05.12.1974
Sameinað þing: 17. fundur, 96. löggjafarþing.
Sjá dálk 563 í B-deild Alþingistíðinda. (428)

19. mál, málmblendiverksmiðjan á Grundartanga í Hvalfirði

Lúðvík Jósepsson:

Herra forseti. Því miður kom ég aðeins of seint á þennan fund og heyrði ekki upphaf þeirra umr. sem hér hafa faríð fram, en ég verð að segja, að mér finnst þessar umr. vera býsna einkennilegar. Ég heyri ekki annað en að hér séu tveir hæstv. ráðh. að kvarta undan fundi sem haldinn hafi verið uppí í Borgarfirði í gær, hann hafi verið fjölmennur, það hafi verið safnað liði á fundinn. Mér finnst allt benda til þess að þessir ráðh. hafi farið halloka á þessum fundi, og þeir eru að kvarta yfir fundarsókn.

En sitt hvað kemur inn í þessar umr., m.a. það sem hæstv. iðnrh. var að enda við að segja. Hann hélt því fram að það, sem fram hefði komið í þessum umr., hefði aðallega verið ádeila eða a.m.k. dulbúin ádeila á fyrrv. iðnrh. fyrir störf hans í þessu máli. Svo heyrði ég að á það var minnst hver hefði verið afstaða ráðh. Alþb. í fyrrv. ríkisstj. til þessa máls. Það hefur legið mjög skýrt fyrir hver hefur verið afstaða mín.

Ég hef allan tímann verið á móti byggingu þessarar verksmiðju. Það vita allir þeir ráðh. sem voru með-mér í fyrrv. ríkisstj., því að þar var aldrei svo minnst á þetta mál að ég lýsti ekki yfir andstöðu minni við málið. Ég mætti einnig á fundum með þeirri stóriðjunefnd eða hvað hún heitir, sem vann að þessu máli, og lét skoðun mína greinilega uppi í hennar áheyrn og einnig reyndar með ýmsum öðrum fulltrúum í þessu þinghúsi, þar sem málið var síðast rætt og ég átti fundarsetu. Ég lét í eitt skipti bóka það á ríkisstjórnarfundi að ég væri mótfallinn þessari verksmiðjubyggingu. Er því ekki um annað að ræða í sambandi við það, sem fram kann að hafa komið hjá þeim tveimur hv. þm. Alþb. sem töluðu á þessum fundi, en að þeir hafi verið nokkuð svipaðrar skoðunar og ég hafði verið og margir aðrir í mínum flokki allan tímann, þó að hitt væri líka alveg ljóst, að hinn ráðh. okkar, Magnús Kjartansson, taldi að rétt væri að fara í þessa framkvæmd, þó að hann hafi alltaf haft vissan fyrirvara þar á og hafi nú sagt að hann telji önnur verkefni brýnni og þarfari en að fara í þessa framkvæmd.

Ég vildi aðeins að þetta kæmi hér fram varðandi afstöðu mína, því að ég kann betur við að skýra frá henni sjálfur heldur en að láta hæstv. núv. iðnrh. skýra frá afstöðu minni.

Ég vildi mjög gjarnan að ríkisstj. yrði við því að taka þetta mál til umr. á Alþ. fljótlega, þannig að mér og öðrum þm. gefist kostur á að skýra fyrir þingheimi og fyrir þjóðinni allri afstöðuna til málsins. Mín afstaða til málsins byggist ekki á mengunarhættu þó að hún geti eflaust verið mikil. Ég tel að fjárhagslega séð sé hér um einstaklega vitlaust fyrirtæki að ræða og hér sé verið að ráðstafa fjármunum okkar á mjög óheppilegan hátt, og gæti ég fært fyrir því rök ef tími væri nægur, en hann er ekki nægur hér.