05.12.1974
Sameinað þing: 17. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 561 í B-deild Alþingistíðinda. (426)
19. mál, málmblendiverksmiðjan á Grundartanga í Hvalfirði
Stefán Jónsson:
Herra forseti. Ég ætlast til þess af hæstv. samgrh. að hann tilgreini þau hrakyrði sem ég eða hv. þm. Jónas Árnason höfum viðhaft um Magnús Kjartansson fyrrum iðnrh. á fundinum að Leirá í gær, að hann tilgreini þau. Það eina, sem ég vék að Magnúsi Kjartanssyni persónulega þarna í andsvari vegna ósannra upplýsinga núv. iðnrh. um afstöðu beggja ráðh. Alþb. í fyrrv. ríkisstj., — það eina, sem ég vék að Magnúsi Kjartanssyni í því sambandi, var að Magnúsi leyfðist innan Alþb. að hafa rangt fyrir sér.
Víkjum síðan aðeins að könnun ráðh. tveggja, sem voru efra á Leirá í gær, á afstöðu fólksins þar efra. Það hefur komið fram að Halldór E. Sigurðsson, hæstv. samgrh., kom við á Klafastöðum og hjalaði þar lauslega eina stund við eigendur landsins. Bóndinn á Katanesi, næstu jörð við, sem einnig mun missa land, ef úr verður, undir þessar verksmiðjuframkvæmdir, sagði frá því, að starfsmenn hæstv. iðnrh. hefðu kíkt inn í haughúsið hjá sér, en ekki talað við fólk á bænum. Öll aðferð í sambandi við þetta mál er fyrir neðan allar hellur og að því miðað að blekkja fólk, — fólkið sem býr við Hvalfjörð og allar götur norður í Mývatnssveit.