-deild Alþingistíðinda. (420)
19. mál, málmblendiverksmiðjan á Grundartanga í Hvalfirði
Iðnrh. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Ég tel mér skylt að gera grein fyrir því hvað hv. þm. spyr um, því að hann gerði það ekki sjálfur. Hann spyr: „Hvernig stendur á því, að á sama tíma og ríkisstj. ræðir aftur og aftur við bandarískan auðhring um að reisa málmblendiverksmiðju á Grundartanga í Hvalfirði lætur hún alveg hjá líða að bera mál þetta undir það fólk sem byggir sveitirnar í grennd við Grundartanga?“
Þegar hv. þm. Jónas Árnason leggur fram þessa fsp. er auðvitað hverjum hv. þm. ljóst að henni er ekki fyrst og fremst beint til mín, heldur til fyrrv. iðnrh. sem hefur haft með höndum og undirbúið þessa málmblendiverksmiðju um þriggja ára skeið. Það er ljóst að í þessari fsp. felst ádeila á fyrrv. iðnrh. fyrir það að hann hafi ekki haft samband við fólkið, sem byggir sveitirnar, meðan hann hafi aftur og aftur verið að ræða við bandarískan auðhring.
Þó að ég telji ekki sérstaka ástæðu til að blanda mér í innanflokksdeilur þeirra Alþb.- manna né taka sérstaklega upp hanskann fyrir hæstv. fyrrv. iðnrh., sem þessi hv. þm. og sumir forsvarsmenn hans hafa ráðist mjög á að undanförnu og ekki síst á þeim fundi, sem hv. þm. minntist á í Leirár- og Melasveit í gær, tel ég þó rétt að rekja það sem fundist hefur í gögnum málsins um undirbúning og viðræður við fólkið sem byggir sveitirnar.
Þess er þá fyrst að geta að 28. sept. 1971 skipaði Magnús Kjartansson iðnrh. nefnd til að hafa á hendi viðræður við erlenda aðila sem áhuga hafa á þátttöku í orkufrekum iðnaði ásamt íslendingum. Verkefni n. var fyrst og fremst að kanna hvaða nýr orkufrekur iðnaður gæti helst komið til greina hér á landi sem gæti nýtt orku frá Sigölduvirkjun og tryggt henni fjárhagslegan grundvöll.
Eftir ítarlegar athuganir varð niðurstaðan sú að n. taldi hagkvæmast á þessu stígi að byggð yrði verksmiðja til framleiðslu á járnblendi eða ferrosilicon í samvinnu við og með eignaraðild bandaríska fyrirtækisins Union Carbide Corporation. Með bréfi 18. jan. 1973 lagði fyrirtækið fram ákveðna viljayfirlýsingu um að það vildi standa að byggingu ferrosilicon-bræðslu í samstarfi við íslensku ríkisstj. sem minnihlutaaðili. Gengið var frá viljayfirlýsingu 20. júlí 1973 frá fulltrúum fyrirtækisins og viðræðunefnd. Sú yfirlýsing var að sjálfsögðu háð samþykki ríkisstj. og stjórnar Union Carbide.
Á ríkisstjórnarfundi 7. ágúst 1973 samþ. ríkisstj. að heimila n. að halda áfram að undirbúa drög að samningi um stofnun ferrosiliconbræðslu í samræmi við meginatriði viljayfirlýsingarinnar. Var síðan unnið að gerð samningsuppkasts og í lok febr. 1974 skilaði viðræðunefnd um orkufrekan iðnað skýrslu til ríkisstj. um slíka bræðslu í Hvalfirði.
Eftir að sérfræðingar höfðu kannað málið og gert till. um að verksmiðjunni yrði valinn staður við Grundartanga í Hvalfirði, var af samgrn., sem hefur með hafnarmál að gera, skipuð nefnd til þess að hafa með höndum lokarannsóknir og skipulag iðnaðarsvæðis á þessum stað. Þessi n. rn. var skipuð 3. sept. 1973. Í n. voru skipaðir Ólafur S. Valdimarsson skrifstofustjóri, form., Daníel Ágústínusson, Akranesi, Gylfi Ísaksson bæjarstjóri, Akranesi, Sigurður Sigurðsson oddviti, Stóra-Lambhaga, Skilmannahr., og Vilhjálmur Lúðvíksson efnafræðingur í Reykjavík. Þessi n. kannaði nokkuð þessi mál og voru í framhaldi af þessu viðræður við bændur á þessu svæði 7. des. Viðræður munu því hafa átt sér stað við hlutaðeigandi bændur í desembermánuði.
Þetta er það helsta, sem fyrir liggur að því er þetta mál snertir, að viðbættu því að hæstv. núv. samgrh., Halldór E. Sigurðsson, ræddi um þessar mundir einnig sérstaklega við eigendur Grundartanga.
Eftir stjórnarskiptin, þegar tekið var að ræða þetta mál að nýju, stofnun málmblendiverksmiðju, taldi ég fyrir mitt leyti sjálfsagt að við fyrsta tækifæri yrði málið kynnt fyrir íbúum á þessu svæði og hafnar við þá viðræður, sem höfðu verið mjög af skornum skammti þangað til.
Niðurstaðan varð sú að hæstv. samgrh., Halldór E. Sigurðsson, og ég, ákváðum að boða til fundar með héraðsbúum og var sá fundur haldinn í gær í félagsheimili Leirár- og Melasveitar. Ég hafði stungið upp á því við oddvita Skilmannahrepps, þar sem umrædd jörð liggur, að fundurinn yrði haldinn þar í sveit, en niðurstaðan varð sú hjá hreppsnefndarmönnum þar að halda hann heldur að Leirá.
Þessi fundur var hugsaður þannig að það væru fyrst og fremst fjögur sveitarfélög, þ.e. Skilmannahr., Innri-Akraneshr., Strandarhr. og Leirár- og Melasveit, þ.e.a.s. byggðirnar sunnan heiðar, sem þarna yrði við rætt, ásamt Akraneskaupstað. Við boðuðum þennan fund sem almennan kynningarfund þar sem öllum var heimill aðgangur, og var ákveðið að að loknum þeim fundi mundum við síðan ræða við sveitarstjórnarmenn úr þessum fimm byggðarlögum sem ég nefndi, auk sýslunefndar Borgarfjarðarsýslu, Náttúruverndarnefnd Borgarfjarðarsýslu og hreppsnefndarmenn og sýslunefndarmenn úr Kjós og af Kjalarnesi.
Á þessum fundi í gær, sem hófst kl. 14, fluttum við Halldór E. Sigurðsson inngangserindi til að kynna málið. Með okkur voru í ferð þrír menn, sem allir hafa mikinn kunnugleika á þessum málum, til þess að gera grein fyrir málinu og svara fsp. Það var form. stóriðjunefndar, dr. Jóhannes Nordal, það var yfirmaður Heilbrigðiseftirlits ríkisins, Baldur Johnsen, og það var dr. Gunnar Sigurðsson verkfræðingur, sem hafði haft með höndum hönnun og undirbúning hafnargerðar. Á þessum fundi urðu miklar umr. og stóð hann frá kl. 2 í gær til kl. 9.30 í gærkvöldi.
Þessi fundur varð með nokkuð öðru sniði en fundarboðendur og heimamenn höfðu gert ráð fyrir og búist við. Það má vafalaust til sanns vegar færa hjá hv. þm. Jónasi Árnasyni að þetta hafi verið sögulegasti fundur sem haldinn hafi verið í Borgarfirði um langt skeið eða kannske svo lengi sem elstu menn muna. Svo er nefnilega mál með vexti að þessi hv. þm. ásamt öðrum þm. sama flokks, Stefáni Jónssyni, 5. þm. Norðurl. e., höfðu haft nokkurn viðbúnað og liðsafnað, en hafa ekki treyst nægilega á stuðning og fylgi og fundarsókn sinna manna úr héraði, höfðu því landið allt undir og buðu gestum bæði úr Mývatnssveit, Reykjavík og víðar að. Ýmsir þessara gesta tóku til máls á þessum fundi og það með þeim hætti að ræðumenn utan þessara byggðarlaga, sem ég nefndi, voru þar í miklum meiri hluta. Vegna þess að fundurinn stóð svo lengi vegna þessara sérkennilegu aðgerða þm. var ekki unnt fyrir sveitarstjórnarmennina úr hinum ýmsu byggðarlögum, sem þarna voru mættir, að vera þar lengur og varð því að fresta þeim fundi sem við ráðh. höfðum ætlað að halda með fulltrúum íbúanna á þessu svæði sérstaklega, hinum kjörnu fulltrúum, og verður hann haldinn síðar.
Það er svo ekki ástæða til þess, enda tíminn á þrotum eða búinn, að elta ólar við fullyrðingar hv. þm. um þær herfilegu hrakfarir sem við hæstv. samgrh. og þessir 3 sérfræðingar hafi beðið á þessum fundi. En sem sýnishorn af þeim málflutningi, sem þessir boðsgestir Jónasar Árnasonar og Stefáns Jónssonar höfðu, vil ég nefna það að einn þeirra, sem raunar hefur oft látið til sín heyra í Þjóðviljanum áður, skýrði borgfirðingum frá því, að þingeyingar eða mývetningar hefðu lært það af reynslunni að ráðamenn á Íslandi og embættismenn skildu aðeins eitt mál og það væri mál sprengjunnar.